Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Side 28
28
DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER1985.
i ■
Ingibjörg Hjartardóttir og Sigrún Óskarsdóttir í hlutverkum sínum (Ketill og Sveinn),
VAR SKUGGASVEINN KONA?
„Eftir þjóðfélagsumræður síðustu
ára hefur oft verið velt fyrir sér
möguleikanum á að Skugga- Sveinn
hafi verið kona. Ketill skrækur var
örugglega kona. Það hafa síðari tíma
rannsóknir næstum sannað. Ber t.d.
að benda á rödd þrælsins. Ketill
heitinn var mjög mjóróma eins og
frægt er - afar einkennileg rödd af
karlmanni að vera...“
Ofanskráð klausa er úr formála
sem fluttur er á undan hverri sýn-
ingu á leikritinu „Skugga-Björg“
sem leikhópurinn Hugleikur flytur
þessa dagana í Hlaðvarpaleikhúsinu
við Vesturgötu 3 í Reykjavík.
Reykvískt áhugaleikhús
Hugleikur var stofnaður fyrir
tveimur árum. Tvær konur úr þessu
unga áhugaleikhúsi, þær Sigrún
Óskarsdóttir og Ingibjörg Hjartar-
dóttir, sögðu DV að ástæðan fyrir
því að þær stofnuðu Hugleik hefði
verið sú að þær töldu að í Reykjavík
vantaði áhugaleikhús.
„Áhugaleikhús hefur hingað til
verið forréttindi landsbyggðarinnar.
Búi maður úti á landi getur maður
gengið í leikfélag og komist á kaf í
það göfgandi starf sem slík félög
bjóða upp á,“ sagði Sigrún. „Og úti
á landi eru víðast félagsheimili þar
sem áhugaleikfélögin geta fengið
inni. Hér í borginni er ekkert félags-
heimili, engin menningarmiðstöð -
húsnæðisleysi háir mjög frjálsri leik-
starfsemi í höfuðborginni."
Skugga-Björg
Handrit „Skugga-Bjargar" er
helmingi styttra en handritið að
„Skugga-Sveini“ og textanum ögn
hnikað til, enda eru aðalhlptverkin
orðin kvenkyns. Þær Sigrún og Ingi-
björg leika Björgu og Kötlu (Ketill
skrækur) - með eftirtektarverðum
tilþrifum (getur blaðamaður vottað).
„Við höfum einnig fækkað persónum
nokkuð," sagði Ingibjörg, „og sniðið
verkinu nýjan stakk. En rétt er að
taka fram að við höldum okkur alveg
við texta Matthíasar."
Þær Ingibjörg og Sigrún kváðust
þess fullvissar að hefði séra Matthías
verið uppi á vorum dögum og skrifað
leikrit sitt hefði hann látið aðalper-
sónurnar vera kvenkyns. „Þessi ill-
fygli á fjöllunum hefðu áreiðanlega
verið mikil mussu-sköss," sagði Sig-
rún.
Hátt í þrjátíu manns hefur lagt
hönd á plóginn við að búa til fjörm-
ikla sýningu í Hlaðvarpaleikhúsinu.
Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson og
Ólafur Örn Thoroddsen annast lýs-
ingu. Aðrir sem þátt taka eru allir
áhugamenn. Sérlega skemmtilegt
var að sjá nokkra eldri borgara fara
á kostum í sumum hlutverkanna, svo
sem Eggert Guðmundsson, sem leik-
ur Jón sterka, Jón Magnússon, sem
leikur Galdra-Héðin (hlutverk sem
oft er sleppt þegar Skugga-Sveinn
er færður á fjalir), Sigríði Helgadótt-
ur, sem leikur Grasa-Guddu, Björn
Bjarnason, sem leikur Lárenzíus
sýslumann, og Sindra Sigurjónsson
sem leikur Sigurð í Dal.
Hugleikur hefur tekið Skugga -
Svein ferskum (glímu)tökum. Þess
má geta að þegar leikritið fyrst var
sýnt, þ.e. í þeim forna Latínuskóla,
léku karlmenn öll hlutverkin. Nú
hefur dæmið loksins snúist við. Enn
eitt dæmið um framrás kvenna á
öllum sviðum þjóðlífsins. -GG
Gvendur og Gudda - þ.e. Unnur Guttormsdóttir og Sigríður Helgadóttir. Löggurnar dularfullu - Anna Kristín Kristjánsdóttir og Guðrún Gyða Sveins-
dóttir.