Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1985, Qupperneq 4
4
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. SEPTEMBER1985.
Hvað segja ráðamenn f iskvinnslustöðva?
Samband fiskvinnslustöðva hélt fund i húsakynnum Vinnuveitendasambandsins í hádeginu i gær. DV
ræddi við nokkra fundarmenn um stöðu mála. DV-myndir: PK.
ÍSLENSKA KRÓNAN
ER OF HÁTT SKRÁÐ
— segir Konráð Jakobsson, Hnífsdal
„Utkoman var mjög slæm síðastliðið
ár. Það var fyrsta tapárið um langt
árabil. Maður er aö vona aö staðan sé
eitthvað betri núna vegna þess að stað-
an á breska sterlingspundinu er tals-
vert betri og við höfum orðið aö fram-
leiða töluvert á Bretland,” sagði Kon-
ráð Jakobsson, framkvæmdastjóri
Hraðfrystihússins hf. í Hnífsdal.
„Viö fáum ekki eins mikið fyrir að
senda á Bretlandsmarkaö eins og að
framleiða á Bandaríkjamarkað. En
við höfum orðið að framleiða á Bret-
land vegna þess að við hefðum ekki
komið því frá öðruvísi.”
— Allur þessi hávaði í kringum bón-
usverkföllin, er þetta ekki öldugangur í
vatnsglasi? Lokast ekki frystihús
hvort sem er þegar kvótinn er að veröa
búinn?
„Það er nú misjafnt, því að sumar
útgerðir hafa takmarkaö sóknina og
þar af leiðandi eiga eftir kvóta. Okkar
útgerð á eftir talsvert af kvóta ennþá.
Konráð Jakobsson: Gjaldeyrir er
á útsöluverði.
Þess vegna ætti okkar hús ekki aö lok-
ast.”
— Menn hafa áhyggjur af Banda-
ríkjamarkaði og því að okkur takist
ekki að koma nægilegu magni á þann
markað.
„Auðvitaö hefur maður áhyggjur af
slíku því aö það yrði slæmt ef fisk-
markaöur tapaöist. Þaö má ekki ger-
ast. Maður er að vona að þaö takist
núna á haustmánuöum aö sinna
Bandarík jamarkaöi. ’ ’
— Hafa frystihús svigrúm til aö taka
á sig launahækkanir til fiskvinnslu-
fólks?
„Eg held að það sé mjög erfitt vegna
þess aö staðan er slæm, var yfirleitt
slæm hjá húsum á Vestfjörðum að
minnsta kosti á síðastliðnu ári. Og
þrátt fyrir að staðan á pundinu hafi
lagast tel ég það ekki nægjanlegt. Ég
tel aö íslenska krónan sé of hátt skráö.
Þó að ég geri mér grein fyrir því að
gengisfelling læknar ekki allt þá er þaö
ljóst aö gjaldeyririnn er á útsölu-
verði,” sagði Konráö Jakobsson.
-KMU.
Mesta vanda-
málið er
erlend
skuldasöfnun
— segir Soffanías Cecilsson, Grundarfirði
„Staöan er mjög bág. Það verður
ekki neinu bætt á hvað snertir kaup-
gjald. En staöa fiskvinnslufólksins
er verri, það er ekki hægt að neita
því,” sagði Soffanías Cecilsson úr
Grundarfiröi.
„Þaö vantar þaö mikið af fólki að
viö myndum geta bætt okkar hag
með því að fá nóg fólk. Þá gætum viö
borið uppi eitthvert aukið kaup ef
fleira fólk kæmi og einnig spilar
þarna inn í hráefnisöflunin, sem er
alveg í lágmarki. Kvótamálin eru að
sliga sameiginlega útgerð og fisk-
vinnslu.
— Hefurðu áhyggjur af því að við
séum að setja markaöi í hættu vegna
þess að viö náum ekki aö fullnægja
eftirspurn?
„Þaö liggur ljóst fyrir að
Bandaríkjamarkaður er í verulegri
hættu. Evrópumarkaöur hefur
heldur lagast en þaö er að breytast.
Núna er pundiö aftur niöur á viö og
dollarinn upp á viö. Þannig að viö
erum algjörlega háðir Ameríku og
þurfum að efla fiskvinnsluna þangaö
eins og við getum.
— Er kjarni vandamálsins kannski
röng skráning á gengi íslensku
krónunnar?
„Skráning á genginu er ekki höfuð-
atriði, heldur tilfærsla í þjóðfélaginu
og skilningur. Svo einnig náttúrlega
þessi skuldasöfnun. Island er verið
að byggja upp á tómri skuldasöfnun
erlendis frá. Þaö er eitt mesta
vandamál okkar. Þess vegna hefur
fólkið flúiö frá þessari grein og hún
ekki getað staðiðsig.
