Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Qupperneq 6
DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER1985. jKrákan: Ég hugsaði mér, að næst fengi ég mér púrrusúpu Hinriks VIII, olífu- kæfu og spaghetti Bolognaise. En þá var kominn nýr matseðill. Þetta var horfið og nýtt komið í staðinn, ekki síður spennandi. Þannig er Krákan, full af hug- myndaflugi og breytingagirni, einn E? _ m . Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en krónupeningarnir tákna verðlagið. Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús af sárafáum nýju staðanna, sem á eitthvert erindi við okkur. Ég hlakka jafnvel til að fara þangað, næstum eins og ég hlakka til að fara í Arnar- hól og ef til vill tvo aðra staði. Þar með er ekki sagt, að Krákan búi yfir sérlega fínlegri matreiðslu. Þegar réttirnir eru komnir á borð, eru þeir ekki alltaf eins spennandi og þeir litu út fyrir að vera á matseðl- inum. Þar á ofan eru þeir stundum allt aðrir en þeir, sem ég átti von á að fá eftir að hafa lesið nöfn þeirra á seðli. Krákan er mun smekklegri og notalegri veitingastaður en fyrir- rennarar hennar voru hér á horni Laugavegar og Klapparstígs. Mikið af ruslinu hefur verið rifið út, en Búdda situr þó eftir og er kominn upp á gamlan og ólitaðan viðarskenk við langvegg. Smávægilegt er komið af undarlegu dóti, svo sem stytta af þjóni og grænmetissultur í krukkum áhillu. Mikið er af pottablómum, einkum í gluggum. Sperrur eru í svörtu lofti og viður í hvítum þiljum. Málverka- sýningar hanga á veggjum. Sæti eru fyrir 32 á neðra gólfi og 13 á hinu efra. Sveigður viður er í stólbökum og tágar í setum. Á borðum eru bleik- ir og hóflega hreinir dúkar undir diskamottum, pappírsmunnþurrkum og skemmtilegum kertastjökum úr hörpuskeljum. I heild má kalla umhverfið við- kunnanlegt, fremur en ríkmannlegt. Vaskurinn á salerni var undarlega óhreinn. Matseðill fyrir Marzbúa Matseðill Krákunnar er engu lík- ur, sem ég hef séð. Það er eins og hann sé gerður fyrir aðvífandi Marz- búa, eins konar sýnishorn matar- gerðar jarðarbúa. Hann spannar Grikkland, Indland, Texas, Mexíkó, Kína, Jamaika, Indónesíu, Ítalíu, Portúgal, Rússland og jafnvel ísland. Annan eins hrærigraut hef ég aldrei séð á matseðli og er þó ýmsu vanur. Fulltrúi Grikklands var ágætis pönnubrauð, þykkt og seigt, með tvei'mur ídýfum, sem gáfu réttinum nafnið Sadziki og Taramosalata. Sadziki á að vera söxuð gúrka, hvít- laukur og dill eða minta í olífuolíu og jógúrt og ef til vill ediki. Taramo- salata á að vera kæfa hrogna, til dæmis þorskhrogna, og olífuolíu, sítrónu og brauðmylsnu. í raun voru þetta mildar og hlutlausar ídýfur, aðallega úr jógúrt. Smávegis gulrót- arbragð var að hrognakæfunni, en hins vegar ekkert hrognabragð. Kannski hefur kokkurinn farið línu- villt í matreiðslubókinni. Kryddlegin og glóðuð svínarif voru kölluð "Mao Tse Tung", sennilega til að vara fólk við. En það er ástæðu- laust, því að þetta reyndist vera ágætis forréttur, bragðsterkur og skemmtilegur. Fyrirferð á grænmeti Grænmetisréttir eru blessunarlega fyrirferðarmiklir á seðlinum. Einn þeirra er hin mexíkanska Tortilla, stökk, opin pönnukaka utan um fyll- ingu bauna og grænmetis. Hún var góð, en ekki bragðsterk. Henni fylgdi ágætis, sæt jógúrt-ídýfa og hrásalat. Annar grænmetisréttur er hin ind- verska Samosa, djúpsteiktar pönnu- kökur, vafðar utan um blöndu af baunum og öðru grænmeti, einkum papriku og gulrótum. Á matseðlinum er því raunar haldið fram, að réttur þessi sé frá Líbýu. Pönnukökurnar voru þunnar og stökkar, bragðgóðar og snarpheitar. Þetta reyndist vera ekta Austurlandaréttur. Áðurnefnd jógúrtsósa fylgdi. Hrásalatið, sem fylgdi grænmetis- réttunum og aðalréttunum, var fram- bærilegt, aðallega hvítkál eða kína- kál með mjög litlu af jógúrt eða sýrðumrjóma. Graslaukssúpa var sæmileg og karrísúpa var góð, með miklu