Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Blaðsíða 36
36
DV. FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986.
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
>
Ólyginn
sagði...
Jackie
Onassis
þarf að fara að drífa þriðju hjóna-
vígsluna af í hvelli. Maurice
Templeton heitir sá útvaldi en
hann er margmilljóneri og illi-
lega heilsubilaður. Þrjú hjartaá-
föll á síðasta ári ýta á eftir Jackie
því það er lítið gagn að látnum
auðkýfingi ef pappírarnir hafa
ekki verið rétt útfylltir.
Mikhail
Baryshnikov
þarf ekki að hafa áhyggjur af því
að haldast ekki í formi. Tölva í
Bandaríkjunum reiknaði það út
að kappinn hefði flogið samtals
250 kílómetra á síðasta ári - það
er að segja á sviði.
Nathalie
Stenmark
er ekki dóttir föður síns fyrir
ekki neitt. Þetta tveggja ára
afkvæmi skíðakappans Ingemars
Stenmark blómstrar nú í Kitz-
buhel og sýnist þar ekki síður á
heimavelli í skíðabrekkunum en
hennar frægi faðir.
Marie Lebey
er frönsk leikkona sem sknfað
hefur bók um ástarævintýri sitt
með fyrrum íranskeisara - Reza
Pahlevi. Hún var sautján ára
þegar hún féll fyrir þessum land-
flótta þjóðhöfðingja og zarinn var
fljótur að koma henni fyrir í
strangri gæslu í einni af sínum
stóru höllum. Þar var Marie
innilokuð bestu ár æyinnar og
reynir að gera.upp gamlar sakir
tíuáruro siðar með bókarskrifum.
Ekki
frá
Texas
Jú, mikið rétt, þetta er Ómar
karlinn Sharif með dömu - þó ekki
þessa frá Texas. Hann lítur víst
ekki við hóteldömum.
Daman heitir Jan Malmsjö ög
þessir tveir eru perluvinir frá
myndatökunum í Rússíá héma um
árið.
Heimsinsdýr-
ustu bobbingar
Eitt er borðleggjandi - bobbingarn-
ir.á Dolly Parton eru þeir heimsins
dýrustu.
Þessi heimsfrægu vörumerki
stjörnunnar hafa nú verið tryggð hjá
Lloyd’s í Londön fyrir hvorki meira
né minna en 45 milljónir króna -
stykkið!
Hjónin elskulegu - Sean Penn og
Madonna.
Næst lá Ijósmyndarinn í götunni og
herra Madonna lúskraði duglega á
honum með skóinn sinn sem barefli.
Frúin fylgist með af áhuga.
Stefania af Mónakó mætti á svæðiö í Paris -
fullgölluð i rauðu, svörtu og gylltu og fylg-
darliðið I sömu litunum.
Á Grand í París
og Borg
i Reykjavik
Forstjpri Helenu Rubinsteín, Claude Ury, Victorla Brynner og
Mala Rubinstein í hófinu á Grand hótel í París. Victoria heldur
áfyrsta ilmvatnsglasinu.
...V..■.....................'----"L * #....................*..g...L.r. '
Hótel Borg fylltist af pniðhúnu
fólki fyrir skömmu, allir klæddir
rauðu, gylltu og svörtu. Þetta sama
gerðist á þessum tíma í fyrra á
Grand Hótel í Parísarborg og ge-
stirnir þar ekki ómerkara fólk en
d’Estaing fjölskyldan, Rotschild-
arnir og Mónakófamilían. Allar
helstu hefðardúllumar létu sig
ekki vanta.
Nýtt ilmvatn
Orsökin fvrir öllu tilstandinu er
nýtt ilmvatn sem er að koma á
markaðinn frá því gamalgróna
fyrirtæki Helenu Rubinstein. Dótt-
ir Yul Brynner sá um að kynna
ilmvatnið og við fyrstu flöskunni
tók eiginkona borgarstjórans svo
sem venja er við slík tækifæri. Og
gömlu Rubinsteinlitirnir voru á
klæðum gestanna - rautt, gyllt og
svart.
Millifyrirsögn:
Á hjara veraldar
Héma á Islandi kynnti umboðsað-
ili Helenu Rubinstein Terma sf.
- hið nýja ilmvatn sem heitir Ba-
rynia. Boðið var til veislu á Hótel
Borg, klæðnaður í sömu Rubin-
steinlitunum og forstjóri fyrirtæk-
isins í Þýskalandi skýrði frá iim-
vatnsgerðinni. Sagði það skoðun
margra að auðvelt væri að skapa
nýtt ilmvatn, bara að opna flösku
með ilmvatninu sem allir elska -
ekkert mál. En það er víst ekki svo
einfalt því að baki liggja margra
ára rannsóknir og tilraunastarf-
semi þar til menn koma sér niður
á endanlegt val ilmsins.
Fyrsta flaskan
í samræmi við frönsku hefðina var
fyrsta flaskan afhent borgar-
stjórafrúnni, Ástríði Thorarensen.
Borinn var fram matur. vídeómynd
fræddi frekar um Barynia og gest-
unum gefið glas til þess að prófa
ilminn. Innan tíðar ilmaði Hótel
Borg af hinum eina rétta ilmi þetta
kvöldið og minnti á dýrðarljómann
sem umlykur stjörnurnar úti í
hinumstóraheimi.
Borgarstjórafrúin i Reykjavík, Ástriður Thorarensen, Jóhanna Birgisdóttir, ritstjóri tiskublaðsins Stils, og
tekur á móti fyrsta ilmvatnsglasinu úr hendl Sólrúnar Angela Otto frá Helenu Rubinstein i Þýskaiandi.
Sævarsdóttur, eiganda Termu.
Gestum var afhent Barynia að gjöf - Þórhildur Karls-
dóttir, Ingunn Björnsdóttir og Guðlaug Guðmunds-
dóttir.
Það var skálað fyrir nýjum ilmi á markaðnum -
Sigríður Guðjónsdóttir, Ulfar Teitsson, Guðmundur
Sigurðsson, Inga Birna Úlfarsdóttir og Guðrún In-
gólfsdóttir. DV-myndir KAE.