Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Qupperneq 17
DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER1985.
17
fyrir um hvar ætti að leika það og
það kvöldið og stundum, þegar leik-
ararnir birtust á tröppum einhvers
sambýlishússins, stóð þar lögreglu-
vörður fyrir.
í desember 1979 stóð stofuleikhúsið
fyrir nýrri frumsýningu. Að þessu
sinni sýndi það leikrit um tékkneska
nitjándu aldar höfundinn Nemcovas.
Höfundur var Frantísek Pavlícek,
bannlýst skáld. Hann skrifaði verkið
sérstaklega fyrir Vlasta Chram-
ostovu. Og hún lék öll hlutverkin.
Afskipti lögreglunnar hófust þá að
nýju. Ogstanda enn.
„Óvinur ríkisins"
Vlasta Chramostová byrjaði að
leika þegar Tékkóslóvakía var her-
numin af þýsku nasistunum og hún
var starfsöm og víðfræg allt frá þeirri
tíð þar til rússneska innrásin í
Tékkóslóvakíu batt enda á feril
hennar.
Ferill hennar hófst í Brno. Hún
steig á fjalir sem áhugamanneskja,
tók þátt í andnasistískum leikritum
- og varð brátt eftirsótt leikhús- og
kvikmyndaleikkona.
Ef rússneska innrásin hefði ekki
komið til værl hún nú án efa þekkt
um víða veröld. En við hér vestra
þekkjum hana ekki því að í okkar
augum er Prag langt fyrir austan
svonefnt járntjald. Það undarlega
með járntjaldið og Prag er hins vegar
það að Prag er miklu vestar en
Vínarborg - sem við vissulega teljum
til Vestur-Evrópu.
Úr bréfi frá Chramostovu
Grein þessi, sem hér birtist, byggir
á umfjöllun i sænska leikhús-tíma-
ritinu Entré. Þar birtist nýlega grein
eftir tékkneskan höfund, Karel
Kyncl. Sá hafði í höndum bréf frá
VÍasta Chramostovu. í niðurlagi þess
bréfs segir:
„í meira en 15 ár hefur mér verið
bannað að koma fram. Ég ein veit
hve erfitt það er að vera bannað að
leika í svo langan tíma og dreyma
stöðugt um endurkomu á svið. Ég
fmn lyktina af farðanum, ég þekki
aftur raddir starfsfélaga minna, ég
heyri hringinguna og finn fyrir skini
Vlasta Chramostová.
kastaranna, markorðið kemur - en
ég kann ekki textann, þekki ekki
leikritið, veit að ég mun ekki ráða
við neitt, að ég hef gleymt öllu...Og
ég vakna kaldsveitt á morgnana...-
Einu sinni vaknaði ég grátandi og
heyrði sjálfa mig hvísla setningar úr
síðasta hlutverki mínu og undraðist
að ég skyldi enn muna þær:„Ég er
eins og gamall hundur sem hefur
misst tennurnar...“
En það er erfiðara fyrir mig að
þola leikhúslífið í draumum mínum
en þann raunveruleika sem ég lifi.
Ég hef valið mér óritskoðað líf.“
-GG
'--------------------------
Þórir Lárusson
rafverktaki
'V
Eini starfandi idnaðar-
maðurinn á próf-
kjörslistanum
Bláfjallauppbyggingin hófst undir
stjórn Þóris sem formanns Skíðaráðs
Reykjavíkur 1967-73.
Hafin er bygging íþróttasvæðis í Breið-
holti, en Þórir hefur verið formaður ÍR sl. 8 ár.
Sjálfstæðisfólk þekkir Þóri af ýmsum
störfum í þágu flokksins, m.a. af for-
mennsku Landsmálafél. Varðar 1980 og '81.
Stuðningsmenn