Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1985, Síða 1
SALA A FERSKUM FISKIT1L ENGLANDS:
11
BEST AÐ LOSA SIG
STRAX VID HRAEFNIÐ
— heldur en að fá lélega nýtingu úr því í landi,” segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
Frystiskip Eimskipafélagsins,
Ljósafoss, er nú á leiö til Englands
með 250 tonn af þorski sem BtJR-tog-
arinn Ottó N. Þorláksson veiddi.
Þetta er í fyrsta skipti sem frystiskip
siglir út með fiskkassa. Menn óttast
nú að meira verði um þetta þannig
að fiskurinn verði ekki unninn hér á
landi í frystihúsum. Þetta kemur í
kjölfarið á frystitogurum og útflutn-
ingi á fiski í gámum.
— Það var mikið rætt um þetta á
fundinum á Isafirði og menn spurðu
hvort þetta væri ekki orðið hættuleg
þróun, sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra í viðtali
við DV, en Steingrímur var með
fundi á Isafiröi og Patreksfirði um
helgina.
— Otgerðarmenn sögðu að þeim
bæri skylda að bjarga fjárhag út-
geröarinnar með því að gera þetta.
Jafnframt viðurkenndu þeir að þetta
yrði til þess að atvinna yrði minni í
landi, sagði Steingrímur og hann
bætti við. — Það vakti athygli mína
að heyra að frysting um borð í
togurum hefði að mörgu leyti komið
betur út fyrir fiskvinnsluna líka. Ef
fólk hefur ekki getað afkastað hrá-
efninu tímanlega hefur það sýnt sig
að best hefur verið að losa sig strax
við hráefnið í burtu. Fiskvinnslan
fær lélega nýtingu út úr hráefninu ef
það liggur lengi i landi.
— Menn verða einnig að hafa það í
huga að nú er ekki hengt upp í skreið.
Bein sala, eins og nú á sér stað með
ferð Ljósafoss til Englands, kemur í
staðinn fyrir skreiðarverkun sem fór
einnig fram hjá frystihúsunum, að
sjálfsögðu, sagði Steingrímur. -SOS.
— sjá nánará bls. 3
DAGBLAÐIЗVlSIR
216. TBL. - 75. og 11. ÁRG. - MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986.
Ottast að 20.000manns hafi fari
—sjábls.8-9
Grímudansleikur
— leikdómurbls. 29
Ásgeirskoraði
— íþróttir bls- 21-28
•
Bryndísspilar
meöJón
— sjá bls. 3
DVferíréttir
— sjábls.5
Hrærigrautur
íHafnarfirdi
— sjábls. 19
lágfóta ■B
í kuriri |
iálsakoi i
• hónda
Það er alkunna að refamæður eiga
það til, ef þær hræðast, að limlesta eöa
éta unga sína nýfædda. Það er einmitt
reynsla lágfótu litlu sem fæddist á
Húsatóftum á Skeiðum í vor. Aöal-
steinn Guðmundsson refabóndi með
fleiru er með blárefi ættaða frá Noregi.
Hann fann lágfótu litlu, en svo nefna
heimamenn ungann, limlesta af móöur
sinni og tók hana í heimahús. Þar var
lágfóta í hálfan mánuö og undi vel vist-
inni. Hún var svo höfð sér á refabúinu
án samneytis við aðra refi í þrjá
mánuði. Nú er lágfóta oröin hænd aö
heimamönnum, mjög gæf og góð.
„Hún er mjög góð og gæf. Laus við alla
grimmd. Þú sérð það að nú er hún
mjög hrædd við allt þetta fólk sem hér
er og vill bara vera hjá mér,” segir
Aðalsteinn refabóndi. Og það eru orð
aö sönnu. Lágfóta er mjög „lítil” í sér
og kúrir í hálsakoti Aöalsteins og rétt
gýtur augunum á viöstadda. Eftir
nokkra stund áræðir hún þó aö bregða
á leik og tætir í púðum húsfreyju
Ástrúnar Davíðson.
Þau hjónin Aðalsteinn og Ástrún
hófu refarækt fyrir fáum árum og eru
með bláref frá Noregi. Gotið gekk ekki
vel í vor og auk þess drápu refamæður
allmarga unga þegar varnarliðsflug-
vélar flugu yfir búið. Þó voru mest
rúmlega 500 dýr á búinu í sumar. EJ
mm
Aðalsteinn Guðmundsson, refabóndi á Húsatóftum, með lágfótu litlu sem er einungis með þrjá fætur
heila. DV-mynd EJ