Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1985, Blaðsíða 18
D V. MIÐVIKUD AGUR 27. NOVEMBER1985.
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttii
Hannes Már Sigurðsson, Bolung-
arvík - þrjú drengjamet.
DV-mynd S.
Metaregn
Það var heldur betur metaregn
á unglingameistaramótinu i
sundi um helgina. Auk fslands-
mets Bryndisar Ólafsdóttur, Þór,
Þorlákshöfn, í 100 m skriðsundi,
59,12 sek., voru sett mörg ungl-
ingamet. Hannes Már Sigurðs-
son, Bolungarvík, setti þrjú
drengjamet. Synti 100 m flugsund
á 1:04,86 mín, 400 m skriðsund á
4:28,22 mín. og 50 m skriðsund á
26,78 sek. Ingibjörg Amardóttir,
Ægi, setti tvö telpnamet. Synti
800 m skriðsund á 9:34,0 min. og
100 m flugsund á 1:08,82 mín.
Arnþór Ragnarsson, Hafnar-
firði, setti piltamet í 100 m bringu-
sundi, 1:09,24 mín. Náði mjög
athyglisverðum árangri í 200 m
bringusundi, 2:31,64 mín, og 100 m
skriðsundi, 57,22 sek., og sigraði
auðvitað i báðum greinunum.-
Tómas Þráinsson, Ægi, varð
meistari í fimm greinum. Fjórum
einstaklingsgreinum, 1500 m
skriðsundi á 17:10,80 mín., 200 m
baksundi 2:27,10 mín., 100 m bak-
sundi á 1:07,48 mín. og 400 m fjór-
sundi 5:07,42 mín. hsim
Gladbach mætir
Real Madrid
íDiisseldorf
— ogþað erstærsti
viðburdurinn ÍUEFA
keppninni íkvöld
Leik Borussia Mönchengladbach
og Real Madrid ber hœst af þeim
átta leikjum sem fram fara í
Evrópukeppni félagsliða í kvöld
er fyrri leikir þriðju umferðar
verða háðir. Real er núverandi
meistari í kcppninni en þeir munu
mæta öflugri mótspyrnu frá liði
Gladbach. Sjötíu þúsund áhorf-
endur munu troðfylla leikvang
Fortuna Dússeldorf en þar fer
leikurinn fram vegna þess að leik-
vangur Gladhach rúmar ekki
nema helming vallarins í Dússel-
dorf.
Portúgalska liðið Sporting Lissa-
bon kann að verða fyrsta liðið til að
vinna Atletico Bilbao á heimavelli
þess í vetur. Vitor Damas mun leika
í marki Sporting eftir nokkurt hlé
og það ætti að verða nokkur styrkur
fyrir liðið. Hið fornfræga ítalska fé-
lag AC Mílanó mætir Belgíska félag-
inu Waregem í Belgíu.
Hin Evrópumótin tvö, Evrópu-'
keppni meistara og bikarliða eru i
hléiframyfiráramót. - fros
Fyrsti sigur Liverpool á
Man Utd á Anf ield í 6 ár
— sigraði 2:1 og sigurmarkið var skorað úr vafasamri vítaspyrnu. Síðan sleppt víti á United.
Arsenal sigraði í Southampton, — jafntef li á Brúnni
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV á Englandi.
-Þetta var frábær leikur tveggja
bestu liða Englands. Man. Utd.
var betra liðið i fyrri hálfleik og
náði forustu með marki Paul
McGrath á 7. mín. Liverpool betra
liðið i síðari hálfleik. Jöfnunar-
mark Jan Mölby breytti öllu.
Sigurmark Liverpool skoraði
Daninn tveimur mín. siðar úr
mjög vafasamri vítaspymu. Síðar
i leiknum sleppti dómarinn hins
vegar víti á United. Erfiður leikur
fyrir dómarann, sagði Jimmy
Armfield eftir að Liverpool hafði
sigrað Man. Utd, 2-1, í 4. umferð
deildabikarsins á Anfield í gær-
kvöldi.Hann var meðal frétta-
manna BBC þar en þetta er í
fyrsta skipti í 6 ár sem United
tapar á Anfield.
Man.Utd, án sex leikmanna úr hópi
leikmanna úr aðalliðinu, byrjaði
mun betur. Jesper Olsen hefði átt að
skora áður en McGrath skoraði eftir
snjalla sendingu Whiteside, lék með
knöttinn um 30 metra og á Allan
Hansen áður en hann sendi knöttinn
í markið með hörkuskoti. Eftir því
sem leið á hálfleikinn kom Liverpool
meira inn í myndina, Bailey varði
vel frá Johnston og þó einkum
Whelan. 0-1 í hálfleik og litlu munaði
að United skoraði strax í byrjun s.h.
