Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Side 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986.
5
Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra tók sér sög í hönd er framleiðniátakið var kynnt. Ingjaldur Hannibals-
son, forstjóri Iðntæknistofnunarinnar, og Páll Flygenring ráðuneytisstjóri fylgjast vel með handtökum ráð-
herrans. Þetta var fyrsta kennslustundin og nokkrir nemendur námu ráðherratökin. DV-mynd KAE
Skólakynning:
ATAKIFRAMLEIÐNI
Opnum leiðir, eflum iðnað er
yfirskrift kynningar Iðntækni-
stofnunar íslands á mikilvægi
framleiðni fyrir atvinnulífið. Einn
þáttur kynningarinnar fer fram í
öllum grunnskólum landsins.
Þetta skólaverkefni er hluti af
tveggja ára „framleiðniátaki í
skólum". Tilgangurinn er að vekja
unglinga til vitundar um gildi
vinnunnar og fræða þá um upp-
byggingu atvinnulífs í landinu.
Kynningin nær til allra 9. bekkjar-
deilda á landinu. Skólakynning-
unni verður þannig hagað að þrjár
kennslustundir verða í hverjum
skóla. Nemendur verða látnir
spreyta sig á framleiðslu, reikna
út kostnað og arðsemi og velta fyrir
sér markaðs- og vöruþróun. Stjórn-
andi skólaþáttarins verður Valgeir
Guðjónsson. Þetta verkefni er á
vegum iðnaðarráðuneytisins, Al-
þýðusambands íslands, Landssam-
bands iðnaðarmanna, Félags ís-
lenskra iðnrekenda og Iðntækni-
stofnunar sem stýrir átakinu. -ÞG
íslensk stúlka vinnur til
verðlauna í Lundúnum
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttaritara DV í Lundúnum:
Helga Lára Haraldsdóttir, nemandi
í höggmyndalist í Lundúnum, vann
nýverið samkeppni sem haldin var
um gerð á „skúlptúr" fyrir sjúkrahús
hér í borg. Var hugmynd Helgu tekin
fram fyrir tillögur annarra högg-
myndanema, sem tóku þátt í keppn-
inni, og mun hún sjálf vinna að gerð
myndarinnar í sumar.
„Þetta er fimm metra há og eins
metra breið höggmynd sem kemur til
með að standa kringum súlu við
inngang,.sjúkrahússins. Myndin er
af mannlegum formum og ég kem til
með að vinna hana í leir en síðan
verður hún steypt í trefjagler," sagði
Helga Lára í samtali við D V.
Hún stundar nám við City and
Guild School of Art og er þar á þriðja
og síðasta ári.
Þess má geta að nýlega seldi hún
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna í
Grimsby lágmynd fyrir skrifstofu
þeirra.
- KÞ
Útflutninguráfiski:
TVÖFALT VERÐ
MIÐAÐ VIÐ HÉR
Togaramir Karlsefni, ögri og Vigri
frá Reykjavík og Ýmir frá Hafnar-
firði eru þeir togarar sem seldu mest
af afla sínum erlendis á síðasta ári.
Þessir togarar seldu meginhluta
aflakvótans og er Karlsefni með
mestu söluna, alls 1630 tonn.
Þetta kemur fram í svari viðskipta-
ráðherra við fyrirspum Sighvats
Björgvinssonar og Helga Seljans um
ferskfisksútflutning.
Á tímabilinu janúar til loka októb-
er á sl. ári vom flutt út rúmlega 53
þúsund tonn af ferskum fiski. Hlutur
gámafisks var 26,6 þúsund tonn og
fiskur fluttur út með fiskiskipum var
26,5 þúsund tonn. Samkvæmt fiski-
skýrslum, sem ná til september á
síðasta ári, var hlutur þorsks mestur,
eða 40 prósent. Næst kom karfi og
var hlutur hans um 20 prósent. Ýsa
var rúmlega 14,4 prósent og skarkoli
tæp 11 prósent.
I svarinu kemur fram að verð er-
lendis er að jafnaði 80 prósent hærra
en hér á landi. Eins og sölunni hefur
verið háttað að undanfömu gæti
verið um tvöföldun að ræða. -APH
BRÉFIN
BÁRUST
EKKI
TIL KRATA
Starfsmenn Lánasjóðs íslenskra
námsmanna boðuðu tvo fulltrúa
hvers stjómmálaflokks á sinn fund
17. þ.m. I frétt hér í blaðinu af þessum
fundi var þess getið hverjir hefðu
mætt og frá hvaða flokkum. Enginn
fulltrúi Alþýðuflokksins mætti á
þennan fund og var þess getið í frétt-
inni. Nú hefur okkur borist bréf frá
varaformanni Alþýðuflokksins, Jó-
hönnu Sigurðardóttur, og starfs-
mönnum LÍN. I bréfi starfsmanna
LíN kemur fram að boðsending fund-
arboðs náði ekki til Jóns Baldvins
Hannibalssonar, formanns Alþýðu-
flokksins, og varaformannsins en til
þeirra voru tvö bréf stíluð.
