Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1985, Side 13
DV. MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER1985.
13
KJÖT FYRIR ÞIG
Kjallarinn
w „Hverjum dettur í hug aö viö,
þessir fámennu víkingar á hjara
veraldar, getum eitthvað gert gegn
stóru skipafélagi í Ameríku? ”
Á meðan kjötiö fer um loftin blá
ásamt fleiru til varnarliösins. Ekki
má flytja kjötiö meö skipum. Rain-
bow Navigation er í máli viö Banda-
ríkjastjórn út af gámaflutningum til
hersins og byggir á lögum síöan 1904
um aö Rainbow megi eitt fyrirtækja
flytja vörur til varnarliðsins. Eitt-
hvaö hlýtur þetta aö vera feitur bití,
fullt af gróða. Þeir hafa bara ekki
séð þetta nógu vel fyrr og látið Is-
lendingum eftir þessa flutninga.
Kannski er eitthvert atvinnuleysi hjá
þeim.
Hverjum dettur í hug aö viö, þessir
fámennu víkingar á hjara veraldar,
getum eitthvaö gert gegn stóru
skipafélagi í Ameríku?
Eða hvað? Það skyldi þó aldrei
vera svo aö það sé verið að plata okk-
ur landana? Þetta sé bara ein af ref-
skákum stjórnmálamannanna, sem
þeir halda svo mikið upp á.
Ef við fáum flutningana megið þið
flytja.inn kjötið. Skítt með lögin frá
1928 um hættu á gin- og klaufaveiki.
Erna V. Ingólf sdóttir.
FLUTNINGUR FYRIR MIG
Nú fór illa fyrir mér. Ég mun ekki
fyrir mitt litla lif þora að fá mér eina
einustu kjöttutlu frá henni Ameríku.
Jafnvel þótt einhverjir góðir vinir
mínir ættu slíka gersemi og vildu
gefa mér bragð.
Ástæðan. Jú, þetta kjöt er bara
fullt af alls konar óæskilegum horm-
ónum og lyfjaleifum. Eða, eins og
yfirdýralæknir fræddi okkur um á
dögunum, þaö finnast ýmis óæskileg
efni í vissum kjöttegundum í Amer-
íku; einkum af svínum, kjúklingum
og kálfum. Eins og allir vita veröa
kálfar fullvaxta að beljum eða bol-
um. Það er ekki svo fráleitt að hugsa
sér að í þeim finnist einhver hættuleg
efni.
Svo er alltaf þessi yfirvofandi
smithatta frá Vellinum. Gin- og
klaufaveikiveiran gæti hvenær sem
er skotið upp kollinum. Ekki bætir úr
skák að niöurstööur bandarískrar
vísindanefndar leiddu í ljós að kjöt-
eftirlit í Bandaríkjunum væri orðið
úrelt.
Það er þó víst til ráð við þessu. Það
hefur nefnilega tekist að bægja
margumtalaðri gin- og klaufaveiki-
veiru frá með því að frá Kananum
komi ekkert nema soðið kjöt. Völlur-
inn er sem sagt alveg einangrað fyr-
irbæri hér á eyjunni köldu og eftirlit
á öllum hlutum þar undir heraga svo
sem vera ber.
En — ef hrátt kjöt kemur nálægt
skepnum geta þær smitast af gin- og
klaufaveiki. Hefur nokkur heyrt get-
„Bændum leyfist ekki að fara i mál við utanríkisráðherra út af innflutn-
ingi á kjöti til íslands."
ið um „buff tartar”, eöa mjög, mjög
léttsteikt nautakjöt? Auðvitað fara
afgangar af svoleiðis beint í
brennsluofnana. Ekki er neitt kvikt
utan V allar sem gæti komist í slikt.
Þaö er búið að hækka lambakjötið
um 15%. Maöur eygir samt von fyrst
ameríska kjötið er svona voðalegt,
þá geta bændur farið að selja Kanan-
um kjöt, vonandi fyrir 970 kr. kílóið.
