Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1986, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1986, Side 4
4 DV. LAUGARDAGUR11. JANÚAR1986. Ekki fæöst eins fá böm á íslandi síðan 1947 — tala brottfluttra frá landinu500hærri en tala adfluttra Mannfjöldi á íslandi 1. desember síðastliðinn var 241.750 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Fjölgað hafði á einu ári um 0,68 prósenteðaum 1.628 manns. Þetta er talsvert minni fjölgun en hefur verið undanfarin ár. Arið 1984 varð hún 0,95 prósent og 1983 l,16prósent. í hlutfalli við íbúafjöldann varð fólksfjölgunin 1985 hin minnsta um árabil og að frátöldum árunum 1941, 1969 og 1970 raunar minni en nokkurt eitt ár síðan 1918. Nákvæmar tölur um breytingar mannfjöldans liggja ekki fyrir. En svo virðist sem tala brottfluttra hafi orðið um 500 hærri en tala aðfluttra til landsins en tala fæddra um 2.100 til 2.200 umfram tölu lát- inna. Tala brottfluttra umfram aðflutta er svipuð tölum áranna 1979 og 1980 en miklu minni en tölur áranna 1969-1970 og 1975-1977. Árin 1981-1983 fluttust alls um 1.000 manns fieiri til landsins en frá ]>ví. Árið 1984 snerist þessi þróun við. Það ár fluttu um 300 fleiri til útlanda en hingað. Ætla má að á árinu 1985 hafi fæðst um 3.800 böm lifandi. Hafa ekki fæðst svo fá börn á íslandi síðan árið 1947 enda þótt tala kvenna á bameignaraldri hafi tvö- faldast síðan þá. Á þessum áratug hefur það ein- kennt fólksfjölgunina að hún hefur mestöll orðið á höfuðborgarsvæð- inu. Mannfjöldinn þar óx um 1,4 prósent á árinu 1985. Mannfjöldi á öllum öðrum land- svæðum stóð svo að segja í stað nema á Vestfjöðrum. Þar fækkaði fólki um 1,9 prósent. í Bessastaðahreppi varð fólks- fjölgun langörust á landinu eða 6 prósent. Næstmest fjölgaði á Þing- eyri, um 3,5 prósent. Á Skagaströnd fjölgaði fólki um 3,1 prósent. Nágrannasveitarfélög Þingeyrar þurftu hins vegar að þola mestu fólksfækkun á landinu. Á Flateyri fækkaði fólki um 7,9 prósent, á Suðureyri um 6,8 prósent, á Pat- reksfirði um 5,5 prósent og á Bíldudal um 3,8 prósent. Á Helliss- andi og Rifi fækkaði fólki um 5,1 prósent. -KMU. ÚTSALAÁ FIAT-BÍLUM í dag opnar nýja Fiatumboðið á íslandi glæsilegan sýningarsal í Skeifunni 8 en eins og kunnugt er tók Sveinn Egilsson hf. við umboð- inufrá l.janúarsl. Fyrsta verkefni hins nýja umboðs er að selja þá Fiat bíláaf 1985 árgerð sem til eru í landinu. Eru þetta um hundrað bílar af nokkrum gerðum sem seldir verða á útsölu á verulega lækkuðu verði og með góðum greiðslukjörum. Ýmsar nýjungar eru á döfmni hjá Fiat á næstu mánuðum. Aðaláhersl- an verður þó enn sem fyrr lögð á að selja Fiat Uno sem kjörinn var bíll ársins í Evrópu 1984 og varð mest seldi bíllinn hér á landi á því ári. Sölustjóri Fiatumboðsins á íslandi hefur verið ráðinn Bjarni Ólafsson sem starfað hefur í bílgreininni í yfir áratug. Yfir fimm þúsund Fiatbílar eru nú hér á landi. Áhersla verður lögð á að veita þessum bílum sem besta þjónustu. Varahlutaverslun og við- gerðarverkstæði fyrir Fiat verður í Skeifunni 17. SALAN A KOLBEINSEY ORÐIN AÐ HITAMÁLI — Fiskveiðasjóður setti Norður-Þingeyingum skilyrði tilað uppfylla fyrir hádegi á þriðjudag Væntanleg sala Fiskveiðasjóðs á togaranum Kolbeinsey er orðin að hitamáli eftir að Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra lýsti því yfir í Morgunblaðinu i gær að togarinn ætti tvímælalaust að vera áfram á Húsavík, á Raufarhöfn v^-ri allt á hausnum og að undar- legt væri að Þórshafnarbúar ætl- uðu að fara að taka togarann af Húsvíkingum. Oddvitinn á Þórshöfn, Þorkell Guðfinnsson, og sveitarstjórinn á Raufarhöfn, Gunnar Hilmarsson, lýstu báðir furðu sinni á þessum ummælum forsætisráðherra er DV ræddi við þá í gær. „Var það ekki Fiskveiðasjóður sem tók togarann af Húsvikingum að beiðni ríkisstjórnarinnar?