Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1985, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1985, Blaðsíða 7
DV. MIÐVIKUDAGUR27. NÓVEMBER1985. 7 Neytendur Neytendur Neytendur Ertu búinn að láta stilla ökuljósin? 911 ökutæki komu í ókeypis ljósastillingu á einni viku. „Á þeirri viku, sem við vorum með þessa ókeypis ljósastillingu, komu hingað 911 bílar,“ sagði Þröstur Brynjólfsson hjá Ingvari Helgasyni hf. en fyrirtækið bauð viðskiptavinum sínum upp á ókeypis ljósastillingu á þeim bílum sem keyptir hafa verið hjá umboð- inu. „Þessi flöldi kom okkur mjög á óvart. Þarna var að finna bíla sem höfðu ekki verið ljósastilltir síðan 1982 og 3. Þessar undirtektir voru miklu betri en okkur hafði dottið í hug,“ sagði Þröstur. - Hvers vegna koma menn ekki með bílana sína til ljósastillingar, er það svona dýrt ? „Það er alls ekki dýrt. Ætli það sé ekki bara hinn víðfrægi trassa- skapur okkar sem verður þess vald- andi að við förum ekki með bílana okkar í ljósastillingu," sagði Þröst- ur. Ljósastillingu bifreiða átti form- lega að vera lokið 1. nóv. sl. Elta uppi eineygða og illa stillta bíia „Það eru enn heilmargir bíleigend- ur sem ekki hafa komið með bíla sína til ljósastillingar. Við reynum að gera þeim viðvart, sérstaklega ef bílamir eru eineygðir og áberandi lélegt ástand á ljósunum," sagði Láms Sveinsson hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins er neytendasíða DV spurði hann hvernig bíleigendur hefðu mætt til ljósaskoðunar. Samkvæmt upplýsingum Lárusar eru bílar og bifhjól á höfuðborgar- svæðinu um 43 þús. talsins en á landinu öllu em bílar og bifhjól um 115 þús. Ljósatími er frá því einni klst. fyrir sólarlag þar til klst. eftir sólampp- rás. Reyndar er okkur ekki kunnugt um nákvæmar tímasetningar sólar- innar en langömggast er að aka með ljós allan sólarhringinn. Ökumenn ættu að hafa í huga að ökuljósin em fýrst og fremst til þess að þeirra eigin bifreiðir sjáist! - Er ekki á leiðinni lögfesting á því að aka með ljósum allan sólar- hringinn ? „Það er a.m.k. í þeim drögum að nýjum umferðarlögum sem liggja fýrir þinginu að ekið sé með ljósum allan sólarhringinn einhvem tíma ársins eða jafnvel allt árið,“ sagði Láms. Þess má geta að ljósastilling kostar á bilinu frá 195 kr. upp í 300 kr. sem kom fram í verðkönnun á ljósastill- ingu á neytendasíðu DV 7. okt. sl. A.Bj. TÍU SLÁTUR EINS OG VENJULEGA Heil og sæl, neytendasíða! Sem betur fer var ekki búið að Jæja, ekki lækkar matarkostnað- kaupa kjötið þar sem það lækkaði urinn en það kemur nú reyndar til svoíverði. af sláturtíðinni. Við tókum tíu Liðurinn „annað" er alltaf jafn- slátur eins og venjulega, segir hár (er rúmlega 36 þús. kr.). Þar m.a. í bréfi frá húsmóður á Akur- ber hæst afborgun á bíl upp á 11 eyri. þús. kr., en hún er sú síðasta. Hún er með rúml. 5700 kr. á mann - A.Bj. að meðaltali í októbermánuði. Góð kaup fýrír kulsækna aðeins 30% útborgun Höfum fengið glæsilegan mokkafatnað jhjh frá Iðnaðardeild Sambandsins til sölu á mjög hagstæðu verði. a W á Aðeins 30% útborgun og eftirstöðvar Jk í þrennu lagi eða staðgreiðsluafsláttur. Tækifæri sem enginn kulsækinn ætti AJk\\Æ\ |/V|nf\l ||> að láta ganga sér úr greipum. Xrlllvll\3É|IÍII/%JIC Greiðslukortaþjónusta. MIKIÐ FYRIR LÍTIÐ ÍTÖLSK GÆÐAVARA KVEN- KULDASKÓR Pósts&ndum WMÉt&ÆúLMM Laugavegi 1 — Sími 1-65-84 Troðfull búð af nýjum, spennandi tískufatnaði! Nýtt úrval daglega! Tískuverslunin X-ið Laugavegi 33

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.