Strachan lék inn í vítateig hjá Li-
verpool,Grobbi hljóp út úr markinu.
Strachan spyrnti knettinum á opið
markið. Ekki nógu fast þó því Law-
renson tókst að skalla frá á mark-
línu.
En síðan kom að Liverpool, Mölby
náði knettinum af Whiteside á miðju
vallarsins, lék með hann óáreittur
40 m og skoraði með þrumufleyg án
þess Bailey hefði nokkra möguleika
á að verja.Klaufalegt hjá fiórum
varnarmönnum Utd, sem voru fyrir
innan Danann, en skot hans var
stórkostlegt.Tveimur mín.síðar var
dæmt víti á United þegar Moran
handlék knöttinn við vítateiginn.
Dómarinn dæmdi víti eftir að hafa
ráðfært sig við línuvörð. -Mjög vafa-
samur dómur,sagði Alan Green,BBC.
Moran var fyrir utan vítateiginn
þegar hann kom við knöttinn. Mölby
skoraði úr vítinu en síðar í leiknum
braut Blackmore á Johnston innan
vítateigs. Vítaspyma, sagði Armfield
en dómarinn dæmdi aukaspyrnu
utan teigs. 2-1 og eftir það réð Li-
verpool að mestu gangi leiksins. Fór
þá rólega í sakirnar lokakaflann.
United fékk tækifæri til að jafna
þegar Brazil komst frír að markinu.
Spymti framhjá. I næstu umferð á
Liverpool heimaleik við Ipswich.
Þrír aðrir leikir vom í deildabik-
amum í gærkvöldi. Arsenal sigraði
Southampton, 3-1, á útivelli.Eftir
daufan f.h. skoraði ungi strákurinn
Mark Hayes fyrsta mark leiksins á
55. mín. fyrir Arsenal. David Armstr-
ong jafnaði úr vítaspyrnu en tvö
glæsimörk Charlie Nicholas og
Stewart Robson færðu Arsenal sigur.
Rétt í lokin var Williams hjá Arsenal
rekinn af velli. Hann lék áður með
Southampton.í næstu umferð leikur
Arsenal á útivelli annað hvort við
Aston Villa eða WBA.Ipswich vann
auðveldan sigur á heimavelli, 6-
l,gegn 4. deildar liði Swindon.Terry
Butcher og Cole skomðu tvö mörk
hvor. Brennan og Wilson hin tvö.
Hörkuleikur var á Stamford
Bridge, jafntefli, 2-2, milli Chelsea
og Everton.Kerry Dixon náði forustu
fyrir Chelsea eftir 55 sek. Shéedy
jafnaði rúmri mín.síðar úr auka-
spymu af 30 m færi.Á 12. mín. náði
Everton fomstu með þrumufleyg
Bracewell af 20 metra færi.Speedie
jafnaði fyrir Chelsea á 43. mín. en
rétt áður hafði Sheedy verið rekinn
af velli. Reifst við dómarann. Leik-
menn Everton vom því 10 allan síð-
ari hálfleikinn og héldu jöfnu. Leik-
urinn var þá daufur.
Þá má geta þess að Man.Utd keypti
í gær bakvörðinn Colin Gibson frá
Villa fyrir 25o þúsund sterlingspund.
Hann á þó eftir að fara í læknisskoð-
un.í stað hans keypti Villa Steve
Hunt frá WBA. -hsím
Siggi Donna til Selfoss
Sigurður Halldórsson, fyrrum lands-
liðsmaður í knattspymu, hefur verið
ráðinn þjálfari 2. deildar liðs Selfoss.
Sigurður, sem var einn af lykilmönn-
um Skagaliðsins fyrir tveimur ámm,
tekur við starfi Magnúsar Jónatans-
sonar. Hann hefur verið ráðinn þjálf-
ari Víkings.
Sigurður þjálfaði og lék með Völs-
ungi á Húsavík í 2. deildar keppninni
í fyrra. Hann mun einnig leika með
Selfossi. -SOS
Sigurður
Besti árangur Islendings í gotfi
Sig. Pétursson lék á
66 höffium á Spáni!
Sigurður Pétursson, íslands-
meistarinn í golfi, náði frábærum
árangri þegar keppni PGA-skól-
ans hófst i gær í Lamanga rétt
við Alecante á Spáni. Sigurður
lék holurnar 18 á 66 höggum sem
er eflaust besti árangur sem ís-
lenskur golfmaður hefur náð í
keppni erlendis. Ragnar Ólafsson
keppir einnig í Lamanga og lék í
gær á 72 höggum. Ágætur árang-
ur það líka.
