Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1985, Qupperneq 8
DV. FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER1985.
Útlönd
Útlönd
Utlönd
Útlönd
Viljavélarhluta
uppafhafsbotni
Tilraunir til að bjarga hlutum
indversku flugvélarinnar, sem
fórst undan Irlandi, munu hefjast í
næstu viku. Indversk fréttastofa
sagöi að þær myndu byrja áttunda
október. Koma á mikilvægum hlut-
um vélarinnar á þurrt til að rann-
saka frekar hvers vegna vélin
hrapaði.
Verið er að kanna hvort hrap
vélarinnar sé tengt sprengingu,
sem varð um borð í kanadískri
flugvél í Tokýo, á sama degi í júní
og sú indverska hrapaði.
Alls fórust 329 manns, allir sem
voru um borö í indversku vélinni.
BróðirTelly
Savalasdáinn
George Savalas, sem lék lög-
reglumanninn Stavros í Kojak-
sjónvarpsþáttunum, þar sem bróö-
ir hans, Telly, fór með titilhlutverk-
ið, andaðist í gærkvöldi af hvítblæði
aðeins 58 ára að aldri. Hann lætur
eftir sig eiginkonu og sex börn.
Herkvaðning
íKampútseu
Skæruliðar rauðu kmeranna í
Kampútseu segja að leppstjórn
Víetnama í Phnom Penh hafi fyrir-
skipaö herkvaðningu allra karl-
manna á aldrinum 18 til 30 ára.
Herþjónustan á að vara í fimm ár,
segja rauðu kmerarnir.
Ekki hefur verið hægt að staö-
festa fréttina en vestrænir sendi-
menn í Bangkok segja að í fjölmiðl-
um í Phnom Penh hafi verið lögð
mikil áhersla á aö fá menn í herinn.
Hernaðarráðgjafi sendiráðs í
Bangkok sagði að Kampútseuher
yrði að bæta við sig til að vega á
móti heimkvaðningu víetnamskra
hermanna.
Tveirmilljarðar
íerfðaskatt
Janni Spies, ríkasta ekkja Dan-
merkur, þarf aö borga dönskum
yfirvöldum tvo milljarða íslenskra
króna í erfðaskatt. En ekkjan, erf-
ingi Spies-auðæfanna, þarf ekki aö
sjá mikið eftir þeim krónum. Mað-
ur hennar, Simon Spies, eftirlét
henni um fimm milljarða í bein-
hörðum peningum, auk ferðaskrif-
stofunnar.
Fyrir utan það þá sýna reikning-
ar ferðaskrifstofunnar aö síðasta
reikningsár var eitthvert það besta
hingað tU.
Janni hefur þótt reka ferðaskrif-
stofuna af röggsemi.
Enginn
Gorbatsjov-stíll
Mikhaíl Gorbatsjov, aöalritari
kommúnistaflokksins í Sovétríkj-
unum, sagði í samtali vð franska
sjónvarpið aö það væri ekki til
neinn Gorbatsjov-stUl. „Sá stíll
sem við ræktum í flokki okkar köll-
um við lenínískan stíl. Hann skil-
greinist af víðtækri samhæfingu
við vinnandi fólk, vinsældum í
starfi og nákvæmri skilgreiningu á
raunverulegri framvindu mála,”
sagði Gorbatsjov.
Þegar fréttamaðurinn spurði
hvort satt væri að fjórar miUjónir
pólitískra fanga væru í Sovétríkj-
unum svaraði Gorbatsjov: „Þetta
er alger vitleysa og minnir mann á
áróður Göbbels.”
Menn kinoka sér við að láta jarðýturnar fara strax á rústirnar og jafna þær við jörðu af kvíða fyrir því að enn kunni að leynast undir brakinu lifandi
fólk. En hættan eykst með hverjum deginum á þvi að farsóttir brjótist út frá rotnandi líkunum.
Fundu 9 ára dreng eftir
2 vikur undir rústunum
„Ertu aleinn?” — Eitt högg
heyrist barið í járn undir rústunum.
„Ertu barn?” — Eitt högg.