“ spurði oddvitinn á Þórshöfn. Sveitarstjórinn á Raufarhöfn sagði ummælin högg fyrir neðan beltisstað frá aðila sem ætti að teljast ábyrgur í þjóðfélaginu. Frystihúsið Jökull hefði kömið jákvætt út á nýliðnu ári. Stjóm Fisl. /eiðasjóðs setti á íúndi sínum i fyrradag Útgerðarfé- lagi Norður-Þingeyinga, sem bauð hæst í togarann, 176 milljónir króna, ákveðin skilyrði sem það yrði að uppfylla um tryggingar og greiðslur á útborgun. Norður- Þingeyingum var gert að s.vara fyrir hádegi á þriðjudag, að sögn Grétars Friðrikssonar, fram- kvæmdastjóra ÚNÞ. „Það ætti að vera ljóst á mánu- dag hvort við uppfyllum þessi skil- yrði,“ sagði Grétar. Óvíst er hvort ÚNÞ tekst að uppfylla skilyrðin. Gunnar Hilm- arsson, stjómarmaður í ÚNÞ, sagði að þau væm sett til þess að hægt yrði að afhenda Húsvíkingum togarann. „Við vitum mjög lítið. Fi. ’:veiða- sjóður hefur ekkert talað við okk- ur,“ sagði Tryggvi Finnsson, stjórnarformaður Ishafs hf. á Húsa- vík, sem átti þriðja hæsta tilboðið í Kolbeinsey, upp á 160 milljónir króna. Útgerðarfélag Akureyringa er á undan Húsvíkingum í röðinni uppfylli Norður-Þingeyingar ekki skilyrði Fiskveiðasjóðs. ÚA bauð um 170 milljónir króna. -KMU. Útsala Alltað 85% afsláttur Opið um helgar Myndin Dalshrauni 13 Hafnarfirði sími 54171. Sjöfn f er ekki í próf- kjörið Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, varaborg- arfulltrúi Alþýðuflokksins í borgar- stjórn, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í næstu borgarstjómar- kosningum. Hún var í öðru sæti í síðustu kosn- ingum. Sjöfn hefur starfað við borg- arstjómarmál í 12 ár. Hún hefur verið borgarfulltrúi í 4 ár og vara- borgarfulltrúi í 8 ár. Frestur til að skrá sig í prófkjör Alþýðuflokksins rennur út 14. jan- úar. Kosið verður um tvö efstu sætin á framboðslistanum. -APH Heldræðirvið KSÍ — kom til landsins í gær V-Þjóðverjinn Sigfrid Held, fyrrum landsliðsmaður V-Þýskalands í knattspyrnu, kom til Islands í gær. Held mun ræða við forráðamenn KSl í dag, en eins og kunnugt er hefur KSÍ auglýst eftir landsliðsþjálfara erlendis. Held lék með landsliði V-Þjóðverja í HM-keppninni í Eng- landi 1966 og í Mexíkó 1970. Það var v-þýska knattspyrnusam- bandið sem mælti með Held við KSI. Umsóknarfrestur vegna landsliðs- þjálfarastarfsins rennur út 1. febrú- ar. Þess má geta að fjölmargir menn hafe sótt um landsliðsþjálfarastarfið. Þar á meðal Ian Ross, þjálfari Vals, ogGordonLee,þjálfari KR. - SOS Skákþing Reykjavíkur: Unglingakeppni að hef jast Keppni í unglingaflokki á Skák- þingi Reykjavíkur 1986 hefst í dag, laugardag, klukkan 14 í Félags- heimili Taflfélags Reykjavíkur að Grensásvegi 44-46. Unglingaflokkurinn er fyrir þá sem eru 14 ára og yrigri. Er öllum heimil þátttaka, drengjum sem stúlkum. Þátttakendur þurfa ekki að vera í Taflfélaginu og nýliðar eru sérstak- lega velkomnir. Ekki þarf að til- kynna þátttöku fyrirfram. I unglingakeppninni verða tefldar 9 umferðir eftir Monradkerfi. Þrjár umferðir verða tefldar hvern laugar- dag, þann 11., 18. og 25. janúar. Sig- urvegarinn hlýtur titilinn Unglinga- skákmeistari Reykjavíkur 1986. Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal og þeir fimm efstu fá verðlaunagripi og bækur. . jq> „Misskilningur ogtilviljun” Blaðinu hefur borist eftirfarandi athugasemd: Síðastliðinn miðvikudag, 08. jan., var í blaði yðar greint frá miklu tjóni sem varð í laxeldisstöð í Höfnum er 40.000 seiði drápust vegna bilunar í vatnsdælu. í undirfyrirsögninni segir að „vakt- fyrirtækið Vari hafi ekki staðið sig sem skyldi“. Eins og fram kemur í greininni er sjálfvirkur aðvörunarbúnaður í fyr- irtækinu sem sendir boð til öryggis- miðstöðvar Vara ef bilanir verða. í því tilfelli sem hér um ræðir komu tvö bilunarboð með stuttu millibili. Öryggismiðstöð Vara gerði aðvart í bæði skiptin en misskilningur og tilviljun ollu því að viðgerðarmaður Laxeldisstöðvarinnar fór ekki á stað- inn í seinna skiptið. Er þar ekki við starfsmenn Vaj-a að sakast. Laxeldisstöðin hefur frá 1982 notið öryggisþjónustu Vara og óskar að gera það áfram enda hefur á þessum tíma margoft verið komið í veg fyrir tjón. Virðingarfyllst, Baldur Á.gústsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.