Þeir Sigurður og Ragnar hafa
áhuga á að gerast atvinnumenn í
golfi í keppni á mótum í Evrópu. Til
þess að svo megi verða þurfa þeir að
komast í gegnum mjög erííða keppni
hjá PGA-skólanum. I gær hófu 356
þátttakendur keppni og þeir sem
verða í 124 efstu sætunum halda
áfram í kep’pni skólans. 232 falla sem
sagt út. Sigurður og Ragnar standa
vel að vígi eftir fyrsta keppnisdaginn.
Þegar Sigurður lauk keppni í gær
höfðu 15o þátttakenda lokið keppni.
Enginn hafði náð betri árangri en
Sigurður. Tveir aðrir hins vegar leik-
ið á 66 höggum eins og hann. Það
sýnir að margir góðir golfmenn eru
í þessari keppni.
Eins og áður segir komast 124 þeir
bestu áfram í aðra keppni skólans
sem verður á sama stað 1.- 6. desemb-
er. Þar verður bætt við 84 keppend-
um sem höfðu unnið sér rétt áður á
þetta mót. Þar verður hörkukeppni
um atvinnumannasætin 5o sem þeir
bestu öðlast. Fyrst leika allir kepp-
endurnir 72 holur. Þeir sem verða í
loo efstu sætunum halda áfram og
leika 36 holur til viðbótar. 5o þeir
bestu fá síðan rétt á mót atvinnu-
mannanna.
Keppnin í Lamanga heldur áfram
í dag. hsím
Móðir og
þjálfari
— og dæturnar snjöllu
Hrafnhildur Guðmundsdótt-
ir, sem um langt árabil var
snjallasta sundkona íslands,
gat verið stolt af dætrum sín-
um á unglingameistaramót-
inu i sundi um helgina. Hin 16
ára Bryndís Ólafsdóttir setti
íslandsmet í 100 m skriðsundi
og sigraði í fleiri greinum.
Hugrún Ólafsdóttir, sem er 14
ára, var snjöll á mótinu og
hefur náð mjög athyglisverð-
um árangri siðustu vikurnar.
Á eflaust eftir að verða jafn-
snjöll og Bryndís og bróðir
þeirra, Magnús, sem þegar er
orðinn íslandsmethafi. Hann
er 18 ára. -hsím,
DV-myndS.
DV. MIÐ VIKUD AGUR 27. NÓVEMBER1985. íÍj
íþróttir Sþróttir íþróttir íþróttir
Stórmeistarinn Morten Frost
treystir aðeins Carlton
útbúnaðinum.
Alltfyrir
badmintonið.
Útsölustaflur
íþróttabúðin,
Borgartúni 20, sími 20011.
Heildsfllublrgflir:
Austurbakki hf.r
sími 91-28411.
- fjör á fyrsta innhússmótinu ífrjálsum íþróttum
ingjans Bemhard Holloway frá
Stjömuklúbbnum í Los Angeles.
Hann hefur dvalist hér frá því í
| sumar og æft með íslendingum. Árið
1984 átti hann 12. besta afrekið í
heiminum í 400 m grindahlaupi 49.10
sek. Bemhard hljóp hér í sumar á
50,8 sek. Hann hefur hlaupið 400 m
á 45,1 sek. í boðhlaupi.
Bernhard sigraði í 50 m grinda-
hlaupi á 7,1 sek. og einnig í 50 m
hlaupi á 5,9 sek. Annar varð íslands-
meistarinn Jóhann Jóhannsson, ÍR.
á 6,2 sek. Hanna Best, 5,8 sek.
Ungir bráðefnilegir hástökkvarar
í ÍR stukku hátt. Einar Kristjánsson,
16 ára, sigraði og stökk 1,91 m og
felldi íslandsmet 1,96 m í sveina-
flokki naumlega. Átti best áður inni
l, 65 m. Tugþrautarkappinn Þor-
steinn Þórsson, ÍR, stökk einnig 1,91
m. Átti áður 1,86 m. Utanhúss, 2,00
m.