Sú upphæð hefur að minnsta kosti
verið nefnd í sambandi við útflutning
til Bandarikjanna. Þá lækkar kjötiö
sem ofan í okkur fer. Það tekst að
stoppa betur upp í fjárlagagatið
vegna útflutningsbótanna. Það á
raunar aö hafa tekist í bili, en maöur
getur alltaf átt von á fleiri og fleiri
götum. Þorvaldur í Síld og fiski, hef-
ur þegar fengið leyfi til þess að selja
Könum svínakjöt.
Því miður er svo önnur hlið á mál-
inu eins og alltaf. Bændum leyfist
ekki að fara í mál við utanríkisráð-
herra út af innflutningi á kjöti til Is-
lands. Lögmenn, sem ráð hafa undir
rifi hverju, eru búnir að fara í gegn-
um himinháa stafla af bókum í leit
aö lagabókstaf til þess aö koma
þessu máli í höfn. Þaö hvorki gengur
né rekur. Kjötið, eins og bjórinn,
veröur aö koma til kasta hins hátt-
virta Alþingis. Þar getur það sem
best sofnað í nefnd.
ERNAV.
INGÓLFSDÓTTIR
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Fjöldi nauðungaruppboðsauglýsinga sem bárust Lögbirtingablaðinu frá 1.
janúar 1985 tii 17. september s.á. Aðeins eru taldar þær auglýsingar sem
birtast (þ.e. voru ekki afturkallaðar).
Sendandi 1985 1984
tU.17.9 tU 31.12
Borgaríógetinn í Reykjavik.............................3.084 3.3037
Sýslumaður Gullbringusýslu, bæjarfógetinn í Keflavik,
Griudavík og Njarðvík.................................. 394 444
Sýslumaður Kjósarsýslu, bæjarf ógetinn i Hafnarf irði,
Garöakaupstað og á Seitjarnarnesi..........................832 892
Bæjarfógetinn f Kópavogi...................................491 494
Sýslumaður Mýra- og Borgarf jarðarsýslu.....................17 25
BæjarfógetinnáAkranesi.................................... 36 52
SýsiumaðurSnæfellsness- og Hnappadalssýslu, bæjar-
fógetinn í Ölafsvík....................................... 84 91
Sýslumaður Dalasýslu....................................... 2 1
Sýslumaður Barðastrandarsýslu ............................ 61 4
Sýsiumaðurlsafjarðarsýslu,bæjarfógetinnálsafirði......... 242 145
BæjarfógetinníBolungarvik................................... - 33
SýslumaðurStrandasýslu...................................... 3
Sýsiumaður Húnavatnssýslu................................. 10 10
Sýslumaður Skagafjarðarsýslu, bæjarfógetinn á Sauðárkróki 5 9
Sýsiumaður Eyjafjarðarsýslu, bæjarfógetinn
á Akureyri og Dalvik..................................... 212 241
Bæjarfógetinn á Sigluf irði................................. - 12
BæjarfógetinnáÖlafsfirði................................. 13 10
Sýslumaður Þingeyjarsýslu, bæjarfógetinn á Húsavík........ 37 37
Sýslumaður N-Múlasýslu, bæjarf ógetinn á Seyðisfirði...... 11 20
Sýslumaður S.-Múlasýslu, bæjarfógetinn á Eskifirði........ 44 62
Bæjarf ógetinn í Neskaupstað............................... 2 2
Sýslumaður A-Skaftafellssýslu.............................. 17
Sýslumaður V-Skaftafellssýslu.............................
SýslumaðurRangárvallasýslu................................ 25 15
Sýslumaður Árnessýslu, bæjarf ógctinn á Selfossi......... 141 146
BæjarfógetinníVestmannaeyjum............................. 114 108
ALLT LANDIÐ...............................................5877 5890
Tölubiöð Lögbirtingablaðsins á þessu tímabili voru:........118 110
TRASSA-
SKAPUR?
