Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1985, Síða 5
DV. MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER1985.
5
Fálkaungi lendir
i grútarmengun
Fyrir helgina handsömuöu nokkrir
vegavinnumenn á Snæfellsnesi fálka-
unga. Var unginn nánast ósjálfbjarga
af völdum grútarmengunar. Er taliö
líklegt aö fuglinn hafi komist í selshræ
og atað sig allan út um leiö og hann
gæddi sér á því.
Unginn var fluttur til Reykjavíkur, á
Náttúrufræðistofnunina, þar sem
reynt veröur aö hreinsa grútinn af
honum. Að sögn Ævars Petersen fugla-
fræðings er nokkuð algengt á haustin
aö komiö sé með fálkaunga í þessu
ásigkomulagi til þeirra á Náttúru-
fræðistofnun. Taldi hann lífslikur ung-
anna góöar ef ekkert annaö heföi hent
þá. Ævar sagði aö hin mikla umræða
sem heföi orðið um fálka, og þá sér-
staklega fálkaþjófnaö, heföi ýtt undir
áhuga almennings á þeim og gerði þaö
aö verkum aö meira væri um þaö, aö
komið væri með unga til þeirra en
áöur.
Fálkastofninn er nú um 200 verpandi
pör og má því illa viö afföllum. Því
munar um hvern unga sem tekst aö
bjarga.
SMJ.
Ævar Petersen fuglafræðingur með fálkaungann. Litlu mátti
muna að matarveisla ungans endaði með ósköpum fyrir hann.
DV-mynd KAH.
Fáskrúð:
Mjög góð
veiði gaf
253 laxa
Skagamenn eiga fleiri frækna menn
og konur en fótboltafólk, veiöimenn
eiga þeir góöa og hafa þeir veitt heil-
mikið í sumar en þeir Skagamenn hafa
Andakílsá, Fáskrúö, Glerá og
Kjallaksstaöaá (Flekkudalsá) á leigu.
En hvernig gekk veiðin í þeim í
sumar? Er veiöin góö þrátt fyrir vatns-
leysiö?
Andakílsá gaf 102 laxa og nokkra
VEIÐIVON
Gunnar Bender
silunga, laxinn var 17 punda sá stærsti,
52 laxar veiddust á flugu og 50 á þann
slímuga. Hylur 4 gaf langlangflesta
laxa eöa 64. Andakílsá gaf í fyrra 106
laxa.
Fáskrúö kom mjög vel út í sumar og
gaf hún 253 laxa, þrátt fyrir vatnsleysi.
Þröstur Elliðason heldur á
síðasta laxinum í Andakilsá í
Borgarfirði í sumar, veiddum á
maðk. DV-mynd G. Bender.
Hann er 15 punda sá stærsti. Fáskrúö
gaf í fyrra 165 laxa.
Kjallaksstaöaá (Flekkudalsá) kom
heldur verr út núna en í fyrra og veidd-
ust aöeins 133 laxar og hann var 16
punda sá stærsti. Kjallaksstaöaá
(Flekkudalsá) gaf 189 laxa í fyrra.
Glerá var heldur róleg og veiddist
þar víst lítið, en eitthvað. Veiöitölur
verða aö bíöa enn um sinn.
G. Bender
Síðasta innritunarvika.
Innritun daglega kl. 2—5 í skólanum, Stórholti
16, sími 27015.
Upplýsingar á öðrum tíma í síma 685752.
RÉTTIR FÓLK — RÉTTIR FÉ
Það er jafnan mikið af fólki sem tekur á móti safninu þegar það kemur af fjalli.
Gestur Jónsson, Hraunhólum, oftast
kenndur við Skaftholt, hefur sungið i flestum
sveitum landsins og er ekki i vandræðum
með að stjórna söng í Skeiðaréttum.
Sveitungar hans taka undir af mikilli innlifun. Fólk og fé í almenningnum.
Enn er allt tímatal í sveitum miöaö
viö réttir á haustin. Hlutimir eru
annaðhvort geröir fyrir eða eftir
réttir. En breyting hefur orðið á
réttarhaldi á undanfömum árum. I
Skeiöaréttum til dæmis var rúmlega
20.000 fjár þegar mest var fyrir
mörgum árum en hefur fækkaö jafnt
og þétt og er um þaö bil 8.000 nú.
Fækkun samfara betri samgöngum
þýöir þaö aö drátturinn hefst ekki
eins snemma nú og áöur. Dráttur
byrjaöi vanalega um sjöleytiö á
morgnana en nú er ekki hleypt i
almenning fyrr en um 8.30. Enda
liggur ekkert á.
Réttarstemmning er breytt. Fólk-
inu hefur f jölgað. Svo mikið aö í góöu
veöri týnist féö innanum fólkið.
Krakkar fá frí í skólum í nágrenninu
og er ekiö í réttir á rútum. Þar
hamast þeir á eftir ám og lömbum
þar til allir viökomandi aöilar eru
dauðuppgefnir. Bændur hafa það
náöugt. Synda um í réttunum og
benda ungviðinu á sínar ær. Ungvið-
ið tekur síöan viökomandi kind og
færir í dilk. Enginn asi er á þeim
fullorönu, allt er pottþétt og öruggt.
Réttarhald tekur minni tíma en
áöur. Rétt tími til að taka upp pytlu
nokkrum sinnum. Það er þá alltaf
hægt að bæta á sig viö réttarsúpuna
eða á réttarballinu.
Viðkomandi myndir eru teknar í
Skeiðaréttum á föstudaginn var. Þar
var um það bil 8.000 f jár og mikið af
fólki í góðu veðri. ej
Það tekur því ekki að fara
með færri ær í einu en tvær.
(Ljósmyndir EJ).
Kennsla hefst í byrjun október.
Byrjendur (yngst 5 ára) og framhaldsnemendi
Innritun í
síma 72154
Royal Academy of dancing Russian method
Kennarar Sigríður Ármann
Ásta Björnsdóttir