Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Side 36
36 DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986. Sviðsljós_____________Sviðsljós_____________Sviðsljós____________Sviðsljós Svii Hún býr í Santa Monica en um helgar dvelur fjölskyldan í húsinu í Santa Barbara. Börnin eru tvö, Troy, tólf ára, og Vanessa, sautján ára, og svo er einn eiginmaður, Tom Hayden, á óræðum aldri. Þau eyða eins miklum tíma saman og mögu- legt er og lifa ósköp venjulegu fjö- skyldulífi, elda matinn sjálf og taka til í húsinu - engar postulínsbrúður áþeimbænum. Fertug og i tullu fjöri, Jane Fonda i helgarhúsinu í hliöum Santa Barbara í Kaliforníu. „ Um fertugt byrjar lífið fyrst," segir Jane ákveðin að vanda. „Þú ert ekkert annað en það sem þú lætur ofan í þig og átt völina, viltu vera sprækur og hraustur og halda kjör- þyngd eða misþyrma skrokknum með röngu mataræði og hreyfing- arleysi." Og þá höfum við það. j hillunum fyrirfinnst allt sem stjarnan notar daglega. Stofuborðið er bæði ágætt til þess að borða við og sem vinnuborð é annan máta. Leikkonan Jane Fonda er gerð úr öðru efni en annað fólk og því skal engan undra að nýlega gaf hún frá sér þá yfirlýsingu að núna fyrst - fertug - væri hún komin á besta aldurinn í lífinu. „Hálfnuð lífs- ganga," segir Jane eitilhress og hendist um allt eins og súperbolti. Síðasta kvikmyndin hennar, Agnes, barn Guðs, sannar að líklega hefur hún laukrétt fyrir sér. Fonda á fullum krafti ...og ennþá tveir... Víkingur Arnórsson, yfirlæknir á barnadeild Landspítalans, og Árni Bjömsson, yfirlæknir á lýtalækningadeild sama spítala. Þarna var talan komin upp í þrjá, Stefán Hreiðarsson barnalæknir, Guðjón Magnússon aðstoðarlæknir og Gestur Pálsson barnalæknir. Læknar lyftu brúnum fyrir skömmu og héldu árshátíð í Átthagasal Hótel Sögu. Margt var um manninn, gestir greinilega harðákveðnir í því að skemmta sér og gleyma öllum læknisleikjum hversdagsleikans. I þessari stétt eru margir ágætir dansarar og þeir sporléttu svifu hvíldar- laust úr á gólfið - aldur varð ekki nokkrum til trafala á þeim vettvangi. Við borðin myndaðist á köflum þetta einkennilega tveir og tveir þema með einstaka þrenningum inn á milli. Stórt hringborð í horni þéttsetið hressu fólki var áberandi stílbrot á staðnum. Á meðfylgjandi DV-mynd- um, sem KAE tók á staðnum, sést aðeins örlítið brot gestanna og glimt andrúmsloftsins sem gilti með hinum líknandi höndum þetta kvöldið. Þeir sátu tveir og tvelr... Friörik Karlsson, framkvæmdastjóri Domus Medica, og Arinbjörn Kolbeinsson, prófessor i sýklafræði. ...og tveir... Baldur Johnsen læknir og „faðir Reykjalundar", Oddur Ólafsson. Þrenning líka, Þóra Árnadóttir á tali viö öm Bjarnason, lækni og ritstjóra Læknablaðsins, og Bjarna Jóns- son, fyrrum yfirlækni á Landakoti. Læknar og starfsfólk spítalanna - Birna Þórðardóttir, starfsmaöur á skrifstofu Læknafélagsins, og til hliðar læknamir Pétur Lúövfksson og Lúðvík Ólafsson. DV-myndir KAE.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.