af sveppum, papriku og dósa-ananas, fremur sæt. Pönnukaka með Chilli con carne var þunn, íslenzk pönnukaka, lögð utan um hakkað kjöt og baunir, bragðsterkari, betri og matarmeiri réttur en sá, sem ég hafði áður fengið í Sombrero. Djúpsteiktur fiskur var góður, enda ekki of mikið eldaður. Skorpan var þunn og stökk. Með fylgdi sætsúr sósa. Kryddlegnar úthafsrækjur voru misheppnaðar, einkum vegna þess að þær voru fastar í skelinni og vildu ekki losna með neinum hefðbundn- um aðferðum. Þær voru skemmti- lega, en raunar of mikið kryddaðar, alveg eins og verið væri að fela rækjubragðið. Brennt smjör fylgdi þeirri. Hörpuskelfiskur Jamaica var afar meyr og góður, ekki ofeldaður. Hann var borinn fram með ferskum svepp- um og papriku í mikilli og blessunar- lega hveitilausri sósu. Kryddleginn lambavöðvi var full- trúi íslands á seðlinum. Hann var vel leginn, meyr, ekki ofeldaður. Þessum ágæta mat fylgdi lint og ólystugt brokkál og bökuð kartafla, svo og tvær skemmtilegar sósur, önnur með piparrót og hin með mintu. Rauður kjúklingur Kjúklingur tandoori var sæmilega verðugur fulltrúi Indlands, kallaður „skræpótti fuglinn". Slíkur kjúkl- ingur er leginn í jógúrt og krydd- blöndu, sem gerir hann eldrauðan að utan, þegar hann er bakaður í ofni, sem helzt á að vera leirofn, er Indverjar kalla Tandoor. Rauða húðin var góð, en kjötið var of þurrt. Því fylgdi skemmtilega sterk sósa og næfurþunnt, stökkt brauð, afar skemmtilegt, svo og lime og lauk- hringir og auðvitað hrísgrjón. Lítið er um eftirrétti í Krákunni. Enginn var skráður á fastaseðlunum, sem ég sá, og aðeins í einni heimsókn var einn eftirréttur skráður á seðil dagsins, eldsteikt epli með rjóma. Ég prófaði þau ekki, en hins vegar ágætt kaffi úr nýrri expresso-vél. Þjónusta er alúðleg í Krákunni. Vínlistinn er fremur lélegur eins og raunar víðast hér á landi. Niðursoðin tónlist er í bakgrunni. Gestakokkar hafa stundum sett svip sinn á stað- inn. Svo brá mér um daginn, þegar boðaður var ljóðalestur í náinni framtíð. Það lá við, að ég missti matarlyst. Verðlag Krákunnar er hóflegt, mitt á milli miðjuverðsstaða á borð við Torfuna og staða lágs verðs á borð við Pottinn og pönnuna. Samkvæmt reikningsaðferðum þessa greina- flokks ætti þriggja rétta máltíð með hálfri flösku af víni og kaffi að kosta 995 krónur. Af einkunnagjöfinni hér á síðunni má sjá, að töluvert samræmi er milli verðs og gæða, betra samræmi en áður hefur fundizt í greinaflokknum. Þess vegna á Krákan erindi til okk- ar. Jónas Kristjánsson Hádemseðill r' -n o. * 140 uullassupa 210 Frönsk epgjabaka 280 Fiskigúllas Napólí 3}j Pönnukaka cbilli con carne 2) 0 Samosa Kvöldseðill 120 Grœnmetissúpa 280 Djúpsteikturfiskur Haivai 32j Spagbetti Bolognaise 210 Skinkarúllur með salati og piparrótarsósu 230 Tortilla Mexikana 240 Fyl/t paprika Milano 3) 0 Gratineraðir sjávarréttir Fastaseðill 240 Sjávarréttasúpa 20j Karrísúpa 110 Sadfikj og Taramosalata 18 j Svínarif Mao Tse Tung 16j Djúpsteiktir paprikubringir með chilli-bnetusósu 210 Kraklingur vinaigrette 24j Salatskál með rœkjum og túnfiski 230 Grillsteikt lambalifur með marineruðum sveppum 260 Síldarópera með rúgbrauói, karríog tómat 220 FLggjakaka 21 j Bamaborgari með kartöflum og salati 22j Pilau, kryddbrísgrjón með salati 230 Samósa, beimalagað brauð með granmetisfyllingu ijj Arstíðarsalat með bvítlauksdressing 260 Tortilla grœnmetisœtunnar 34) Smokkfiskur Chinatown 330 Maschchi kabab, marineraðir sjávarréttir á teini 36j Hörpuskefiskur Jamaica 380 Djúpsteiktur skbtuselur Indonesia 63 j Hamb Islandia, mariheraður lambavóðvi 44j Skrœpóttifuglinn, tandoori kjúklingur 30j Chilliborgari Mexikana 720 T-bone steik Texas 33 j Pönnukaka vestursins, chilli con carne jo Kaffi Prófkjör Sjálfstæðismanna 24. og 25.nóv. 1985 Valið erauðve/t kjósum t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.