Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Side 9
DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986.
9
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Símamynd Reuters
SJÖ DAGA
ÞJÓDARSORG
sinna og farið fram á allsherjar rann-
sókn á orsökum slyssins.
Reagan Bandaríkjaforseti talaði til
þjóðar sinnar í beinni útsendingu í
gærkvöldi og fullyrti að þrátt fyrir
hið voveiflega slys yrði framhald á
geimferðaáætlunum Bandaríkjanna.
„Þetta er mesta áfall í sögu geim-
ferðaáætlunarinnar. En við megum
ekki láta bugast. Framtíðin tilheyrir
ekki þeim huglausu heldur þeim
kjarkmiklu," sagði Reagan í ávarpi
sínu í gærkvöldi.
Jesse Moore, vfirmaður banda-
rísku geimferðastofnunarinnar, vís-
aði á bug öllum getgátum um bilanir
í geimferjunni eða að þrýstingur
hefði verið á stofnuninni að skjóta
geimferjunni upp í gær.
Flugtak hafði verið áætlað síðast-
liðinn sunnudag en var frestað um
tvo daga vegna bágra veðurskilyrða
og smávægilegra tæknivandamála,
eins og sagði í tilkynningu stofnun-
arinnar er frestunin var tilkynnt.
Tæknimenn geimferðastofnunar-
innar vinna nú að því að skrá allar
upplýsingar um flug geimferjunnar
fyrir slysið og verður reynt að lesa
úr þeim í dag.
Um borð í geimferjunni er svartur
kassi, svipað og í flugvélum, er skráir
allar upplýsingar um flug ferjunnar.
Sérfræðingar telja þó hverfandi
líkur á að sá kassi finnist nokkurn
tímann.
Fyrirskipuö þjóðarsorg
Harmleikurinn á Canaveralhöfða
var aðalefni og oftast eina fréttaefni
bandarískra sjónvarpsstöðva í gær.
Hvarvetna var fólk felmtri slegið.
Hin örlagaríka geimferð var 25. ferð
bandarískrar geimskutlu út í himin-
geiminn, þar af tíunda ferð Chal-
lenger.
Reagan Bandaríkjaforseti hefur
fyrirskipað þjóðarsorg í Bandaríkj-
unum vegna hins hörmulega at-
burðar.
Bandarískur almenningur var far-
inn að líta á ferðir geimferjanna sem
daglegt brauð á svipaðan hátt og
ferðalag með flugvél héraða á milli
Aðeins 72 sekúndum eftir flugtak á þreföldum hraða hljóðsins springur
Challenger í loft upp og með henni allir sem um borð voru.
og var hættur að kippa sér of mikið
upp við ný flugtök geimskutla frá
Canaveralhöfða.
Ferðin í gær og undirbúningur
hennar hafði þó töluvert verið í
sviðsljósinu undanfarnar vikur.
Til fararinnar hafði valist fyrsti
almenni bandaríski borgarinn er fer
með út í himingeiminn. Christa
McAuliffe, 37 ára gamall félags-
fræðikennari við gagnfræðaskóla í
borginni Concord í New Hampshire,
hafði verið valin úr hópi 11 þúsund
umsækjenda til að fara með Challen-
ger.
Fyrirlestur úr geimnum
Kennari skal það vera, sagði Reag-
an forseti, og skyldi sá halda fyrir-
lestra fyrir milljónir bandarískra og
kanadískra skólabarna á meðan á
geimferðinni stæði.
Á þreföldum hraða hljóðsins, með
yfir hálfa miljón tonna af eldsneyti
um borð, geystist geimferjan upp
bláan Flórídahimininn í augsýn
milljóna er af aðdáun fylgdist með.
Skyndilegur hnykkur á flugstefn-
unni, eldbjarmi og síðan öflug eld-
súla í kjölfarið á hvítum reyk er fylla
virtist andrúmsloftið.
Fagnaðaróp þeirra er með fylgdust
dóu út.
Grandskoðun á sjónvarpsmyndum,
er teknar voru af flugtakinu og
sprengingunni, leiðir í ljós að stél-
rönd á öðrum eldsneytisgeyma geim-
ferjunnar brákast áður en hún
springur í loft upp.
