Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1985, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1985, Blaðsíða 44
44 DV. MANUDAGUR 26. AGUST1985. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið • Philip prins, eiginmaöur Elisa- betar Englandsdrottningar, var staddur á Sturup flugvellinum í Svíþjóð nýlega þegar tilkynnt var að sprengja væri í flugstöðvar- byggingunni. Philip var reyndar kominn út í flugvél en hún var enn við bygginguna. Flugvellinum var lokað á meðan sérfræðingar leituðu að sprengju. Þeir fundu ekkert annað en snyrtibox með einhverju grunsamlegu innihaldi. Philip var víst ansi stressaður yfir þessu öllu saman og var feginn þegar hættu- ástandi var aflýst. Það hefðu víst flestir oröiö fegnir, svo þetta er kannski ekki svo merkilegt en flýtur hér með samt. Karólína Mónakóprinsessa hefur ljóstrað því upp hvers vegna hún giftist glaumgosanum Philippe Junot á sínum tíma. Ástæðan mun hafa verið sú að hún vildi losna út úr höllinni og notaði því tækifærið og gifti sig. Hún viðurkenndi þetta i viðtaii við sjónvarpskonuna frægu, Barböru Walters, en Karólína hef- ur hingað til ekki viljað tjá sig um hjónaband sitt og Philippe Junot. I viötaiinu sagðist hún viðurkenna að hjónabandið hefði verið mistök en hún hefði viljað komast að heiman og þetta virtist vera nokk- uð klassísk leið til þess. Þau merkilegu tíðindi gerðust fyrir nokkru að stúlkubarn fæddist á sjúkrahúsinu við Minnesotahá- skóla í Bandaríkjunum. Það merki- lega við þessa fæðingu og stúlkuna var að foreldrarnir höfðu pantaö stúlku, sem þeir og fengu. Vísinda- menn við háskólann lögðu sitt af mörkum til að uppfylla ósk foreldr- anna og tókst vel í þetta skiptið. Hvað er eiginlega verið aö ræða um hér? gæti einhver spurt. Jú, nú eru vísindamenn farnir að búa til glasabörn og það nýjasta er að þeir reyna að hafa áhrif á hvers kyns barnið verður. Það gera þeir með því að greina að karlkyns- og kven- kynssæði og ef þú biður um stelpu nota þeir vitanlega kvenkynssæði. Þeir hafa gert 18 svona aðgerðir en fyrrnefnd stúlka mun vera sú fyrsta sem fæðist í þennan heim. Aðgerðin kostar um 12.000 íslenskar krónur. Líkurnar á því að þú fáir ósk þína uppfyllta varöandi kyn barnsins eru mun meiri ef þú biöur um strák, eða um 75%, en ef þú bíður um stelpu eru líkurnar aðeins um 50% á að þú fáir hana. Stephanie slær sér upp með syni Roger Moore Brúðkaup Madonnu og Sean: Hentu rjóma hvort í annað Madonna og Sean Penn létu pússa sig saman fyrir rúmlega viku, nánar tiltekið 17. ágúst. Brúðkaupið fór fram í Malibu í Kaliforníu og hafði það veriö undirbúið með mikilli leynd. Madonna var i hvítu en sögusagnir voru á kreiki um að hún myndi klæðast svörtu og af því var dregin sú ályktun að hún væri ófrísk. Þær sögur hafa væntanlega sofnað svefninum langa þar með. Madonna var samt með svartan kúluhatt undir slörinu og það er aldrei að vita hvaöa merkingu fólk getur lagt í þaö. Eins og tíðkast í flestum brúðkaups- veislum var heljarmikil terta á borðum. Þau skáru fyrstu sneiöina í sameiningu en tóku síöan handfylli af rjóma og kremi og hentu á andlit hvort annars. Síðan kysstust þau og Sean brá sér undir pils konu sinnar og kom þaðan skömmu síðar með rautt sokka- band milli tannanna. Gestimir, sem vora um 300, voru yfir sig hrifnir og vildu meiri athafnasemi hjá brúð- gumanum. Sean sá að sér og gerði ekki