Forsætisráðherra hefur lýst því
yfir aö hann treysti betur heilbrigðis-
þjónustunni í London en í Reykjavík,
að minnsta kosti ef hann þyrfti að
leita uppskurðar. Það er algengt
með menn sem standa frammi fyrir
erfiðum verkefnum að þeir reyna að
flýja með raunir sínar eitthvað
annað. Forsætisráöherra á alla
samúð mína; hann hefur tekið að sér
að framkvæma óleysanlegt verkefni
sem öll þjóöin er i raun á móti: Það
er að troða leiftursókn gróða-
hyggjunnar upp á Islendinga. Þegar
á móti blæs og ekki sér í land er
kannski ekki nema von aö hann vilji
heist fara til London. Þar er vinkona
hans og kenningamóöir við völd og
þau eiga við sameiginleg vandamál
að stríða um þessar mundir, sumsé
þau að gróðahyggjan leysir engin
efnahagsvandamál. Hún magnar
þau, enda hefur meirihluti kjósenda í
Noregi og Svíþjóð vísað þessum
ófögnuði á bug. Hins vegar mundu
vafalaust margir telja að forsætis-
ráðherrar Islands og Bretlands
þyrftu á ýmsu fremur að halda um
þessar mundir en aö leita sér
uppskurðar. Osigur í kosningum
væri besta lækningameöalið fyrir
þessa tvo leiftursóknarleiðtoga. Til
dæmis væri það ekki úr vegi að þeir
sem hafa orðið harðast úti á nauö-
ungaruppboösstefnunni tækju sig nú
saman um að kjósa aldrei framar
kaupránsflokkana tvo sem sitja í
rikisstjórn landsins.
Af hverju borgar
fólk ekki?
Það sem af er árinu hafa verið
auglýstar jafnmargar eignir á
nauðungaruppboði og allt árið i
fyrra. Tíminn, málgagn
Framsóknarflokksins, hefur fundið
það út að önnur aðalskýringin á
þessum staðreyndum sé fólgin í því
að nauðungaruppboðum fjölgi af
trassaskap. Væri fróðlegt að þau
Margrét bæru saman bækur sínar
um það af hvaða ástæðum trassa-
skapur fer vaxandi í stjórnartíö
þeirra beggja: Fólk borgar ekki
reikningana sína — þvílíkt hneyksli!
Það gæti kannski runnið upp fyrir
þeim að fólk borgar ekki reikninga
sína þegar kaupið er lágt og lífs-
kjörin léleg. Eða hefur Framsóknar-
flokkurinn einhver ja aðra skýringu á
vaxandi „trassaskap” Islendinga
undir alræðisstjórn leiftursókn-
arinnar?
Ég hef aflað mér upplýsinga um
fjölda eigna á nauðungaruppboðum
til 17. september sl. og um fjölda
nauðungaruppboða á sama tíma í
landinu á öliu sl. ári. Þessar tölur
segjasinasögu:
Þarna kemur fram að fjöldi eigna
á nauðungaruppboöum allt sl. ár var
3.037 í Reykjavík en er orðinn 3.084 til
17. september í ár. Það kemur og
fram að heildarfjöldi eigna á
nauðungaruppboöum ígr er nærri sá
sami og allt sl. ár. Og að til þessa
hafa verið gefin út 118 tölublöð af
Kjallarinn
SVAVAR GESTSSON
FORMAÐUR
ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Lögbirtingablaðinu en voru 110 í
fyrra, sem eru vissulega ekki alveg
sambærilegar tölur vegna prentara-
verkfallsins í fyrra, en segja þó sitt.
Ekki verður það heldur skýrt með
trassaskap að í kjördæmi forsætis-
ráðherrans eru 306 eignir auglýstar
á nauöungaruppboöi í ár, en voru 182
allt árið í fyrra.
Nauðungaruppboð
yfir stjórnarstefnunni
Vitaskuld er skýringin engin önnur
en sú að það er búið að svipta fólk
laununum og menn geta ekki borgað
skuldir sínar í tæka tíð. Það gerir sér
enginn maöur leik að því að láta
birta nafn sitt í Lögbirtingablaðinu
og að taka á sig kostnað af
innheimtuaðgerðum lög-
fræðinganna. Auðvitað er skýringin
efnahagsleg. Þess vegna er
skiljanlegt að forsætisráðherrann
skuli heldur vilja fara til London
áður en þjóöin sjálf setur nauðungar-
uppboð yfir stjómarstefnunni í
næstu alþingiskosningum.
Svavar Gestsson.
0 „Vitaskuld er skýringin engin önn-
ur en sú að það er búið að svipta
fólk laununum og menn geta ekki borg-
að skuldir sínar í tæka tíð.”