Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1985, Page 4
4
DV. MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER1985.
Menning Menning Menning Menning
Reykjavíkursögur Ástu
Guflrún S. Gisladóttir og Helgi Skúlason i hlutverkum sinum í Reykja
vikursögum Ástu.
Leikgerð og leikstjóm: Holga Bachmann.
Leikmynd og búningar: Steinunn Þórarinsdótt-
ir.
Tónlist: Guðni Franzson.
Lýsing: Sveinn Benediktsson.
Fyrsta verkefni Kjallaraleikhúss-
ins nýja aö Vesturgötu 3 er leikgerð
smásagna Ástu Siguröardóttur
(1930—1971), en þær birtust fyrst í
ýmsum tímaritum á áratugnum
1951—1961. Varla er hægt að hugsa
sér betri umgjörð um sögurnar en
þarna fæst, og segir það eitt í sjálfu
sér að vel hefur til tekist. Blakkir,
hlaðnir veggir og fomar stoðir nægja
með lítilli viðbót sem leikmynd, og
með tilfærslu fáeinna aukahluta
breytist sviðið eftir þörfum og tekur
á sig ólikar myndir.
Leikatriðin gerast í stássstofum
góðborgara, í braggaskrifli og á
skrifstofu í kerfinu, en þó oftast á
regnvotum götum borgarinnar.
Eiginlegt leiksvið er ekkert, heldur
er leikið á gólfinu í öðrum enda salar.
Leikendur hafa frumstæða aðstöðu
til búningaskipta aftast í salnum og
koma til leiks fram með áhorfenda-
bekkjunum báöum megin í salnum
og verða gangarnir þannig hluti af
sviðinu.
Tónlistin, sem leikin er af bandi,
ljær verkinu svip eftirstríðsáranna
og lýsingin magnar þaö sérstæða
andrúmsloft sem í kjallaranum
ríkir.
Fyrsta saga Ástu, Sunnudagskvöld
til mánudagsmorguns, olli talsverðu
fjaðrafoki, þegar hún birtist í tíma-
ritinu Líf og list. Sagan þótti berorö,
en hitt duldist fáum að hér var á ferð
rithöfundur sem vert var að taka
eftir. Seinni sögur Ástu vöktu ekki
viðh'ka umtal, þó þær séu ekki síður
athygli verðar.
Þegar smásagnasafn Ástu, þær tíu
sögur sem birst höföu, var gefiö út,
tileinkaöi höfundur Reykvíkingum
bókina enda gerast flestar sögurnar í
borginni og fjalla um misbreyska
íbúa hennar.
Sögumar eru mjög myndrænar,
sumar næsta leikrænar á köflum. En
aðrar eru aö mestu innri ræða,
hugsanir persóna, og þar þarf meira
að umskrifa. Leikgerð sagnanna
hefur tekist mjög vel. Helga Baeh-
Leiklist
Auður Eydal
mann hefur náð aö höndla andblæ
sagnanna, og með öruggri leikstjóm
hennar fæst heilsteypt sýning þeim
til sóma sem aö henni standa. Það er
tekist á við verkefniö af metnaði og
valinn maður í hverju rúmi. Farin er
1 i leið að láta fáa leikendur skipta
með sér hlutverkum og birtist því
hver og einn í ýmsum gervum.
Gatan í rigningu er sú saga sem
fyrst er á dagskrá. Það rignir mikið í
Reykjavík i sögum Ástu, og regn-
droparnir blandast oft tárum þeirra,
sem úti una. Hlutverk stúlkunnar í
þessum þætti leikur Guðrún S. Gísla-
dóttir og skapar með hófstilltum leik
eftirminnilega persónu. Stundum er
hún beygð en brotnar þó ekki. Helgi
Skúlason er frábær „róni”, hlýr og
veitir af rausn af fátæklegum tóbaks-
og brennivínsbirgðum sínum.
Samleikur þeirra tveggja er með
ágætum.
Næst sjáum viö Súpermann, sem
Emil Gunnar Guðmundsson leikur.
Hann grætur elskuna sína, sem farin
er að vera meö Kana og læst ekki sjá
fornvin sinn þrátt fyrir himinblá
fötin og stælbindið góða. Emil sýnir
hefndarþorsta og vanmáttuga reiði
stráksa mætavel í erfiðu hlutverki
sem byggist mikið á einræðu hans. I
öllum þáttunum bregður fyrir smá-
myndum, sumum óborganlegum.
Kóngaliljur. Sviðið er braggi, hrör-
legur. Persónur: vinkonur tvær,
önnur, sem Guölaug María Bjarna-
dóttir leikur, veik og buguð, orðin
ófrísk, hin (Guðrún) brynjar sig og
leggur kaldrifjað mat á aöstæður.