Soffanias Cecilsson: Gætum
borið uppi aukið kaup ef fleira
fólk kæmi.
Eg vil taka undir orð kjördæmis-
ráðs Framsóknarflokksins á Vest-
fjörðum: Burtu með kvótann!,”
sagói Soffanías Cecilsson.
í dag mælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
Bónusinn burt
Nú er skollið á bónusverkfall. Það
þýðir að fólk í fiskvinnslu neitar að
taka við bónus fyrir vinnu sina.
Frystihúsaeigendur hljóta að fagna
þessu verkfalli. Fólkið heldur áfram
störfum sínum, afköstin verða
væntanlega hin sömu, en það eina sem
gerist er að vinnuveitandinn þarf
ekki að greiða eins hátt kaup og
áður. Þetta er áreiðanlega í fyrsta
skipti sem fólk leggur niður vinnu til
að fá minna borgað. Bónusinn var á
sínum tima hugsaður sem hvati að
auknum afköstum, greiðsla ofan á*
kaupið til þeirra sem unnu vel. Nú
hefur fiskvinnslufólkið ákveðið að af-
sala sér þessari launauppbót. Það
vill ekki fá aukagreiðslu þótt þaö
verki fiskinn hraðar og betur en aðr-
ir. Forkólfarnir í verkalýðsstéttinni
hafa talið fólkinu trú um að bónusinn
væri af hinu illa og frystihúsaeigend-
ur hafa að sjálfsögðu ekki mótmælt
því. Og þar sem fiskvinnslufólk er
ýmist skólafólk eða útlendingar þá
hefur það lítið að segja í verkalýðs-
hreyfingunni og samþykkir orða-
laust þær fyrirskipanir að ofan um
að iækka kaupið.
Annars virðist þetta bónusverkfall
og fiskvinnslan yfirleitt ekki skipta
miklu máli. Þessi atvinnugrein er
hvort sem er aö lognast út af. í blöðun-
um birtast myndir af tómum frystihús-
um og Guðmundur jaki segir að þegar
skólafólkið hættir verði engir eftir í
frystihúsunum, ef frá eru taldar nokkr-
ar stelpur frá Ástraliu.
Þá endar þetta með því að það
verða engir eftir til að semja við. Þá
mun bónusverkfallið og yfirstand-
andi kjaradeila verða ansi skondin
uppákoma. Boðað er verkfall sem
enginn tekur þátt i. Viðræður fara
fram um nýja kjarasamninga fyrir fólk
sem ekki er til.
En meðan í uppsiglingu virðist
skortur á fólki er engin skortur á fiski
Togaramir koma inn meö fullfermi,
tæma kvótana á augabragði og eru nú
að sækja á um að fá að fiska upp í kvót-
ana á næsta ári Fá nokkurs konar yfir-
dráttarheimild í fiskiriinu, sem er auð-
vitað þjóðráö, bæði af því að íslendingar
eru vanir yfirdráttum og svo af hinu að
með því að veiða vel og mikið í ár geta
menn iæmt kvóta sina fyrir næstu ária
Og þeir geta einnig tæmt miðin og eytt
þorskstof nunum á einu bretti og þá þarf
ekkert rex eða pex út af bónus hjá fisk-
vinnslufóIkL Þá er sjálfhætt þegar kvót-
inn er tæmdur og þroskurinn horfinn.
Þannig leysir þetta vandamál sig
sjálft. Fyrst að flæma fiskverkunarfólk-
ið úr húsunum og síöan þorskinn. Enda
er hvort sem er soddan Up á allri þess-
ari fiskvinnslu. Þaö er affarasælast
fyrir alla aö hætta þessu misheppnaða
balsl
Menn hafa verið að gagnrýna
væntanlega sameiningu ísbjamarins og
Bæjarútgerðar Reykjavíkur. Sú gagn-
rýni er lítt skiljanleg þegar til þess er
tekið að þangað fæst ekkert fólk til vinnu
nema ástraiskar stelpur í ævintýraleit.
Varla er minnihlutinn í borgarstjóminni
farinn að taka þær upp á arma sína!
Getur það verið að ÁstraUubúar séu
þeir einu sem minnihlutaflokkarair
gera sér vonir um að styðji sig? Ef það
er rétt þá skilur maður vel örvænting-
una sem grípur um sig.
Nú er um aö gera að ná upp
tempóinu og mana fóUdð út í verkfaU
hvað sem það kostar. Jafnvel þótt það
kosti þessar fáu hræður sem eftir eru í
frystihúsunum bónusinn og launaupp-
bótina. Það verður gaman að fylgjast
með því þegar jakinn fer að stappa stál-
inu í verkfaUsfóUdð með áströlskum
kappræðum í tómum vinnslusölunum.
Eða eins og máltækið segir: Það
bylur hæst í tómri tunnu.
Dagfari