Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Side 9
DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER1985. LAUGARDAGS- PISTILL: Þungbúnir framsóknarráðherrar. Reiðubúnir að fórna flokknum? Pólitískar tæknibrellur 1 þeim tíðu innanflokksátökum, sem einkennt hafa starfsemi ís- lenskra stjómmálaflokka, hefur gjarnan komið til klofnings. Þeir, sem farið hafa úr viðkomandi flokk- um, hafa þá efnt til sérstakra fram- boða og jafnvel sérstakra stjóm- málaflokka. Þetta hefur farið vax- andi undanfarin ár. Að baki slíkum klofningi og sér- framboðum eða nýjum flokkum hef- ur gjarnan verið alvarlegur ágrein- ingur um menn og málefni. Oft hafa deilur magnast stig af stigi um nokk- urt árabil áður en upp úr hefur soðið. Síðustu dagana hefur þeirri nýjung skotiö upp kollinum í islenskri stjóm- málaumræðu að stjómmálaflokkur eigi að skipta sér í tvennt af kosningatæknilegum ástæðum ein- vörðungu. Að baki slíkum klofningi er sem sagt ekki ósættanlegur mál- efnaágreiningur heldur einungis at- kvæðaleg spákaupmennska. Það er í Framsóknarflokknum sem hugmyndinni um slíkar póli- tískar tæknibrellur hefur verið hreyftífullrialvöru. Samkvæmt henni er árangursrík- ast fyrir framsóknarmenn í Reykja- vík og Reykjaneskjördæmi að bjóða fram sérstakan lista, F-lista, alls óháðan framboðum Framsóknar- flokksins í öðrum kjördæmum landsins. Tilgangurinn er í raun ekki sá að vinna þingmenn af öðrum stjómmálaflokkum. Nei, markmiðiö er að vinna þingmenn af lands- byggðarmönnum í Framsóknar- flokknumsjálfum. Mismunun Einn þeirra framsóknarmanna, sem velt hefur þessari hugmynd nokkuö fyrir sér, skrifaði kjallara- grein í DV í byrjun vikunnar. Þar birti hann tölur, sem sýna í hnot- skum þá mismunun sem er undirrót þessara hugleiðinga framsóknar- manna. Framsóknarflokkurinn á einungis einn þingmann í Reykjavík og engan á Reykjanesi. Flokkurinn fékk 8225 atkvæði í þessum tveimur kjördæm- um. 1 hinum kjördæmunum sex fengu framsóknarmenn tvöfalt fleiri atkvæði, eða 16525, en 13 þingmenn. Framsóknarþingmaður á Vest- fjörðum hafði þannig á bak við sig 755 atkvæði. Eini þingmaður flokks- ins í Reykjavík var kjörinn af 4781 kjósanda. 3444 kjósendur flokksins i Reykjaneskjördæmi fengu engan þingmann kjörinn. Slíkt atkvæða- magn nægði þó öðrum flokkum til uppbótar þingmanna. Ljóst er að ef framsóknarmenn í þessum tveimur kjördæmum hefðu boðið fram sérstakan sameiginlegan lista hefðu þeir fengið fleiri þing- menn þar. Auðvitaö er skiljanlegt að fram- sóknarmönnum á þessu svæði þyki þetta óþolandi mismunun. En hér er fyrst og fremst um að ræða innanflokksvandamál fram- sóknarmanna. Flokkurinn í heild sinni hefur fengið sinn skerf þing- manna miðað við atkvæðamagn og vel það. Að kljúfa stjómmálaflokk til þess aö vinna bug á sliku innanflokksmis- réttí virðist óneitanlega vera líkt og aö skjóta af fallbyssu til aö kála flugu. Hnignandi flokkur Hitt er svo annað mál að þessar umræður allar eru aöeins eitt af mörgum dæmum um hnignun Fram- sóknarflokksins. Staðreyndin er sú að Framsóknar- flokkurinn hefur jafnt og þétt misst fylgi undanfarin ár. Hann hefur í raun og veru aldrei náð sér eftir kosningaáfalliö sem fylgdi í kjölfar stjórnarsetunnar 1974—1978. 1 kosningunum 1978 hrundi fylgi Framsóknarflokksins niöur í 16,9 af hundraði. Þótt flokkurinn hafi einu sinni, í kosningunum 1979, bætt við sig fylgi aftur, þá var það einungis tímabundið. I síðustu alþingiskosn- ingum, 1983, fékk Framsóknarflokk- urinn 19,5 af hundraði atkvæða. Og samkvæmt skoðanakönnunum er fylgi hans nú enn minna, eða álíka og í ósigrinum mikla árið 1978. 1 sambandi við mat á skoðana- könnunum, hvað fylgi Framsóknar- flokksins varöar, má benda á að fyrir alþingiskosningarnar síðustu var flokknum spáð 12—13 þingmönn- um í skoðanakönnun DV. Flokkurinn fékk 14 þingmenn. Könnunin var því harla nákvæm hvað fylgi Fram- sóknarflokksins varðar. Ástæðulaust er aö ætla annað en aö svo sé enn. I Jónsson var sterki maöur flokksins og lengst af formaður varlögðmikil áhersla á að hasla flokknum völl i þéttbýlinu í Reykjavík og Reykja- neskjördæmum. Og reyndar í kaupstöðum um allt land. Sú viðleitni bar nokkurn árangur. Um tíma var flokkurinn með rúm- lega 28 af hundraði atkvæðanna í landinu. Þá hafði hann tvo kjör- dæmakosna