Starfsmennimir harma mistökin
og biðjast afsökunar. Fulltrúar Al-
þýðuflokksins eru sérstaklega boðnir
til annars fundar til að bæta úr
mistökunum.
„Okkur mundi henta best ef þessi
fundur gæti orðið eftir kl. 17 sd. þar
sem það er mjög óvinsælt meðal
ráðamanna sjóðsins að við notum
vinnutfma okkar í þessu skyni,“
segja fulltrúar starfsmanna LíN í
bréfi sínu til þingflokks Alþýðu-
flokksins.
-ÞG
IV. MÁNUDAGUR '20. JANÚAR 1986.
Starfsmenn
Lánasjóðsins:
Ræddu við
þingmenn
„Tilgangurinn var að kynna okkar I
sjónarmið í þessu deilumáli, efla |
þingmenn af þekkingu um lánamál-
in,“ sagði Guðmundur Sæmundsson,
fulltrúi starfsmanna Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna. Starfmenn LlN I
boðuðu fúlltrúa þingflokkanna á |
sinn fund í gær. Þrír fulltrúar starfs-
manna sátu fundinn ásamt átta full-
trúum stjómmálaflokkanna. Eng-
inn fulltrúi mætti fyrir Alþýðuflokk-
inn. Fyrir Alþýðubandalagið sat |
Svavar Gestsson fundinn, fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn Friðrik Sophusson og 1
Gunnár G. Schram. Kristín Halld- I
órsdóttir mætti fyrir hönd Kvenna-
listans og tveir aðstoðarmenn ráð-
herra, Jóhann Einvarðsson og Finn- |
ur Ingólfsson, mættu fyrir Fram-
sóknarflokkinn. Stefán Benedikts- I
son og Kristín S. Kvaran mættu fyrir I
Bandalag jafnaðarmanna.
„Þetta var gagnlegur fundur og óg I
held að einhver misskilningur hafl |
horflð,“ sagði fulltrúi starfsmann-
anna.
„Menn skiptust þama á skoðunum I
um stöðuna og framtið sjóðsins,“ I
sagði Friðrik Sophusson, varafor- j
maður Sjálfstæðisflokksins, eftir I
fúndinn. Hann taldi viðræðumar I
gagnlegar. -ÞGI
íslenskir
eymapinnar
Framleiðsla á snyrtipinnum
(eymapinnum) er hafin hér á
landi. Það er nýstofiiað fyrirtæki,
JÓFÓ - G. JÓNSSON OG FOSS -
sem hefur sett upp framleiðslulínu
á þessum vamingi, en fram að
þessu hafa eymapinnar, sem á
markaðnum hafa verið hér á landi,
verið fluttir inn erlendis frá. Fram-
leiðslulína sú er G. JÓNSSON og
FÓSS hefur sett upp í húsnæði
fyrirtækisins i Hafnarfirði er mjög
fúllkomin og afkastagetan er 1000
snyrtipinnar á mínútu. Þá em
ennfremur til staðar fullkomnar
vélar til pökkunar, en hins vegar
sinnir hinn vemdaði vinnustaður
í Kópavogi, örvi, ákveðnum þætti
umbúðamálanna. Dreifing vömnn-
ar er á hendi O. Johnson og Kaa-
ber. JÓFÓ snyrtipinnamir em þeir
ódýmstu sem völ em á og fást þeir
í 100 og 200 stykkja pakkningum
og em á boðstólum í snyrtivöm-
verslunum, nýlenduvömverslun-
um, apótekum og stórmörkuðum.
Guðmundur Jónsson, eigandi
JÓFÓ, sagði að á þeim stutta tíma,
sem liðinn er frá því að framleiðsla
og dreifing JÓFO snyrtipinnanna
hófst, hefði salan gengið vel og
viðskiptavinir verið ánægðir.
ÖRUGGUR
TRAUSTUR
Eigum á lager nýja 4000 Ibs.
rafmagnslyftara, einnig notaða
og uppgerða Yale dísillyftara.
Við útvegum með stuttum fyrirvara allar
gerðir af nýjum eða uppgerðum Yala lyft-
urum á hagstæðu verði. Fyrir öll verkefni.
Reynslan sannar að þeir endast og endast,
lyftararnir frá Yale.
Kentruck pallettu- og lyftivagnar til á lager
á ótrúlega góóu verói.
P VELAV. SIGURJÓNS
" JÓNSSONAR
ARVIK S/F ÁrmÚla 1, sími 687222 Bygg.gaifli, simi 625835.