Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Blaðsíða 3
DV, FLMMTUDAGUR 3. AijRÍL198(i, 3 Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Notendum heymartækja hefurfjölgað mikið -ásama tíma og fjármagnfrá ríki hefur snarminnkað Eins og hefur komið fram í DV er biðtími eftir heymartækjum átta mánuðir. Ástandið er orðið mjög slæmt vegna þess að ekki hefur fengist nægileg fjárveiting til að kaupa og leysa út úr tolli heyrnar- tæki fyrir aldrað fólk sem liggja nú á hafnarbakkanum í Reykjavík. „Jú, það er rétt að ein aðalástæðan fyrir þessu er að fjárveiting hefur minnkað. Fjárveiting var 7,5 millj- ónir í fyrra en nú er hún 8,5 milljón- ir,“ sagði Ingimar Sigurðarson hjá heilbrigðisráðuneytinu. Ingimar sagði að á sama tíma og fjárveiting heföi farið snarminnk- andi heföi ellilifeyrisþegum fjölgað sem notfærðu sér þessa tækni. „Þá höfum við alls ekki fengið þá fyrir- greiðslu til kaupa á heymartækjum sem áætluð var í upphafi. Þ.e.a.s. að koma okkur upp góðum lager af heymartækjum," sagði Ingimar. Þess má geta að Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðisráðherra sendi Þorsteini Pálssyni fjármála- ráðherra bréf fyrir fjórum vikum þar sem farið var fram á aukna fjárveitingu í sambandi við kaup á heymartækjum. Ekkert svar hefur borist enn frá fjármáfaráðuneytinu. „Við þurfum ekki minna en 1,5 til 3 milljónir kr. til viðbótar við 8,5 milljónimar til að halda í horfinu. Þrjár milljónir til viðbótar við þá upphæð til að koma upp lager af heymartækjum, eins og fýrirhugað var,“ sagði Ingimar. Ingimar sagði að Heymarhjálp heföi verið hjálpleg i sambandi við innkaup á heymartækjum. „Heym- arhjálp hefur hlaupið undir bagga og bjargað því sem hægt hefúr verið að bjarga,“ sagði Ingimar. -sos Vörubifreiðin, sem ók aftan á hinn kyrrstæða vömbíl, skemmdist mikið eins og sést á myndinni. DV-mynd Heiðar Baldursson. Bifreiðin gjörónýt Eins og DV hefur sagt frá þá var bifreið af gerðinni Suzuki ýtt fram af Vogastapa. Bifreiðinni var stolið. Hér á myndinni sést bifreiðin eftir að henni var náð upp. Hún er gjörónýt. DV-mynd Heiðar Baldursson. --Jl Stuldur á endurskins- merki olli hörðum árekstri Mjög harður árekstur varð á Reykjanesbrautinni, rétt fyrir ofan afleggjarann til Innri-Njarðvíkur, á mánudagskvöldið. Vörubifreið ók aftan á kyrrstæða vörubifreið og síð- an ók fólksbifreið aftan á vörubifreið- ina. Miklar skemmdir urðu á bílun- um. Að sögn lögreglunnar í Keflavík, þá festist hin kyrrstæða vörubifreið, sem var fullhlaðin af loðnu, í bremsu. Það tókst ekki að fjarlægja hana þrátt fyrir að reynt væri með krana- bíl. Vörubifreiðin haggaðist ekki. Lögreglan setti þá endurskinsþrí- hyming fyrir aftan bifreiðina, til að aðvara ökumenn sem áttu leið um Reykjanesbrautina. Endurskins- merkinu var stolið, þannig að öku- maður vörubifreiðarinnar, sem ók aftan á hina kyrrstæðu bifreið, sá hana ekki í myrkrinu. Óhappið átti sér stað kl. 22.17 á mánudagskvöldið. Sem betur fer urðu ekki alvarieg meiðsli á mönnum í bifreiðunum. -sos Einnig skemmdist fólksbifreiðin, sem ók aftan á vörubifreiðina, mikið. DV-mynd Heiðar Baldursson. Fullur í flugtaki -hentút Þota Flugleiða á leið frá Keflavík urðu lyktir þær að lögreglan var norður á Akureyri tafðist nokkuð á kvödd út á brautarenda og söng- brautarenda Keflavíkurflugvallar fúglinn leiddur út úr vélinni. Síðan um daginn. Þotan var tilbúin til var farið í loftið. flugtaks, hreyflar ræstir, þegar einn farþeginn hóf að syngja af þvílíkum „Ég held að maðurinn hafi verið krafti að flugstjórinn taldi ekki komin í páskaskap," sagði Jón ráðlegt að leggja í loftið. Óskarsson, stöðvarstjóri Flugleiða Þrátt fyrir ítrekuð tihnæli neitaði á Keflavíkurflugvelli. farþcginn að hætta söngnum og -EIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.