menn í Reykjavík og einn á Reykjanesi. Þetta fylgdi í kjölfar allt annarra stefnuáhersla en nú tíðkast í Fram- sóknarflokknum. Flokkurinn lagði þá miklu meira upp úr málefnum sem snertu þétt- býlisfólk og launamenn. Enda tókst Framsóknarflokknum á timabili aö fá meira fylgi í kaupstöðum landsins en Alþýðubandalagið haf öi. Siðustu árin hefur stefnan verið allt önnur hjá forystumönnum Framsóknarflokksins. Segja má að stefnan hafi reyndar einkum verið sú aö hafa flokkinn í ríkisstjóm. Slfkt er auðvitað fyrst og fremst hagsmunagæsla en ekki pólitísk stefna. Stjómmál snúast ekki bara um völd, heldur um það hvað menn ætla að gera með völdin. Ahrifamenn i Framsóknarflokkn- um í höfuöborginni hafa staðiö i stríði við flokksforystuna um ýmsar stefnuáherslur. Sá ágreiningur, hvort flokkurinn eigi að vera fyrst og fremst lands- byggöarflokkur eöa huga engu síður að málefnum þéttbýlisins, hefur ver- ið mikill síðustu árin þótt hann hafi ekki alltaf f arið hátt. Þingflokkurinn og flokksforystan hefur þar dregið taum landsbyggðar- innar. s Þessi ágreiningur hefur vafalaust gefið hugmyndunum um sérframboð framsóknarfólks i Reykjavik og á Reykjanesi aukinn byr innan flokks- ins. Mannfórnir eða flokks? Þau ummæli formanns Fram- sóknarflokksins fyrir skömmu að flokknum væri fórnandi fyrir árangur i efnahagsmálum hefur vakið nokkra athygli, enda óvenjuleg. Þeir eru til sem telja að þetta sýni heilindi formannsins í baráttunni við veröbólguna, sem er enn ósigruð, og efnahagsvanda þjóðarinnar. Aðrir segja að ummælin sýni aðeins enn einu sinni hvaö for- maðurinn sé skilningslítill á hlutverk sitt sem formaður stjómmálaflokks. Og þá jafnframt aö betra sé aö fóma formanni en flokki. En allt kyndir þetta undir þeirri óánægju, sem farið hefur vaxandi undanfarin ár. Erfitt val Þegar nær liður alþingis- kosningum standa framsóknarmenn frammi fyrir erfiðum kostum: Eiga þeir að bjóða fram í einu lagi eða kljúfa flokkinn í tvennt — í B- lista og F-lista, i dreifbýlisflokk og þéttbýlisflokk? Eiga þeir að veita konum brautar- gengi á framboðslistum eða halda áfram þeirri sérstöðu, sem einkennt hefur þingflokk framsóknarmanna, að hafa þar enga konu? Eiga þeir að byggja baráttuna um atkvæðin á „afrekum”, sem fæst eru vænleg til fylgis i þéttbýlinu, eöa taka með ferskum hætti á þeim mörgu og alvarlegu vandamálum sem brenna á íbúum bæja og borgar þessa lands? Þetta eru nokkrar þær spumingar sem framsóknarmenn veröa að leita svara við hjá sjálfum sér. Svo er auðvitað spuming hvort það dugar nokkuð fyrir Framsóknar- flokkinn að reyna að færa sig til nú- tímalegri hátta. Hefur hann ekki þegar misst af strætisvagninum og glatað endanlega stöðu sinni sem einn af stóru stjómmálaflokkunum í landinu? Það er óneitanlega margt sem bendir til þess að svo sé. Og þá jafnframt að ekkert nema hressileg endurhæfing í alllangri stjómarand- stöðu geti unniö flokkinn upp úr niðurlægingu fylgishruns og stefnu- leysis. Það virðist sem sagt ljóst aö þaö þurfi að fóma ýmsu — mönnum, stefnuáherslum og valdasetu — ef f ramsóknarmenn ætla að koma í veg fyrir að flokknum sjálfum verði fóm- aö og hann gerður að smáflokki. -ESJ. ríkisstjóm. I hugum yngri kynslóð- anna er hann því fyrst og fremst kerfisflokkur, sem stendur vörð um oft óvinsæla og að margra áliti óeðli- lega hagsmuni. Þau mistök, sem gerð hafa verið í f járfestingamálum, eru af mörgum skrifuð á reikning þess flokks sem verið hefur í ríkis- stjóm allar götur frá árinu 1971, yfir- leitt í st jómarforystu. önnur ekki veigaminni skýring er einfaldlega sú staðreynd aö Framsóknarflokkurinn hefur á und- anförnum árum breyst aftur i flokk sem fyrst og fremst sækir fylgi sitt og viðhorf til landsbyggðarfólks. Ekkert er athugavert við að flokkur taki að sér slíkt verkefni. En það er annað hlutverk en Fram- sóknarflokknum var áður ætlað og þýðir að hann verður óhjákvæmilega smáflokkur. A stjómarandstöðuárum Fram- sóknarflokksins, þegar Eysteinn síöustu skoðanakönnun DV hafði Framsóknarflokkurinn 13—14 af hundraði þeirra sem tóku af stöðu. Landsbyggðar- flokkur Hver er svo skýringin á þessari hnignun Framsóknarflokksins? Astæðumar eru vafalaust margar. Flokkurinn hefur veriö afar lengi i Elías Snœland Jónsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.