Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1985, Page 8
DV. MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER1985.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Mexíkóborg:
Bófar fara ráns-
hendi um rústir
allt að 20.000 manns hafa farist
Vopnaðir glæpaflokkar, sem þykj-
ast vera björgunarmenn, hafa farið
ránshendi um hús í Mexíkóborg eftir
jarðskjálftana sem menn nú kvíða að
hafi orðið allt að 20.000 manns að bana.
Fólk er nú grafið í fjöldagröfum á
stærð við húsgrunna.
Lögregla sagði í gær að gripdeild-
armennimir færu í fimm til 10 manna
hópum á bílum merktum Rauða kross-
inum. Þeir færu að skartgripaverslun-
um, verslunum og heimiium sem hafa
mörg verið óvarin siöan fyrsti skjálft-
inn kom á fimmtudag.
„Við munum vera miskunnarlausir
gagnvart slíkum mönnum, því svona
gerðir verður að fordæma á þessum tím-
um,” sagöi borgarstjóri Mexikóborgar,
Aguirre Velasquez.
Lögregla hefur handtekið 20 manns
og herinn fleiri. Herréttur mun fara
með mál þeirra sem herinn tekur. Her
Bófaflokkar fara nú ránshendi um jarðskjálftahverfi Mexikóborgar. Óttast
er að enn sáu allt að 20.000 manns grafnir í rústunum.
Enn barist á
Siachen-jökli
Pakistanstjórn hefur neitað fréttum
í indverskum blöðum af miklum bar-
dögum á Siachen-jökli á norðurlanda-
mærum rikjanna. Talsmaður varnar-
málaráðuneytisins sagði að á Siachen-
svæöinu væri ástand „eins og veriö
hefði”.
Fréttir í indverskum blöðum segja
aö pakistanskar flugvélar hafi skotið á
stöðvar indverska hersins í þriggja
daga bardaga í síðustu viku. Blöðin
sögðu að mikið mannfall hefði orðið.
Blaðamaður DV var á svæðinu rétt
sunnan við jökulinn fyrir sex vikum og
sagði frá miklum bardögum á jökiinum
sem hefðu átt sér stað í júní. Mönnum í
norðurhluta Kashmir ber saman um
að stöðug spenna sé á Siachen-jökli.
Tveir indverskir herforingjar staö-
festu við DV að átök hefðu átt sér stað.
Það er harðneskjulegt lífið á Siachen-jökli fyrir, þó ekki bætist stórbardag-
ar við. Þarna hafa margir indverskir og pakistanskir hermenn látið lifið.
Syrgjendur handteknir
Lögregla í Tyrklandi handtók 150
manns sem voru viðstaddir útför
vinstrisinnaðs alþýðutónskálds i gær.
Utförin varð að mótmælagöngu, að
sögn þeirra sem til sáu.
Tónskáldið, Ruhi Su, dó á fimmtu-
dag, 73 ára að aldri. Um 1.500 manns
voru viðstaddir útförina. Lögregla
réðst að göngumönnum þegar þeir fóru
aðhrópa: „LengiiifiRuhi.”
og lögregla hafa sett upp vegatálma til
að koma í veg fyrir að gripdeildar-
menn komist inn á jarðskjálftasvæöin.
Ibúar, sem iifðu af þegar 14 hæða
íbúðabyggingin Nuevo Leon féll niður,
segja að utanaðkomandi fólk hafi leit-
að í rústunum að einhverju verðmætu.
Reiöur múgur handtók mann sem
reyndi að stela lyfjum af spítala. Lög-
regla handtók manninn.
Fólk, sem óttast að ættingjar sínir
hafi farist í skjálftanum, stendur í bið-
röðum við homaboltaleikvang þar sem
líkum hefur verið komiö fyrir. Lög-
regla hefur beöiö fólkiö aö bera kennsl
á ættingja sína.
Þegar hafa fundist 2.000 lík eftir
skjálftann. En bandaríski sendiherr-
ann, John Gavin, segir að líklegt sé að allt
aö 20.000 manns hafi farist.
Fleiri en gripdeildarmenn hafa
reynt aö auðgast á hörmungunum.
Bakarí hafa hækkaö verð á brauöi,
grafarar hafa þrefaldað verð sitt og
ein útvarpsstöð sagði að „sjálfboðalið-
ar” heföu tekið allt aö 2.000 krónur
fyrir aö hjálpa viö aö leita aö fólki í
húsarústum.
Læknar segja aö mikil hætta sé á
smitsjúkdómum vegna rotnandi lika
og ónýts skolpræsakerfis. Björgunar-
menn stráðu sóttvarnarefni yfir rústir
og læknar ráölögöu fólki aö láta
sprauta sig gegn taugaveiki og stíf-
krampa.
Það var ekki bara Mexíkóborg sem
varð illa úti. Borgin Ciudad Guzman
fór líka í rúst í skjálftunum miklu.