Fólk í bragga á ekki að eignast börn.
Hér er Guðrún í öðrum ham en í fyrri
sögu og fer á kostum. En af tvennu
illu finnst vinkonunni skárra að leita
á náðir kerfisins heldur en að sætta
sig við fóstureyðingu. Helgi leikur
kerfiskarlinn sem maldar í móinn:
„Maður verður að hafa karakter...
Fátækt fólk í bragga alveg sérstak-
lega.” En stúlkan hefur sína
afsökun: „Dívaninn er svo mjór...
hendurnar á manni fara sjálfar af
stað.” Og henni tekst að fá sér-
fræðinginn til að hugsa. Guðlaug
skapar hér ljúfa persónu og atriðið á
skrifstofunni er með þeim bestu í
sýningunni.
í hvaða vagni? Guðlaug María
leikur hér feikna erfitt hlutverk
stelpu sem ekki kunni að stoppa og
því fór sem fór. Hún leitar barnsins
síns, sem tekið var frá henni. Þessi
þáttur er eintal hrelldrar sálar og
hann heföi að mínum dómi mátt
stytta nokkuð án þess að inntak
raskaðist. En Guðlaug lék hlutverkið
af þokka þó svo aö nokkurs óstyrks
gætti. En hefði ekki mátt létta Guð-
rúnu skiptingarnar milli hlutverka?
Hún þarf að vera ansi snörp svo
ekkert fari úrskeiðis.
Það er vel við hæfi að ljúka sýning-
unni með fyrstu sögu Ástu, Sunnu-
dagskvöld... Ytri atburðarás er hér
öllu átakameiri en í hinum sögunum.
Guðrún leikur hér aftur stúlkuna
sem næsta ráðvillt velkist meðal
fólks sem skilur hana ekki. Helgi
leikur manninn sem hlynnir aö henni
en hyggst síðan fá nokkuð fyrir sinn
snúö. Nauðgunaratriðið er leyst með
því að gefa meira í skyn en sýnt er.
Afbragðsleikur Guörúnar studdur
notkun ljósa og hljóös nær að sýna
skelfingu og uppgjöf.
„Guð hefur það fyrir siö ef hann
sturtar á mann að þurrka mann rétt
strax aftur.” Sögur Ástu enda oft á
því aö persónum hennar léttir í sinni,
kannski er það bara falleg steinvala,
sem skoppa má með fætinum á
undan sér, sem nær að bregða birtu á
tilveruna. Það má að lokum óska
öllum þeim sem aö þessari sýningu
standa til hamingju með vel unnið
verk og nýju leikhúsi í Reykjavík
velfarnaðar.
Auður Evdal.
Hreppsnefnd
Hveragerðis:
Hefurfor-
kaupsrétt að
öllum íbúðum
I vor samþykkti hreppsnefndin í
Hverageröi að næstu fimm árin
skyldi hreppurinn hafa forkaups-
rétt að öllum íbúðum, lóðum og
löndum í Hverageröi. Þetta hefur
það í för meö sér að þeir sem hyggj-
ast selja eignir sínar verða aö fá
uppáskrift hjá sveitarstjóranum
áður en selt er.
„Þetta var m.a. gert vegna
skipulagsmála hér í Hveragerði.
Við vitum þá um allar sölur og
hreppurinn getur gripið inn í ef
þess gerist þörf,” sagði Karl Guð-
mundsson, sveitarstjóri í Hvera-
gerði, við DV. Hann sagði að ráð-
stöfun sem þessi væri ekki óvenju-
leg og hefði verið samþykkt ein-
róma af hreppsnefndinni. Hann
taidi að svipaðar samþykktir væru
í gildi í um 20 sveitarfélögum víðs
vegar um landið. Þetta væri aöeihs
varnagli tU að geta stjórnaö eigna-
skiptum í samræmi við fyrirhugað
skipulag bæjarins. Apn
Ávísanafalshefur
aukist á Akureyri
Frá Jóni G. Haukssynl, fréttarit-
ara DV á Akureyri:
Ávísanamisferli hefur aukist
mjög á Akureyri í sumar.
„Það er um talsverða aukningu
aö ræða miðað við síðustu ár,”
sagði Daniel Snorrason, rannsókn-
arlögreglumaður á Akureyri.
Daniel sagði að aukningin væri
bæði í ávísanafalsi, það er heftum
stolið og ávísað úr þeim, og að fólk
fariyfiráávísanareikningum.
Ekið á konu á Akureyri
Frá Jóni G. Haukssyni, fréttarit-
ara DV ó Akureyri:
Ekið var á 74 ára gamla konu
laust eftir hádegi á föstudag. Kon-
an var flutt á sjúkrahúsiö á Akur-
eyri, hún mun ekki hafa slasast al-
varlega.