Jóhann Ómarsson, ÍR, 18 ára, stökk
í fyrstu keppni 1,78 m og er einnig
líklegur til afreka. Vestur- Hún-
vetningurinn Örn Gunnarsson stökk
12,92 m í þrístökki. Þórður Þórðar-
son ÍR, sigraði í langstökki, 6,34 m,
annar í hástökki án atrennu, 1,51
m, og hljóp 50 m á 6,3 sek. Persónuleg
met. Tugþrautarmaðurinn Gísli Sig-
urðsson, ÍR, sigraði í hástökki án
atrennu, 1,51 m.
Kvennagreinar
í kvennakeppninni vakti mesta
athygli telpnamet Fanneyjar Sigurð-
ardóttur, Ármanni, í langstökki, 5,53
m. Fanney er 13 ára. 6 stúlkur úr ÍR
eru á leið yfir 5,00 m markið sem er
árangur á landsmælikvarða.
í hástökki sigraði Guðlaug Svans-
dóttir, ÍR, 1,60 m. Linda Siguijóns-
dóttir, ÍR, 12 ára, stökk 1,48 m og
nálgast íslandsmet Helenu Jóns-
dóttur, UMF Aftureldingu, 1,52 m,
frá 1984. Stelpnamet. Linda keppti í
fyrsta sinn.
f 50 m hlaupi sigraði íslandsmet-
| hafinn Geirlaug Geirlaugsdóttir,
Ármanni, á 6,6 sek. íslandsmetið er
6,3 sek. Ingunn Einarsdóttir, ÍR, og
Geirlaug eiga það saman. 5 stúlkur
hlupu undir 6,9 sek. Aðalheiður
Hjálmarsdóttir, Ármanni, sigraði í
50 m grindahlaupi á 8,2 sek. Mótið
fór vel fram og fiölmargir fylgdust
með keppninni.
Úrslit:
Miðvikudagur 27. nóvember
Hástökk
1. Einar Kristjánsson fR, 1,91 m.
2. Þorsteinn Þórsson ÍR, 1,91 m.
3. Jóhann Ómarsson fR, 1,78 m.
Þrístökk
1. Öm Gunnarsson USVH, 12,92
2. Jóhann Ómarsson ÍR, 12,28
Konur:
Hástökk
1. Guðlaug Svansdóttir fR, 1,60
2. Linda Sigurjónsdóttir ÍR, 1,48
28. nóvember
50 m grindahlaup
1. Bemh. Holloway USA, 7,1 sek.
2. Gunnl. Grettisson ÍR, 7,5 sek.
50 m hlaup
1. Bemh. Holloway USA, 5,9 sek.
2. Jóhann Jóhannsson ÍR, 6,2 sek.
Langstökk
1. Þórður Þórðarson ÍR, 6,34 m.
2. Öm Gunnarsson USVH, 6,17 m.
3. Jónas Þorvaldsson ÍR, 5,86 m.
Hástökk án atrennu
1. Gísli Sigurðsson ÍR, 1,51 m.
2. Þórður Þórðarson ÍR, 1,51 m.
Konur:
50 m hlaup
1. Geirlaug Geirlaugsd., Á. 6,6
2. Jóna Björk Grétarsd., Á, 6,6
3. Eva Sif Heimisd., ÍR, 6,8
50 m telpur
13-14 ára
1. Fanney Sigurðard., Á, 6,8
2. Guðrún Valdemarsd., ÍR, 7,2
50 m stelpur
11-12 ára
1. Linda Sigurjónsd., ÍR, 8,1
2. Nanna Guðbergsd., ÍR, 8,3
50 m grindahlaup
1. Aðalheiður Hjálmarsd., Á,
8,2 sek.
2. Geirlaug Geirlaugsd., Á, 8,3 sek.
Martina Navratilova er loðin um
lófana.
Keppti í fyrsta sinn
og var við íslandsmet
Fyrsta innanhússmót vetrarins
fór fram í Baldurshaga síðastlið-
inn miðvikudag og fimmtudag.
Um 50 keppendur frá fiórum fé-
lögum kepptu á mótinu. Um 30 frá
ÍR. Margir unglingar, sem liklegir
eru til afreka í framtíðinni, eru
nú að koma fram á sjónarsviðið.
Mikla athygli vakti þátttaka svert-
Martina loð-
in um lófana
— tenniskonan fræga hefur unnið 50 milljónir kr.
íverðlaun á keppnistímabilinu
Bandaríska tenniskonan Mart-
ina Navratilova þarf ekki að
hafa áhyggjur af peningaleysi í
framtíðinni og reyndar varla
þann tíma sem hún á eftir ólif-
aðan. Þessi heimsfræga tennis-
kona hefur nefnilega þénað litl-
ar 50 milljónir íslenskra króna
á yfirstandandi keppnistímabili.
