Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1986, Page 17
DV. FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR1986
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
*
Dollari
í stað
krónu
Gústi skrifar:
Burtséð frá þvi að sumir eru alltaf
að æsa sig út af engu sem máli
skiptir þá finnst mér rétt að skrifa
í blöðin þegar þörf er á góðu inn-
leggi í einhverja mikilvæga um-
ræðu. Maður nokkur skrifaði í
Morgunblaðið fyrir nokkru og vildi
láta afnema íslenska gjaldmiðilinn.
Hann færði fyrir því svo góð rök
að mér er til efs að jafngóður mál-
flutningur hafi sést á prenti undan-
farna mánuði.
Því miður hefur verið hljótt um
þetta mál síðan leiðari Morgun-
blaðsins kvað manninn landráða-
mann. En þar held ég að leiðara-
höfundur hafi ekki verið nógu
hagsýnn því auðvitað er það ekki
nema sjálfsagt hagkvæmnimál að
taka upp dollara í stað islensku
krónunnar sem er nú orðin eitt
mesta vandræðabam þjóðarinnar.
Á að henda íslensku krónunni? Gústi leggur það til.
'%x
Af hverju
er erfitt
að ná?
Jóhann Hjálmarsson skrifar:
Óánægður símnotandi skrifar i DV
og kvartar yfir lélegri þjónustu Póst-
og símamálastofnunarinnar. Hann
spyr hvers vegna það sé næstum
ófært að hringja úr Breiðholti milli
klukkan 19 og 20 og segir að oft taki
langan tima að fá línu niður í bæ.
Á þessu tímabili, sem símnotand-
inn tilgreinir, er oft mikið álag á
símalínum. Þá getur tekið lengri
tíma að ná sambandi.
Fyrir skömmu var unnið við breyt-
ingar vegna línufiölgunar í Breið-
holtsstöð og minnkaði þá afkasta-
geta stöðvarinnar lítillega meðan á
þeim stóð.
Dagskrá sjónvarpsins virðist ráða
miklu um álag símans. Frá kl.
19.30-20 er síminn mikið notaður og
einnig þegar dagskráin vekur ekki
nægilegan áhuga sjónvarpsáhorf-
enda.
r
Israelar
ogarabar
systkinabörn
V.skrifar:
Athugið það, kæru vinir, að þegar
verið er að tala um hryðjuverkamenn
að ísraelar og arabar eru í raun
systkinabörn, en ágreiningurinn er
meðal annars vegna þess að móðir
araba var ambátt og fékk því engan
arf. Mér er spurn hvort ágreiningur
þessara þjóða stafi ekki af kven-
rembu einni saman. ísraelar lánuðu
svo aröbum peninga og heimtuðu
vexti en vextir eru bannaðir í Arab-
alöndum. Múhameð varð einmitt
vinsæll vegna þess að hann bannaði
þá. Að mörgu er að hyggja.
Á BLAÐSÖLUSTÖÐUM
Upplifi fólk mikið
eins og músík
Viötal viö Steinunni Sigurðardóttur
rithöfund
Lífsreynsla:
Trompetinn þagnaður
í vélarrúminu
Kristján Magnússon segir frá sjávarháska
Er guð til?
Þrír íslendingar svara spurningunni