Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1985, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1985, Síða 4
4 DV. KIMMTUDAGUR 3. OKTÖBER1985. Niðurstöður skoðanakönnunar DV: Meirihlutinn vill bjórinn Meirihluti landsmanna er því fylgj- andi, aö sala áfengs öls veröi leyfö hér á landi, samkvæmt niðurstööum skoð- anakönnunar, sem DV geröi um síö- ustu helgi. Staðan hefur nær ekkert breyst síðan DV geröi sams konar skoöana- könnun um mánaðamótin maí/júní, þótt ýmislegt hafi gengið á. Alþingi af- greiddi bjórfrumvarp ekki í júní. Jón Helgason dómsmálaráöherra tók sína frægu afstööu til bjórlíkis. En samkvæmt skoðanakönnuninni nú styðja 51,2% af öllu úrtakinu bjór- inn. 38,2% eru bjórnum andvíg, aöeins 7% eru óákveðin og 3,7% vildu ekki svara spumingunni. Þetta eru nær sömu úrslit og urðu í könnun DV í sumarbyrjun (sjá meö- fylgjandi töflu). Nú styðja bjórinn 57,3% þeirra, sem taka afstöðu, en 42,7% eru honum and- víg. I könnuninni í maí/júní voru 57,5% fylgjandi og 42,5% andvíg. Þaö er fólk á Reykjavíkursvæðinu, sem ræöur úr- slitum í þessari könnun. Mikill meirihluti karla á höfuö- borgarsvæðinu er fylgjandi bjórnum og töluverður meirihluti kvenna á höfuöborgarsvæöinu. Naumur meirihluti karla úti á landi er fylgjandi bjórnum en nokkur meiri- hluti landsbyggöarkvenna er andvígur bjórnum. -HH Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar: (Til samanburðar eru niðurstöður DV-könnunar um mánaða- mótin maí/júni.) Nú maí/júní Fylgjandi bjómum 307 eða 51,2% 50,7% Andvígir 229 eða 38,2% 37,5% Óákveðnir 42 eða 7,0% 4,8% Svara ekki 22eða 3,7% 7,0% Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku af- stöðu, verða niðurstöðurnar þessar: Nú maí/júní Fylgjandi bjórnum 57,3% 57,5% Andvígir 42,7% 42,5% Meirihluti landsmanna vilí hjór samkvæmt nýrri skoðanakönnun DV. Afstaða manna, hvað þetta varðar, hefur ekki breyst frá því aö DV gerði síðast könnun. Ummæli fólks í könnuninni: „Annað er út í hött” Mjög fylgjandi því, aö hér veröi seldur bjór,” sagöi karl úti á landi þeg- ar hann svaraði spurningunni í skoð- anakönnun DV. „Betra að unglingarn- ir fái bjórinn en það sterkara,” sagöi annar. „Fylgjandi. Annaö er út í hött,” sagöi karl á Reykjavíkursvæðinu. „Viö höfum ekkert aö gera viö öl,” sagöi kona á Reykjavíkursvæðinu. „Þaö er sjálfsagt aö selja öliö innan viss ramma, til dæmis ekki í matvöruversl- unum,” sagöi kona á Reykjavíkur- svæðinu. „Bjórinn er ekki æskilegur,” sagöi önnur. „Þaö á aö selja bjór, en aðeins i Ríkinu,” sagði kona á Reykja- víkursvæðinu. „Er til bóta, ef hann er seldur í Rík- inu,” sagöi karl á Reykjavíkursvæö- inu. „Innan vissra marka," sagöi kona á Reykjavikursvæöina ,A>dvíg. Menn geta lifað góöu lífi án áfengs öls,” sagði kona í sveit. „Fráleitt aö selja hér bjór. Viö eigum ekki aö gera sömu vitleysuna og aörir,” sagöi karl á Reykjavíkursvæðinu. „Eg treysti ekki vissum þjóöfélagshópum fyrir bjór. Ég er hræddur um krakkana,” sagöi karl á Reykjavíkursvæðinu. „Auðvitað á aö leyfa bjór. Ég er á. móti bönnum,” sagöi kona á Reykjavíkursvæðinu. „Ekki er á þetta bætandi,” sagöi kona á Austurlandi. „Fylgjandi bjórnum, ef hann veröur seldur í áfengisverslun- um, ” sagöi karl á Suðurlandi. -HH RAGNHILDUR HELGADÓTTIR Á AFMÆUSHÁTIÐ VESTANHAFS Ragnhildur Helgadóttir mennta- málaráðherra kom í morgun til Islands frá Bandaríkjunum eftir aö hafa tekið þátt í 75 ára afmælishátíð American Scandinavian Foundation í New York. Ragnhildur var meðal þriggja menningarmálaráöherra frá Noröurlöndum sem voru gestir á hátíö- inni. „Þetta er mjög glæsileg hátíö,” sagöi Ragnhildur er DV ræddi við hana í gær. Listviðburðum í tengslum viö afmæliö er dreift fram á næsta ár. „Þaö var meöal annars sýnd hér kvikmynd sem sett var saman úr ýmsum sögulegum atriðum úr norrænum kvikmyndum. Kvikmyndin var sýnd í tvö þúsund manna sal í Lincoln Center. I henni voru allmörg atriöi