Talsmenn geimferðastofnunarinn-
ar hafa neitað að tjá sig um hugsan-
legar orsakir slyssins þar til frekari
upplýsingar liggja fyrir um flug ferj-
unnar síðustu sekúndurnar.
Foreldrar kennarans og geimfarans Christa McAuliffe, fylgdust spennt og
stolt með geimskotinu í gærmorgun frá Canaveralhöfða. Myndin er tekin í
þann mund er sprenging varð í Challenger og sést angist á andliti þeirra.
Lísa, yngri systir Christa McAuliffe, er þarna ásamt foreldrum sínum.
Leitarflugvélar hafa fundið brak
úr geimferjunni Challenger í Atl-
antshafi undan strönd Flórída. Það
hefur dreifst yfir mikið svæði.
Geimfaramir sjö, er voru um borð
í ferjunni er hún sprakk í loft upp,
klukkan 16.38 að íslenskum tíma í
gær, hafa nú opinberlega verið taldir
af.
Vísindamenn bandarísku geim-
ferðastofnunarinnar segjast engar
ískra geimferða, er vekur fjölmargar
spurningar um framtíð geimferjuá-
ætlunar Bandaríkjanna og því mikil-
vægi er henni var ætlað í geim-
ferðaáætlunum framtíðarinnar.
Rannsókn fyrirskipuð
Sjö tímum eftir slysið staðfesti
John Shultz flugsveitarforingi, yfir-
stjórnandi leitaraðgerða, að fundist
hefði tveggja til þriggja metra langt
hugmyndir hafa um ástæðu þess að
hin hundrað tonna, 1,2 milljarða
dollara geimferja sprakk í loft upp í
16 kílómetra hæð, aðeins 72 sekúnd-
um eftir að henni var skotið á loft.
Hér er um að ræða versta slys í
aldarfjórðungslangri sögu bandar-
brak úr Challanger á hafi úti en
engin merki um afdrif áhafnarinnar.
Shults sagði að leitin héldi áfram
á leitarsvæði um 200 kílómetra norð-
austur af Canaveralhöfða á Flórída.
Bandaríkjamenn hafa nú fryst
frekari ferðaáætlanir geimferja
SORGARFREGNIN
BARST FUÓTT
Fréttin um að Challenger hefði
farist barst eins og eldur í sinu á
meðal bandarísku þjóðarinnar í gær.
Þeir sem ekki fylgdust með beinum
sjónvarpssendingum af geimskotinu
fréttu fljótt að eitthvað hefði farið
úrskeiðis.
Sumir neituðu að trúa því að geim-
skutlan hefði farist.
Gangastúlkur á sjúkrahúsi í New
York hlupu fram á ganga, gripu um
handleggi þeirra er áttu leið framhjá
og bentu þeim felmtri slegnar á
skelfilega eldsúlu á sjónvarpsskerm-
inum.
í stórborgum lögðust kaupahallar-
viðskipti að mestu niður. „Eg er ekki
í skapi til að standa í kaupum og
sölum núna,“ sagði einn viðskipta-
vinurinn og fylgdist ásamt hundruð-
um annarra af andakt með sjón-
varpsmyndum frá Canaveralhöfða.
í Pasadena í Kaliforníu frestuðu
geimvísindamenn blaðamannafundi
þar sem fjalla átti um árangur Voya-
ger geimfarsins í ferð sinni til Úran-
usar.
Á neðanjarðarstöð í Manhattan
hristi ungur maður höfuðið eftir að
hann heyrði tíðindin, „Ég bara trúi
þessu ekki,“ sagði hann, „ég hélt að
þessar geimferðir væru orðnar eins
reglubundnar og öruggar og venju-
legtflug".
Umsjón:
Guðmundur Pétursson og
Hannes Heimisson
Nemendur Christa McAuliffe, heima í borginni Concord í New Hampshire, fylgdust glöð saman með uppáhalds-
kennara sinum í beinni útsendingu. Gleði þeirra var skammvinn. _____ T . _________