Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1985, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1985, Blaðsíða 14
14 DV. MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER1985. Menning Menning Menning Menning Þvflíkt ástand Helga Jónsdóttir og Arnar Jónsson velta á milli sín byrði hjónabandsins i afmœlisleikriti Alþýðuleikhússins á Hótel Borg. DV-myndir PK. húmornum hjá höfundi leikritsins þá er undirtónn þess háalvarlegur. „Þetta leikrit er ekki í stíl við gamal- dags breska misskilningsfarsa,” upplýsir leikstjórinn, Kristbjörg Kjeld. „Þetta er nútímaleg úttekt á samskiptum kynjanna. Höfundurinn er að fjalla um lygina, falsið og ábyrgðina í samskiptum kynjanna. Hann spyr hvort ábyrgðarleysið sé eintómt gaman. En hann bregst okkur ekki í þvi að gera heilmikið grín að þessum eilífðarmálum.” Það leynir sér heldur ekki að kvenna- og karlafarið er með lífleg- asta móti á dansgólfinu. Sumum per- sónunum þykir raunar nóg um og stynja upp, seinustum orða: „Af -<-----------m. Arnar Jónsson og Margrét Áka- dóttir á örlagaríku augnabliki. hverju þurfum við að vera að þessu skaki alla tíð?” „En gleymdu því ekki,” bendir Arnar tíðindamanni DV á, „að þetta verk er þrátt fyrir allt skrifað í ansi mikilli alvöru.” Auk Arnars leika þau Helga Jóns- dóttir, Margrét Ákadóttir, Sigurður Skúlason og Bjarni Steingrímsson með Alþýðuleikhúsinu aö þessu sinni. Sum þeirra eru þar heimavön en önnur þjóna nú Alþýðuleikhúsinu í fyrsta sinn. Leikstjóri er Kristbjörg Kjeld. Guðný Richards annast leikmynd og búninga. Árni Baldvins- son ber ábyrgö á lýsingunni. Yfir öllu vakir síðan Albert Aðalsteinsson, sem í sumar tók við framkvæmda- stjórn hjá leikhúsinu. Þvílíkt ástand veröur frumsýnt á Hótel Borg annað kvöld kl. 21.00 og sýnt þar næstu vikurnar. GK. á dansgólf i Borgarinnar Frumsýning hjá Alþýðuleikhúsinu á Hótel Borg annað kvöld „Þetta leikrit? Ja, það er eins konar tilbrigði við hjónabandsstef- ið.” Það er Amar Jónsson sem er svo snöggur upp á lagið. Hann hefði þó vel getað sagt að þetta væri flókiö mál. Amar er einn fimm leikara í 10 ára afmælissýningu Alþýðuleikhúss- ins. Amar er jú að eigin sögn og ann- arra afi leikhússins. Til sýningar á afmælinu varð fyrir valinu splunkunýtt verk eftir Bret- ann Graham Swannell. Swannell þessi er raunar ekki með öllu óþekkt nafn í íslensku leikhúslifi því fyrir fáum ámm lék hann á nokkmm sýningum í Iðnó. Það var í Skjald- hömrum Jónasar Árnasonar. Þá vissi enginn að verk eftir hann ætti eftir að fara sigurför á leiksviði í London. Sú hefur þó orðiö raunin á þessu ári. Á morgun verður þetta nafntogaða verk Swannells, sem í íslenskri þýð- ingu Sverris Hólmarssonar hefur fengið nafniö Þvílíkt ástand, frum- sýnt á dansgólfi Borgarinnar. San kunnugt er á álitlegur hópur ís- lenskra leikhópa það sammerkt að vera á götunni milli sýninga sem gjarnan er efnt til á ólíklegustu stöð- um. Það verður þó að teljast kald- hæðni örlaganna að dansgólfið á Borginni skuli þjóna sem leiksvið undir verk um hjónabandsvandræði. Þótt engum dyljist að grunnt sé á Partar af púsluspili —átta listamenn íNýlistasafninu Ekki er heiglum hent að sækja heim Nýlistasafnið þessa dagana, þar sem skurðgrafa og díki mikil eru í veginum. En þeir sem komast yfir þær hindranir verða tæplega fyrir vonbrigðum, því í safninu er nú að finna óvenju ásjálega og vel skipu- lagða sýningu á litlum verkum eftir nokkra erlenda listamenn. Henni fylgir sömuleiðis eiguleg skrá, en þeirri hlið sýningarhalds hefur verið ábótavant í Nýlistasafninu, senni- lega sökum f járskorts. Á efri hæð safnsins stendur einnig yfir sýning á nokkrum verkum í eigu þess, einnig eftir útlendinga og Dieter Rot. I neðri salnum eru verk eftir Gerwald Rockenschaub, Jan Knap, Jan Mladowsky, John van’t Slot, JuliaoSaramento, Peter Anger- mann, Stefan Szczesny og Thomas Stimm. Ungir og villtir Þeir sem rekist hafa inn á „Ganginn” hjá Helga Þorgils Friðjónssyni kannast sennilega við nokkra þeirra, en allir hafa þeir sýnt á Biennölum, Dókumentum og öðrum stórum samsýningum í Evrópu á undanförnum árum. Eiga þessir listamenn sammerkt, að flestir hafa þeir verið flokkaöir Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson meðal „ungra og villtra” málara, en þó er myndlist þeirra f jölbreyttari en svo að sú flokkun hafi nokkuð endan- legt gildi. Enda er það jafnan svo, að þegar heimfæra á ákveðnar stefnur upp á einstaka fulltrúa þeirra, er eins og skilgreiningarnar detti um sjálfar sig. Þó geta verk þeirra tekið sig vel út sem partar af risastóru púsluspili, sem hægt er að lýsa og skilgreina. Ég hef séð talsvert stór verk eftir þessa listamenn á sýningum úti i Evrópu, en hingað hafa þeir sent smærri myndir, gerðar með vatnslit- um, gvassi, tússi og akrýllitum á pappír. Prívatfantasíur Viðfangsefni þeirra eru aöallega tvenns konar. Annars vegar eru prívatfantasíur tengdar hvunndags- lífinu, ekki ósvipaðar stemmum Pieters Holstein, hins vegar eru fjarstæðukenndari verk, einka- legar mýtur, blendingur raunsæis og hugaróra. Sjálfum fannst mér mest varið í myndir þeirra Jans Mladowsky og Juliaos Saramento, þar sem frumstæðar kenndir og gildi eru vakin upp og mögnuð í línum og litum. Flestir hafa þátttakendur nokkuð til síns ágætis og mættu aöstandendur Nýlistasafns halda áfram að hóa saman útlendum lista- mönnum, hverra verk eru ofarlega á baugi þessa stundina, svo okkur gef- ist tækifæri til að vega þau og meta, í stað þess að þurfa aö reiða okkur á alþjóðleg listatímarit. Juliao Saramonto _ ónefnt verk, akrýl á pappir, 1985.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.