úr íslenskum kvikmyndum. Sýnt var úr gamalli Reykjavíkurmynd, úr Fjalla-Eyvindi, sem Svíinn Sjöstrom geröi, úr Landi og sonum, Atómstöð- inni og Hrafninn flýgur. Fyrir þessa sýningu flutti Hrafn Gunnlaugsson ávarp og Helgi Tómas- son fjallaöi um myndina,” sagöi Ragn- hildur. Sagöi hún að hlutur Islands heföi komið vel fram í þessari kvik- mynd. Ragnhildur Helgadóttir sagöi aö American Scandinavian Foundation væri mikilvæg stofnun fyrir Islend- inga. Hún heföi kynnt íslenskt menn- ingarlíf og Islendingar fengiö náms- styrki í gegnum hana. -KMU. j dag mælir Dagfari_____________i dag mælir Dagfari____________I dag mælir Pagfari Sveitalína til Ameríku Gömlu og góðu sveitasúnamir eru nú sem óöast að hverfa og sjálfvirkir símar taka viö. Þetta hefur að sjálf- sögðu mikið hagræði í för með sér fyrir sveitafólkið sem nú getur hringt hvert á land sem er hvenær sem er en þarf ekki að hlíta skömmtunartímum Landssimans. En böggull fylgir skammrifi. I sveitasímanum var hægt aö hlera símtöl nágranna og víða lágu bændur og búalið í símanum fram eftir nóttu og hleruöu hvert símtal sem átti sér staö innan sveitarinnar. Þótti þetta góð skemmtun og ódýr auk þess sem hægt var að afla ýmissa frétta með þessu móti. En nú er tæknin að ryðja þessari dægrastyttingu burt og hætt við að margir sakni hlerunarkvöld- anna. tslendingar í Bandarikjunum hafa hins vegar uppgötvað nýja hlerunar- möguleika. Þá þeir hringja heim til íslands bregður svo að þeir heyra jafnan í þriðja aðilanum auk viðmæl- andans. Þessi aukamaður á linunni er greinilega aö tala við einhvern í Bandaríkjunum en ekki er unnt að heyra í þeim sem er vestan hafs. Þetta er óncitanlega nokkur galli, enda hefur verið bent á í þessu sam- bandi aö það kosti 80 krónur á mín- útuna að hringja frá Ameríku til ís- lands og fyrir þann pening er ekki nema sjálfsagt að geta heyrt samtöl annarra til fulls. En ef það reynist rétt að símalínur milli Ameríku og ís- lands séu svona hriplekar þá er hætt við að málið vandist fyrir marga. Til dæmis er varla þorandi fyrir Geir að halda áfram að liggja í simanum og ræða flutningamál viö Shúls. Fyrir nú utan það að Rússarnir ná hverju orði má alveg eins búast viö að hálft svona samtai birtist á forsíðu DV næsta dag. En meðan lekinn er svona ófullkominn yrði aðeins hægt að birta það sem Geir segir og ef til vill nægði það ekki í forsiðufrétt. Eflaust eru Kanadamenn nú búnir að frétta af þessum leka. Má því reikna með að þeir hafi nú þegar ráð- ið íslending til þeirra starfa að hringja stöðugt heim til islands í þeirri von að hann komi inn á samtöl forstjóra íslensku fisksölufyrirtækj- anna í Bandarikjunum við ráðamenn hér heima um verðlag á fiski og birgðastöðu. Ekki hefur frést af neinum viö- brögðum ráðamanna Pósts og sima við upplýsingum DV um simalekann. Enda er óvíst með öllu að nokkur þeirra sé á landinu um þessar mund- ir. Eins og allir vita fara yfirmenn símans alltaf til útlanda ef þeir þurfa að ná tali af erlendum manni í stað þess að nota simann og hringja bara í viðkomandi. Kannski ein af ástæð- um þess sé sú að þeir treysti ekki simakerfinu og kæri sig ekki um að orðum þeirra sé nánast útvarpað um allar jarðir. Á meðan við bíðum eftir viðbrögð- um símamanna og lokun á lekanum eiga þeir sem þurfa að eiga orðastað við fólk í Ameríku um tvennt að velja. Annar kosturinn er að stíga upp i næstu vél Flugleiða og fljúga vestur til að ræða persónulega þau málefni sem þeim liggja á hjarta, hinn er sá að koma upp dulmáli, til dæmis kinversku eða austfirsku, og nota slík óskiljanleg tungumál í sam- tölum vestur um haf. En hverjum skyldi hafa dottið það í huga að síma- línur til Ameríku tækju við hlutverki gamla sveitasimans hvaö þetta varðar. Það er bara verst að það þurfi að kosta svona mikið að hlera nú til dags og heyra aðeins í öðrum aöilanum. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.