Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Page 18
18
DV. MIÐ VIKUDAGUR 29. JANÚAR1986.
ASTUTTBUXUM
UMBORD
Flóabáturinn Drangur frá Akur-
eyri er í leigu hjá vöruflutningafyrir-
tæki í Flórída. Leigutíminn er 6
mánuðir og á Drangur eftir að dvelja
3 mánuði í þessari sól skinsparadís.
Drangur heldur sig mest á Karíba-
hafmu og flytur allt frá rúsínum upp
í neglda skó, samkvæmt upplýsing-
um DV. íslensku skipverjamir 4
spóka sig á stuttbuxum um borð,
„hafa það gott og fitna“, sagði einn
heimildarmaður blaðsins.
Ástæðan fyrir því að Drangur er
ekki í flutningum hér heima er verk-
efnaskortur.,, Það er ekkert að gera
hér fyrir svona sérhæfð flutninga-
skip á vetuma."
Að sögn er hægt að græða vel á
því að leigja skip á þennan hátt,
„markaðurinn ræður því hvort hagn-
aður er af þessu eða ekki. Stundum
getur verið betra að leggja skipum
en leigja þau, “ sagði sami heimildar-
maður.
-KB
—....... ->
Flóabáturinn Drangur er í leigu á
Flórída. Núna er hann á Karibahaf-
inu að flytja rúsínur eða neglda skó
milli staða. íslensk áhöfn er um borð.
Mun hún spóka sig um á stuttbuxum
og fitna þama í sólinni.
er
blaðið!
Neskaupstaður:
Húsmæður
sýna
föt
Frá Þorgerði Malmquist, fréttarit-
ara DV í Neskaupstað:
Tískusýning var nýlega haldin hér
í Neskaupstað. Var sýnd nýjasta
tíska í fötum, hárgreiðslu og snyrti-
vörum.
Það vom Lilja Bára snyrtisérfræð-
ingur og Hanna Stína hárgreiðslu-
meistari sem stóðu fyrir þessari sýn-
ingu. Fötin, sem sýnd voru, komu frá
versluninni First í Hafnafirði og
sýndu húsmæður í Neskaupstað þau.
Húsfyllir var í Hótel Egilsbúð þar
sem boðið var upp á kaffihlaðborð.
Vakti tískusýningin mikla hrifningu
hjá gestum, enda kærkomin tilbreyt-
ing.
Mun hærra
verð ffyrir
loðnuhrogn
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hefur gert samning við japanska
kaupendur um sölu á um það bil 2.500
smálestum af frystum loðnuhrogn-
um, að því er fram kemur í frétt frá
fyrirtækinu.
Fyrir hverja smálest fær Sölumið-
stöðin 1.750 dollara. Er það um 30
prósent hærra verð en selt var á til
Japans á síðastliðnu ári.
Heildarverðmæti loðnuhrognanna,
samkvæmt þessum samningi, er 185,5
milljónir króna.
-KMU
Artemis
UTSOLUSTAÐUR:
_ fan
Glæsibæ
Álfheimum 74 s: 33355