Konan var á leið yfir gangbraut á
Hörgárbrautinni, skammt norðan
við Glerárbrúna, þegar hún varö
fyrir bilnum.
Hún kastaðist í götuna og hlaut
áverka á höfði. _Þ(j
j dag mælir Dagfari______________j dag mælir Dagfari___________j dag mælir Pagfari
Sjónarspil í Byggðastof nun
Þá eru stjómarflokkarnir búnir að
koma sér saman um hverjir skuli
verða forstjórar í Byggðastofnun.
Fæðingarhríðirnar voru erfiðar eins
og gefur að skilja þegar stjómmála-
flokkar em að bítast um hagsmuni
flokkanna en ekki fólksins í landinu.
Sjáifstæðismenn vom búnir að bás-
úna það út að þeir sættu sig aldrei
við að ráðnir yrðu tveir forstjórar
eins og Framsókn hafði heimtað.
Úrslitin urðu síöan þau að forstjórar
em tveir en til þess að Sjálfstæðis-
flokkurinn haldi andiitinu var ákveð-
iö að annar þeirra skyldi bera titilinn
aðstoðarforstjóri. Þetta gaf Morgun-
blaðinu tUefni tU að slá því upp að
Framsókn hefði bakkað í málinu og
sannast hér sem oftar að litlu verður
Vöggur feginn.
En það fyndnasta i frétt Mogga af
forstjóraslagnum er viðtaUð við for-
sætisráðherra. Hann á vart nógu
sterk orð tU aö lýsa því hvað hann sé
ánægður með að Guðmundur Malm-
quist hafi verið ráðinn sem forstjóri.
Hann hafi haft mUdð og gott sam-
starf við manninn og þar aldrei falUð
skuggi á. Af skömmum sínum spyr
þá blaðamaöur eitthvað á þá leið
hvort ekki hafi verið óþægUegt að
hafa lofað Bjarna Einarssyni stuðn-
ingi en svikið hann svo þegar á hólm-
inn var komið. En það er alveg af og
frá að Steingrimur finni tU sam-
viskubits út af því og segir hinn
hreyknasti að Framsókn hafi stutt
Bjarna alveg fram á siðustu stundu.
Því geti Framsókn borið höfuðið
hátt.
Staðreyndin er auðvitað sú. að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að
reyna að ná sér i prik hjá kjósendum
með því að þykjast berjast gegn því
að tveir menn séu ráðnir forstjórar
og segist nú hafa haft sigur með því
að Bjarni er titlaður aðstoðarfor-
stjóri. Þetta er ekkert annað en
sýndarmennska þvi við höfum ekk-
ert að gera með svona apparat sem
Byggðastofnun. Þar fer ekki fram
nein sú starfsemi scm bankakerfiö
gæti ekki leyst betur af hendi því
Byggðastofnun gerir ekki annað en
færa tU peninga. En auðvitað mega
pólitíkusar ekki heyra á það minnst
að leggja niður þessa stofnun þvi
peningaúthlutanir hennar eru
áhrifamiklar til að safna atkvæðum.
Þeir sem sitja eftir með sárt ennið
eftir sjónarspUið við ráðningu for-
stjóranna eru þeir kjósendur
Sjálfstæðisflokksins sem héldu að
flokkurinn vildi draga úr rikisaf-
skiptum og losa sig við spUlingarbæli
á borð við Byggðastofnun. Til að
bæta gráu ofan á svart kemur Hall-
dór Blöndal svo með tUlögu um að
flytja þennan kross norður til Akur-
eyrar og heldur að þar með hafi hann
treyst fylgi sitt fyrir norðan. Það er
engu líkara en Halldór sé að reyna að
slá Stefáni Valgeirssyni við í vitleys-
unni og er þá mikið sagt.
En þetta er í samræmi við annað
rugl sem á sér stað á stjórnarheimil-
inu þessa dagana. Þaö var búið að
gera mikið veður út af því að Albert
hafi slegið i borðið með vitund og
vUja Þorsteins og sagt að annað-
hvort samþykkti Framsókn f járlaga-
tUlögur sinar eða stjórnarsamstarf-
inu yrði slitið. En svo kemur bara
Steingrímur fram í blöðum og segir
að þetta hafi nú bara verið þetta
venjulega röfl í Berta og hann taki
ekki mikið mark á því. Ástandið í
ríkisstjóminni er orðið svo slæmt að
þar era menn löngu hættir að stjóraa
heldur keppa einstakir ráðherrar í
einhvers konar vinsældakosningum
sem ættu helst að fara fram á rás 2
innan um aðrar blaðursauglýsingar
þar.
Dagfari