Hjálparlið 179 sérfræðinga er komið
frá Frakklandi til aö hjáipa til viö
björgunarstörfin. Einnig eru komnir til
Mexíkó sérfræðingar frá Bandaríkjunum
ogSviss.
I sjónvarpsávarpi sagöi Miguel De
La Madrid forseti að jarðskjálftamir
væru einhverjar mestu hörmungar í
sögu Mexíkó.
Seðlarnir frá sovéska njósnaranum Titov (i miðið) komust ekki fyrir í tösk-
unni hans Treholts (til vinstri) segja verjendur Treholts og þykjast nú hafa
fundið gloppu i málflutningi stjórnvalda.
Treholt þæf-
ist enn við
Jón Einar Guöjónsson, fréttaritari DV
íOsló:
Hinir nýju verjendur Arne Treholts
telja sig hafa fundiö gloppu í máiflutn-
ingi ákæruvaldsins og lögreglunnar
gegn Treholt. I undirrétti kom fram að
Treholt hefði átt fund með KGB-mann-
inum Gennedij Titov í Vínarborg og
þegið af honum peningagreiðslur.
Fjárhæðina, sem tiltekin var, átti
Treholt að hafa haft með sér af fundin-
um í skjalatösku, en peningarnir voru í
tíu-, tuttugu- og fimmtíu dollara-seðl-
um. — Nýju verjendurnir segjast hafa
sannprófað að upphæðin, sem lög-
reglan nefndi, rúmist ekki þannig í
skjalatöskunni sem Arne hafði.
Larse Quickstad, sækjandi málsins,
segir þessar fullyrðingar verjendanna
vera þvætting.
Ame Treholt hlaut á dögunum bók-
menntaverölaun, 25 þúsund norskar
krónur, fyrir handritið að bók sinni um
samskipti sín og KGB og svo rannsókn-
araðferðir norsku lögreglunnar. Hlaut
hann þriðju verðlaun í samkeppni um
bestu heimildarskáldsöguna.
Vestur-þýski blaðakóngurinn:
Springer
fallinn frá
Blaðakóngurinn Axel Springer
sigldi sjaldnast lygnan sjó. Hann
er nú látinn. Hann varð 73 ára.
Springer var á siðustu árum far-
inn að fjárfesta i fleiru en blöðum,
þvi hann rak lika gervihnattasjón-
varp.
Vestur-þýski blaðakóngurinn Axel
Springer, eigandi eins stærsta
fjölmiðlaveldis Evrópu, andaðist af
hjartaslagi í gær, 73 ára að aldri.
Springer, staðfastur and-
kommúnisti, drottnaði yfir
fjölmiölum Vestur-Þýskalands með
síðdegisblaðinu „Zeitung”, sem er í 6,5
milljóna eintaka útbreiðslu, „Die Welt”
og fjölda vikurita og minni dreifbýlis-
blöðum.
Meöal þeirra fyrstu, sem hörmuðu
fráfall Springers, var Heinz
Galinski, leiötogi gyöinga, sem sagði
að Springer hefði ávallt stutt
dyggilega málstað gyðinga og þeim
væri mikill missir í honum.
Það var ein af fjórum grund-
vallarreglum Springers við skrif
blaða hans aö eftir hrylling út-
rýmingarbúða nasista í síðari
heimsstyrjöldinni væri stuðlað að
sáttum Þjóðverja og gyðinga. Blöð
hans studdu ótrauð Israel.
Hinar þrjár voru stuðningur við
frjálst markaðskerfi, stuðningur við
sameiningu Þýskalands og andstaða
við alræöisvald.
Springer var andstæðingur
austur-þýsku stjórnarinnar sem
hann taldi ólýöræðislega og A-Þýska-
land taldi hann ekki fullvalda ríki. —
Hann flutti skrifstofur fyrirtækis
síns frá Hamborg til Vestur-Berlínar
1959 til aö undirstrika afstööu sína.
Utgáfuferil sinn hóf hann 1946 með
útvarpstíðindum en Bild stofnaði
hann 1962. Með hneykslissögum og
ítarlegum frásögnum af ofbeldi náði
blaðiö fljótt mikilli útbreiöslu.
Síðasta sumar var eins og Spring-
er fyndi á sér að hann mundi ekki
eiga langt eftir og endurskipulagði
hann þá fyrirtæki sitt sem hefur 12
þúsund manna starfslið. Setti hann
49% hlutabréfa fyrirtækisins í sölu
en hélt sjálfur 26%.
Springer kvæntist fimm sinnum
og lætur eftir sig son og dóttur. —
Fjölskylda hans komst í fréttimar í
janúar síöastliðnum þegar bamabami
hans, Sven Axel, var rænt í Sviss og
haldið í þrjá daga en síöan sleppt án
lausnargjalds.