Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1985, Side 34
34
DV. FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER1985.
Rjúkandi góðir og hafa engu gleymt. Gestir Sjallans voru lika vel með á nótunum; sungu, klöppuðu og
hrópuðu af hrifningu.
Rjúkandi gott Ríó
tríó í Sjallanum
—í ábót komu svo Mannakom í Ijúfum leik
Rió, Rió, Ríó . . . Við þetta borð var allt að tryllast, sannir og dyggir aðdá-
endur.
Enska dansparið Brian Webster og Judith Markquick dönsuðu suður-
ameriska dansa á eftir Ríó tríóinu.
Ríó tríóið tók Sjallann á Akureyri
með glæsilegu trompi helgi eina fyrir
skömmu. Húsfyllir var bæði kvöldin og
ætlaöi fagnaöarlátunum aldrei að
linna, þremenningarnir marg-
klappaðir upp.
Því er heldur ekki að neita að Ríóið
fór bókstaflega á kostum. Lék á als
oddi og tók öll gömlu góðu Ríólögin
með aðstoð sjálfs dægurlagakóngsins,
Gunnars Þórðarsonar og hljómsveitar
hans.
Áhorfendur voru á öllum aldri. Fólk
á aldrinum þrjátíu til fertugs var samt
mest áberandi. Sem sagt gömlu dyggu
aðdáendurnir mættir til leiks til að sjá
goðin sín syngja.
Á föstudagskvöldinu voru það engin
smástirni sem spiluöu á eftir Ríóinu.
Það voru engir aðrir en Mannakorn
með höfuðpaurana Magnús Eiríksson
og Pálma Gunnarsson í fararbroddi.
Stórkostlegt kvöld í Sjallanum og
örugglega langt síðan einn
skemmtistaður hefur boðið upp á Ríó
tríóið, Pálma Gunnarsson og kóngana
tvo, Gunnar Þórðarson og Magnús
Eiríksson, sama kvöldið. -JGH.
Ritstjórinn í hörkugóðu formi.
DV-myndir JGH.
Búið að gefa græn Ijós og Manna-
korn komnir á þéttingsskrið i Ijúf-
um leik og á rauðu Ijósi, með
Magga Eiríks og Pálma i farar-
broddi.
Hér er það gusugangur i sundlauginni. Sólargeisli i hverjum dropa.
GLEÐSKAPURIGODVIÐRI
„Sumarið er loksins komið,” hafa
sumir haft á orði í blíöviðrinu hér
norðanlands undanfarna daga. Hefur
góða veðriö verið vel þegið eftir öll þau
ósköp sem dunið hafa yfir frá veður-
guðunum í sumar.
Eins og fyrri daginn er það ungviðið
sem kann því hvað best að vera sólar-
megin í tilverunni. Þar sem krakkar
með sólskinsbros eru tilvaliö mynd-
efni, stilltum við ljósopið nú í vikunni fræðingar og veöurguðir hafi allt sitt á
og smelltum nokkrum myndum af. þurru á næstunni — þeir mega til
Er svo ekki bara að vona að veöur- blessaðir. -JGH.
Bliðviðri hittir alltaf beint í mark hjá
boltamönnum. Þessir framtíðar-
sparkmenn Akureyringa reimuðu
strigaskóna vel fasta og sögðust
búnir að leggja stigvélin á hilluna.
' %
■■■ :■;.
Þær systur Sigurlaug Ýr og Eva Dögg Isú yngri) gáfu sér tima fyrir bra-bra á
andapollinum fyrir neðan sundlaugina. Og ekki verra þó pabbi, Einar Har-
aldsson, rétti manni hjálparhönd.
DV-myndir JGH.