Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Qupperneq 4
4
DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER1985.
Wartburg pick-up með þykku níðsterku
palltjaldi kemur í desember.
Ríkisstjórnin ætlar að hækka tolla af
pallbílum 1 ■ janúar 1986 til jafns við fólksbíla.
Það er því að hrökkva eða stökkva.
Þetta frábæra verð stendur til áramóta.
Sýnum laugardag og sunnudag kl. 14—
17. Wartburg pick-up.
INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.
Jón Kjartans-
son, f orstjóri
ÁTVR, látinn
Jón Kjartansson lést í Þýskalandi aö
kveldi sl. fimmtudags. Hann var 68
ára, fæddist áriö 1917 á Siglufirði. Jón
var forstjóri Afengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins frá 1961, en frá
1957—1961 forstjóri Áfengisverslunar
ríkisins.
Jón var í heimsókn hjá syni sínum í
Hamborg er hann lést. -KB.
Julia Morley sem hélt keppninni
áfram þrátt fyrir sorgina sem fylgdi
í kjölfar þess að missa einkadóttur
sína.
„Hin hugrakka
ungfrú heimur"
Sorgin hélt einnig inrireiö sína í
keppninnni. Katy, 17 ára dóttir Júlíu
Morley, dó nóttina eftir keppnina, og
þaö reyndar aöeins nokkrum tímum
eftir aö úrslitin voru tilkynnt.
Katy, sem þjáöist af sjúkdómi sem
lagðist á miðtaugakerfið, hvatti
móöur sína fram undir það síöasta til
að halda áfram meö keppnina eins
og ekkert heföi ískorist.
Móöir hennar, sem vitaskuld var
miöur sín, sagði eftir á: ,,Eg hef
misst mína eigin litlu ungfrú heim.
Katy var ótrúlega hugrökk stúlka.”
-SMJ.
Skyggnst bak við tjöldin
í Miss World keppninni
Miss World fegurðarsamkeppnin
hefur verið mikill hvalreki fyrir
breska fjölmiðla. Hafa sérstaklega
„léttari” blööin verið dugleg við að
uppfræða almenning um allt milli
himins og jaröar varöandi keppnina.
Hafa þau sérstaklega verið dugleg
viö að draga fram ýmislegt í sam-
bandi viö skap og hegðan keppenda
og sýnt ótrúlega hugkvæmni við aö
draga fram leyndar hugsanir stúlkn-
anna. Þess má þó geta aö ekkert mis-
jafnt hafa þeir fundið um hana Hófi
okkar og þaö þótt þeir hafi örugglega
leitaðvel.
Þess vegna kom þaö í hlut annarra
stúlkna aö lenda milli tannanna hjá
almenningi. Og þar voru fremstar i
flokki þær ungfrú Bretland og ungfrú
USA.
Ungfrú Bretland, Mandy Shives,
sem var í öðru sæti, var álitin vera
frekar „tíkarleg” persóna og þaö
meira að segja af löndum sínum.
Hún og ungfrú USA, sem var vægast
sagt örugg með sjálfa sig, voru
taldar vera snobbaöar og hroka-
fuilar. Einn keppandi frá Austur-
löndum sagði aö þær teldu sig hátt
yfir aöra hafnar. Þær stöllur voru
mikið saman og þegar þær birtust
sögðu hinar stúlkumar hæönislega:
„Þama koma drottningarnar.”
Frægt var t.d. þegar Mandy, ungfrú
Bretland, trylltist þegar herbergisfé-
lagi hennar, ungfrú Irland, notaði
krullujámið hennar.
hneykslismálin á fullu
Ungfrú Bretland vakti ekki mikla
hrifningu fyrir utan þá sem heilluð-
ust af fegurð hennar.
Strangt eftirlit
Flestir keppendur voru óhressir
með hið stranga eftirlit sem var meö
keppendunum. Var ástandinu
jafnvel líkt við fangelsi meö ströngu
öryggiseftirliti. Veitti þó trúlega ekki
af því vegna þess hve London er vin-
sælt skotmark f yrir hryöjuverk.
Stúlkumar kvörtuðu einnig yfir því
hve fáa miða þær fengu fyrir ætt-
ingja. Einnig kvörtuöu þær yfir al-
mennum leiöindum. Sagði einn kepp-
andinn t.d.: „Við vorum eins og í
fangelsi og sumar okkar sáu lítið
sem ekkert af London.”
Ástin blómstrar
Sonur stjómenda keppninnar,
Julian Morley, haföi greinilega mest-
an áhuga á einni stúlku. Var það hin
23 ára gamla ungfrú Kanada, Connie
Fitzpatrick. Hin ljóshæröa Connie
flutti meira aö segja inn í lúxusíbúð
Julians í London. Julian, sem er 27
ára og sonur Júlíu Morley sem rekur
keppnina, sagöi um samband þeirra
Connie: „Já, ég geri ráö fyrir því aö
það sé hægt aö kalla hana vinstúlku
mina núna. Við erum í nánu sam-
bandi og mér finnst hún frábær.”
Ekki gáfnakeppni
Skemmtileg uppákoma varö í sjón-
varpsþætti eftir keppnina, fræg
sjónvarpskona, Anne Diamond,
stjómaöi honum.
Julia Morley, eigandi keppninnar,
vakti þar mikla athygli þegar hún
fullyrti frammi fyrir alþjóð að stúlk-
ur sem kepptu þarna þyrftu ekki aö
búa yfir miklum gáfum. Stjóraandi
þáttarins, Anne, reyndi aö breiöa
yfir þessi vandræöalegu ummæli
með því að snúa sér til fyrrum Miss
World, Astrid Herrera frá Venezúela
og segja: „Viö vitum þó öll um gáfur
Astrid vegna þess að hún hefur lært
ensku mjög vel.” Og það eina sem
Astrid gat sagt var stutt og laggott
KR. 157.000
Siðasta myndin sem var tekin af
Katy. Var hún tekin á 17. afmælis-
degi hennar.