„Ertu illa meiddur?” — Tvö högg
að þessu sinni.
„Er þér kalt? ” — Eitt högg.
Þetta einfalda fjarskiptakerfi —
eitt högg fyrir já og tvö högg fyrir nei
— eru eina sambandið sem
björgunarliöar í rústunum í Mexíkó-
borg hafa viö níu ára gamlan dreng
sem hefur verið lifandi grafinn í tvær
vikur undir einni byggingunni. Ein-
hverjar vonir þykja til þess að full-
orðinn frændi hans sé á lífi undir
sömu rústunum.
En höggin eru dauf og stundum
þurfa björgunarsveitirnar að heimta
þögn af samstarfsfólkinu til þess að
heyra merkjasendingar drengsins,
undan mörgum smálestum af braki.
Þaö er búið að bjarga um eitt
þúsund manns lifandi undan rústun-
um en nokkurra þúsunda er saknaö
ennþá þótt með hverjum deginum
dvíni vonir til þess að unnt verði að
finna fleiri lifandi: — Alls er vitað
um 7 þúsund sem fórust í jarðskjálft-
anum mikla.
Komið hefur til tals að jarðýtur
jafni úr rústunum og að kalk-upp-
lausnum verði hellt yfir þær til þess
aö afstýra því aö farsóttir brjótist út
frá rotnandi líkum undir rústunum.
En hinir bjartsýnni vilja fresta því
enn um sinn og höfðu sitt fram, eftir
aö drengurinn fannst í fyrradag.
Rock Hudson með Doris Day, en hún var einn traustasti vinur hans
um margra ára skeið og hjálpaði honum i veikindum hans.
Tvö hundruð féllu f
bardögum á Siachen
Um 200 indverskir og pakistanskir
hermenn hafa farist í bardögum á
Siachen jökli á landamærum ríkjanna
lengst norður í Kashmir, aö sögn ind-
verska dagblaðsins Statesman. Blaöið
sagði að herir ríkjanna tveggja ættu í
stanslausu vopnaglamri. Bardagarnir
fara fram í 5.400 metra hæð.
Talsmaður indverska varnarmála-
ráðuneytisins sagðist ekki hafa ná-
kvæmar tölur um mannfall en sagöi
tölur blaðsins ýkjukenndar.
Statesman sagöi aö bardagar heföu
brotist út á mánudag þegar pakist-
anskar hersveitir hefðu skotið á ind-
verska eftirlitsstöð. Einn Indverji
hefði fallið í þeim átökum og sex
Pakistanar.
Blaöið sagði líka að hundrað manns
hefðu fallið í liði hvors um sig þegar
Pakistanar réðust á heri Indverja í
Bilafonda og Lafonda á jöklinum.
Löndin tvö hafa háð tvö stríð yfir
Kashmir-svæðinu. Indland stjórnar
tveim þriðju Kashmir en Pakistanar
einum þriöja.
Hudson brenndur
Lík Rock Hudson var brennt aðeins
nokkrum klukkustundum eftir dauöa
hans í gær. Hinn frægi leikari dó úr
sjúkdómi sem tengdist ónæmistær-
ingu, sem hafði þjáö hann lengi.
Hudson dó í svefni á heimili sínu í
Beverly Hills, nálægt Hollywood.
Hann var 59 ára að aldri.
Talsmaður Hudson sagði í gær að
ekki væri enn búið að upplýsa ná-
kvæmlega úr hverju Hudson hefði dá-
ið, en dánarorsökin tengdist ónæmis-
tæringu. Hudson olli uppnámi í Holly-
wood þegar hann lýsti opinberlega yfir
því í júlí að hann þjáöist af ónæmistær-
ingu.
Það var samkvæmt óskum hins
látna að hann var brenndur án nokk-
urrar viðhafnar.
Vinir Hudson, Elisabeth Taylor,
Aaron Spelling og aörir sögðu að Huds-
on yröi minnst fyrir þátt sinn í barátt-
unni gegn ónæmistæringu, sjúkdómn-
um sem hefur kostað fleiri en 6.000
Bandaríkjamenn lífið.