Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Blaðsíða 5
DV. FIMMTUDAGUR 3. APRlL 1986. 5 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Frumvarp um umboðsmann Alþingis: TEKUR VIÐ KVÖRTUNUM Á HENDUR OPINBERUM AÐILUM Lagt hefur verið fram frumvarp um svokallaðan umboðsmann Al- þingis. Honum er ætlað það hlut- verk að koma í veg fyrir að menn séu beittir rangindum af hálfu opin- berra aðila og stuðla þannig að bættri stjórnsýslu í landinu. Gunn- ar G. Schram er fyrsti flutningsmað- ur frumvarpsins ásamt Pétri Sig- urðssyni, Ellert B. Schram og Frið- riki Sophussyni. Hugmynd um umboðsmann Al- þingis er ekki ný. Allt frá árinu 1972 hefur þessi hugmynd verið rædd en aldrei hefur tekist að koma henni í framkvæmd. í greinargerð með frumvarpinu segir að í mörgum nágrannalöndum okkar, þar sem slíkir umboðsmenn starfa, sé talið að þetta embætti sé mikilvægur þáttur í réttarríkinu. I greinargerðinni segir: Umboðsmað- ur er embættismaður sem tekur við kvörtunum á hendur opinberum stjórnvöldum og sýslumönnum frá fólki sem þykir misgert við sig. Umboðsmaðurinn rannsakar þessar kvartanir og ef þær skoðast á rökum reistar leggur hann til hvað sé til bóta því sem áfátt er. Jafnframt því að leysa þannig úr vandræðum manna er hlutverk hans að stuðla almennt að bættri stjórnsýslu. -APH Selurinn vefst fyrir þingmönnum Mjög skiptar skoðanir virðast undir landbúnaðarráðuneytinu. vera um stjórnarfrumvarp um sel- Ólafur Þórðarson varaði hins vegar veiðar við ísland. Frumvarpið var mjög við því að gengið yrði á sela- tekið til fyrstu umræðu í neðri deild stofninn. Hann efaðist einnig mjög í gær. Það er samhljóða frumvarpi um þær kenningar að samhengi sem ekki tókst að afgreiða á síðasta væri á milli hingorms og fjölda sela þingi. Þá haföi neðri deild Alþingis hérviðland. samþykkt frumvarpið en á síðasta Guðmundur J. Guðmundsson, degi þingsins mætti það andstöðu í Alþýöubandalagi, studdi frumvarp- efri deild og varð samkomulag þá ið hins vegar heils hugar. Hann um að fresta afgreiðslu þess. sagði að það gengi ekki lengur að Frumvarpið gerir ráð fyrir að þetta mál væri að vefjst fyrir þing- sjávarútvegsráðuneytið hafi yfír- mönnum. Það væri Alþingi til van- umsjónallramálaerselveiðarvarð- sæmdar að vera ekki búið að af- ar. Fram að þessu hafa selveiðar greiða það. Það væri ekkert vafa- fallið undir stjóm landbúnaðar- mál að tengsl væru milli hringorms ráðuneytisins. í fiski og fjölda sela. Hringormurinn Stjórnarþingmennirnir Pálmi heföi þegar kostað þjóðina hundruð Jónsson og Olafur Þ. Þórðarson milljóna og þvi nauðsynlegt að gera lögðust gegn frumvarpinu á Alþingi eitthvað róttækt í þessu máli. Hér í gær. Pálmi á þeirri forsendu að væri um grundvallaratvinnuveg stjóm þessara mála ætti að vera okkaraðræða. Lánasjóðsfrum- varpiðísalt Nú þykir orðið Ijóst að nýtt frum- námslán, hertar endurgreiðsluregl- varp menntamálaráðherru um ur og flokkun náms í hagnýtt nám Lánasjóð íslenskra. námsmanna og ekki hagnýtt, sem ekki hafa átt verður ekki lagt fram á þessu þingi. hljómgrunn meðal framsóknar- Líklegast þykir að skipuð verði manna. nefnd til að falla lun hugsanlegar Framsóknarmenn, sem DV hefur breytingar á lögum lánasjóðsins og rætt við, benda á að lögin heimili henni ætlað að fjalla um málið í ráðherra nokkuð víðtækar breyt- sumar. ingar á reglugerðinni um námslánin án þess að til lagabreytinga þurfi Frumvarpið, sem reyndar hefur að koma. Þessa heimild telja þeir aldrei litið dagsins ljós fúllgert, vera næga að sinni en eru tilbúnir hefur fengið dræmar undirtektir í til að ræða aðrar breytingar í nefnd þingflokki framsóknarmanna. Það þeirri sem líkiega verður skipuð í eru sérstaklega hugmyndir mennta- sumar. málaráðherra að setja vexti á -APH Hér sjáum við tvo oddvita bera saman bækur sínar. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra hlustar áhuga- samur á Þorvald Garðar Kristjánsson, forseta sameinaðs Alþingis. Ekki er ólíklegt að þeir séu að ræða um hvaða þingmál eigi að afgreiða fyrir þinglok. DV-mynd GVA COSmKLSQL- Ibúðir og hótel með mat á hreint ótrúlega lágu verði. NU Beint leiguflug 1 sólina Aðrar ferðir okkar: Malta, Grikkland, Landið helga Egyptaland, 21 dagur í október Kina, Hong Kong og Thai iagar í nóvember. °g

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.