Navratilova hefur því skipað sér
á bekk með tekjuhæstu íþrótta-
mönnum heims.
Navratilova varð heimsfræg
þegar það varð kunnugt að hún
hafði meiri áhuga á veika kyn-
inu en hinu sterka. Hún hefur
látið illt umtal og mikla gagn-
rýni sem vind um eyrun þjóta
og arkar óstöðvandi áfram á
sigurbraut.
Það sem af er yfirstandandi
keppnistímabili hefur Navra-
tilova unnið sér inn um 1,2 millj-
ónir dollara. Landa hennar,
Chris Evert Lloyd, getur einnig
státað af þungri buddu. Hún er
í öðru sætinu með 920 þúsund
dollara eða um 38 milljónir
króna. Það ætti því ekki að væsa
um hana í framtíðinni.
Bandarískar tenniskonur
virðast vera í nokkrum sér-
flokki í heiminum sem stendur.
Af þeim tuttugu sem eru á list-
anum yfir þær tekjuhæstu eru
átta frá Bandaríkjunum eða
tæpur helmingur. - SK.
50 m telpur
13-14 ára
1. Helga Árnad., KR,
2. Fanney Sigurðard., Á,
Langstökk
1. Jóhanna Gunnarsd., ÍR,
2. Eva Sif Heimisd., ÍR,
3. Guðbjörg Svansd., ÍR,
Langstökk
Telpur 13-14 ára
1. Fanney Sigurðard., Á,
2. Guðrún Ásgeirsd., tR,
8,1
8,1
4,86 m.
4,80 m.
4,75 m.
5,53
4.72
Ól.Ui.r.st.
Þróttur og IS
enn taplaus
Þróttur og IS eru enn taplaus á
íslandsmótinu í blaki karla. Önnur
lið hafa tapað tveimur leikjum eða
fleiri.
1 fyrri hluta mótsins berjast liðin
átta um fiögur sæti í úrslitakeppni
sem verður í marsmánuði. Telja
verður Þrótt og ÍS nokkuð örugg
áfram en um hin sætin tvö er grimmt
barist.
Um síðustu helgi voru fiórir leikir.
Þróttur, Reykjavík, sigraði KA, 3-0,
HSK sigraði Þrótt, Neskaupstað,
3-2, Víkingur sigraði Fram, 3-1, og
HK sigraði KA, 3-1. I blaki kvenna
sigraði Þróttur KA, 3-0, og Breiða-
blik sigraði KA, einnig 3-0.
Staðan í blaki karla er þessi:
Þróttur, Rvk.
ÍS
Víkingur
Fram
Sveit HSK bætti metið um
tæplega tvær og hálfa sek.
— Í4x50 metra skriðsundi þar sem Bryndís
Ólafsdóttir setti einnig íslandsmet
Sveit HSK setti í fyrrakvöld ís-
landsmet í 4x5o metra skriðsundi
kvenna er sveitin synti á 1.54:10
og bætti þar með íslandsmet
Vestra frá því um helgina um
tæplega tvær og hálfa sekúndu.
Bryndís Ólafsdóttir synti fyrsta
sprettinn fyrir sveitina og setti
íslandsmet, synti á 27,5 sek. og
bætti met Helgu Sigurðardóttur
um 1/10 úr sekúndu.
Hannes Már Sigurðsson setti
drengjamet i 200 metra skrið-
sundi á innanfélagsmóti Bolung-
arvikur er haldið var í sundhöll
Reykjavíkur. Hann synti á 2.07:20
en gamla metið var 2.07:30. Þá
setti sveit Bolungarvíkur pilta-
met í 4x50 metra skriðsundi á
tímanum 1.48:10. - fros
HSK 3 1 2 5-8 2
HK 3 1 2 4-7 2
KA 6 1 5 7-17 2
Þróttur, Nes. 3 0 3 4-9 0
Staðan í blaki kvenna er þessi:
ÍS 3 3 0 9-2 6
Víkingur 4 3 1 11-5 6
Þróttur 3 2 1 7-3 4
Breiðablik 4 1 3 4-9 2
KA 4 0 4 0-12 0 -KMU.
Veist þú
svarið ?
Svörin við þessum spurningum og
5.994 til viðbótar fáið þið í
spurningaleiknum
Trivial Pursuit
Fæst í bóka- og leikfangaverslunum
um land allt.
„Trivial Pursuit" er skrásett vörumerki. Dreifing á íslandi:
Eskifellhf.,s. 36228.
Leikur frá Horn Abbot. Gefinn út meö leyfi Horn Abbot Intl. Ldt.