meira í þessum dúr í bili. Eftir að þau höfðu sleikt rjómann hvort af andliti annars drifu þau sig á dansgólfiö og það var ekki brúðarvalsinn sem var leikinn heldur lag með Earthu Kitt, I’m Mad About The Boy. Madonna sýndi mikil tilþrif og gestirnir sáu að brúðurin var í strigaskóm undir síða kjólnum. Madonna átti 27 ára afmæli þennan dag og daginn eftir varð Sean 25 ára. Brúðkaupsnóttunni eyddu þau heima hjá móður Seans, þar sem þau héldu upp á afmælið hans. I veislunni flutti Sean ræðu og stóðu viðstaddir á öndinni því hann mun ekki vera talinn mikill ræðuskörungur, blessaður. Þar lýsti hann m.a. hvernig þau hefðu kynnst. Þaö var í New York í sam- kvæmi þar sem Madonna lét henda Sean út af því henni þótti hann svo leiöinlegur. En hann náði svo sam- bandi við hana með því að fara eftir ráðleggingum vinar síns og senda henni ástarljóð. Það hefur greinilega verið hið nesta Ijóð því nú eru þau sem sagt komin í þaðheilaga. Sonur Roger Moore, Geoff að nafni, mun vera nýjasti kærastinn hennar Stephanie, prinsessu af Mónakó. Drengurinn er sagöur vera hár og spengilegur, þannig að Stephanie á ekki að þurfa að skammast sín fyrir hann. Rainier sjálfur stendur í ýmsu þessa ganga í hjónaband með Iru von dagana og ku hann vera að ráðgera að Furstenberg. Aldraður samói í San Francisco sem kann ekki stakt orð í enskri tungu var í 13 daga í strætisvógnum borgar- innar eftir að hann varð viðskila við fjölskyldusína. Maðurinn heitir Faaitua Logo og fluttist hann til Bandaríkjanna fyrir tveim árum. Hann týndi fjölskyldu sinni á markaði í San Jose. Fyrst reyndi hann að ganga heim til sín í Palo Alto sem er um 20 kílómetra leið, síðan hoppaði hann upp í strætó. Hann skipti oft um strætó yfir daginn í von um að finna heimili sitt, á næturn- ar svaf hann undir strætisvögnum og trjám. Leitin tók loks enda hjá gamla samóanum þegar einn vegfarandi í San Francisco gaf sig á tal við hann á götuhorni, en sá gamli sagði ekkert annað en „Samoa”. Túlkur var kvadd- ur á staðinn og gat hann gert lögregl- unni skiljanlegt að gamli maðurinn rataði ekki heim. Hann var þá staddur 80 kílómetra frá markaðnum sem hann hafði farið á með f jölskyldu sinni þrett- án dögum fyrr. Þegar nýja Bond-myndin var frum- sýnd var Albert, prinsinum í fjölskyldunni, plantaö í bíl með systur Geoffs, Deborah aö nafni. Hann notaði hins vegar fyrsta tækifæri og stakk hana af í gleðskapnum eftir að sýningu myndarinnar lauk, hvarf hann með Mary nokkurri Stavin. sínu. * sum arfi * Donna Reed, en hún hefur nú unnifl málifl gegn framleiðendum Dallas. • Nýgift og vœntanlega ofsalega hamingjusöm, Madonna og Sean (sá dökkklœddi) á svölunum í Malibu húsinu þar sem brúflkaupið fór fram. Madonna er afl búa sig undir afl henda brúðarvendinum til ungra meyja sem allar vildu fá hann, þ.e.a.s. brúðarvöndinn. FÆR AURANA SÍNA Donna Reed leikkona var um tveggja ára skeið vara- skeifa í hlutverk „miss Ellie” í Dallasbullinu fyrir þá heilsutæpu Bel Geddes. Nú hafa framleiðendur þáttanna borgað henni milljón dollara (u.þ.b. 40 millj. ísl. kr.) þar eð Bel Geddes er orðin brattari. Og svo lofa þeir henni nýju úrvalshlutverki. Þreítán daga í strætó m • Stephanie frekar alvarleg á svip, við skulum vona afl nýi gæinn hann Geoff geti fengifl hana til afl brosa a.m.k. út i annað. Dallas: DONNA REED

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.