Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Blaðsíða 22
22 DV. FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Vésteinn og Siggi Einars meðal þeiira bestu í heimi Frá Ólafí Guðgeirssyni, frétta- manni DV í Bandarikjunum. „Hingað til hafa krakkarnir rúllað gegnum mótin eins og á æfingum en nú verður farið að taka á,“ sagði Þráinn Hafsteinsson, þjálfari við Tuscaloosa-háskólann í Alabama hér í Bandarikjunum, og það voru orð að sönnu því um páskahelgina náði íslenska frjálsíþróttafólkið snjöllum árangri eins og skýrt var frá í blaðinu ígær. í háskólanum í Alabama stundar hópur Islendinga nám, þar á meðal eru tíu frjálsíþróttamenn sem getið hafa sér góðan orðstír. Þráinn Haf- steinsson er þjálfari eins og áður segir og kona hans, Þórdís Gísladótt- ir, æfir þar þó hún hafi lokið námi við skólann. Guðmundur Skúlason hefur enn ekki keppt vegna anna við nám en Vésteinn Hafsteinsson, Egg- ert Bogason, Sigurður Einarsson, Kristján Harðarson, Iris Grönfeldt, Ragnheiður Ólafsdóttir og Bryndís Hólm eru komin á fulla ferðóg stefna að því að vera í toppþjálfun um mánaðamótin maí -júní. Snemma í mars var síðasta innan- hússmót keppnistímabilsins, svo- kallað South-Eastern Conference (SEC) og þær Bryndís og Ragnheiður áttu þátt í því að kvennalið Alabama vann SEC-meistaratitiIinn. En naumt var það, einn þriðji úr stigi betra en Louisiana State University. Ragnheiður, sem nýlega er byrjuð að æfa aftur eftir tveggja ára hvíld, mest vegna meiðsla, keppti í tveggja mílna boðhlaupi. Sveit Alabama varð í þriðja sæti í hlaupinu. Þá varð Ragnhéiður í sjötta sæti í 800 m hlaupi á 2:16 mín. Bryndís stökk 5,54 m í langstökki og 1,64 m í hástökki. Eggert og Vésteinn komust báðir í úrslit í kúluvarpi. Eggert varpaði 18,13 m, sem er besti árangur hans í kúluvarpi. Hann varð í fimmta sæti. Vésteinn varpaði 17,31 m. Kúluvarp- Eggert, Sigurður, Vésteinn og íris Grönfeldt hafa tryggt sér rétt til að keppa á bandaríska háskólameist- aramótinu, sem verður háð í Indiana 3.-9. júní. Þá hafa þeir Eggert og Vésteinn einnig náð lágmörkum í sinum greinum til þátttöku á Evr- ópumeistaramótinu í Stuttgart í Vestur-Þýskalandi í ágúst í sumar. Árangur Vésteins á mótinu sl. laug- ardag, 63,98 m er sennilega besti árangur í heiminum í kringlukasti í ár. -hsím íslenska frjálsíþróttafólkið í Alabama. Fremri röð frá vinstri: Ragnheiður, Bryndís, Þórdís og íris. Efri röð: Þráinn, Eggert, Guðmundur, Kristján og Eggert. DV-mynd ÓG, Alabama. ið er aukagrein hjá honum. Þá má geta þess að Sigurður Einarsson hefur kastað nýja spjótinu 76,18 m. Það er einn besti árangur í Banda- ríkjunum í ár. Þyngdarpunkturinn á nýja spjótinu er fimm sentímetrum framar en áður, sem gerir það að verkum að árangur er rúmlega 10% lakari en með gömlu gerðinni. Þráinn og Kristján á æfingu í Alabama. DV-mynd ÓG. Lugi sló Dyn- amo Berlin út - í IHF-keppninni í handbolta. Stinga lék á ný með Steaua ísigri á Redbergslid Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttarit- ara DV í Sviþjóð: Sænska liðið Lugi, mótherjar Vals í IHF keppninni í vetur, komu mjög á óvart með því að slá út a-þýska liðið Dynamo Berlin er liðin léku seinni leik sinn í keppninni í Svíþjóð. A-þýska liðið vann fyrri leik lið- anna í A-Berlín með þremur mörk- um, 25-22, en sænska liðið sigraði í síðari leiknum, 21-18, án nokkurra af sínum bestu mönnum, sem eru meiddir, og komst áfram á fleiri l^nörkum skoruðum á útivelli. Redbergslid, sænsku meistararnir sem léku gegn FH, féllu úr Evrópu- keppni meistaraliða um helgina. Liðið tapaði síðari leik sínum gegn rúmenska liðinu Steaua frá Búkar- est, 32-24, en rúmenska liðið vann einnig fyrri leikinn í Svíþjóð, þá með einu marki. Þess má geta að flestir leikmenn Steaua eru einnig rúm- enskir landsliðsmenn og Stinga, sem sama og ekkert gat leikið með Rúmeníu á HM, lék nú með á ný og átti góðan leik. -fros^ Isakovic og Vukovic til Þýskalands fyrir metfé - Fleiri heimsmeistarar á faraldsfæti • Bjarni Friðriksson hreppti silfur- verðlaunin í 95 kg flokki á Norður- landamótinu. Þrjú silfur og eitt brons - hjá íslendingum á NM íjúdó íslenskir júdómenn hlutu þrjú silf- urverðlaun og ein bronsverðlaun á Norðurlandameistaramótinu í júdó sem fram fór um helgina. Sigurður Hauksson lenti í öðru <sæti í opnum flokki og varð þriðji í + 95 kg flokki. Bjarni Friðriksson varð í örðru sæti i -95 kg flokki og Magnús Hauksson hlaut annað sætið í-86kg flokki. Finnar unnu sigur í sveitakeppn- inni, Svíar urðu í öðru sæti, Norð- menn í þriðja, íslendingar í fjórða og Danir þurftu að sætta sig við neðsta sætið. -fros Framhefur titilvömina í kvöld Annar leikurinn á Reykjavikur- mótinu í knattspyrnu fer fram á gervigrasinu i Laugardal i kvöld en þá leika Framarar, núverandi Reykjavikurmeistarar, gegn KR-ing- um. Yfirleitt hefur verið litið á Reykja- víkurmótið sem nokkurs konar æf- ingamót en þó hafa margir leikir á mótinu verið skemmtilegir á undan- fömum árum og að þessu sinni má búast við skemmtilegu móti. Næsti leikur, eftir leikinn í kvöld, fer fram á sunnudag en þá leika Víkingur og Valur. A þriðjudaginn leika síðan Fram og Fylkir. -SK • Sverrir Einarsson, fyrirliði Fram, hampar hér bikarnum eftir sigur Fram í Reykjavíkurmótinu í fyrra. Skólakeppni Skólakeppni Fijálsíþróttasam- bandsins 1986 mun fara fram í Laug- ardalshöllinni á laugardaginn og hefjast klukkan 10. Keppnin er haldin undir kjörorðinu „Bindindi er best“ - og er styrkt af áfengisvamarráði. Margir júgóslavneskir handknatt- leiksmenn eru á faraldsfæti þessa dagana og ljóst að eitt besta liðið í Júgóslavíu, Metaloplastika, mun verða fyrir mjög mikilli blóðtöku. Sú regla er í gildi hjá handknattleiks- mönnum í Júgóslavíu að leikmenn mega ekki leika með erlendum liðum fyrr en þeir hafa náð 28 ára aldri. Og nú hafa nokkrir leikmenn náð þess- um lágmarksaldri og eru farnir að hugsa sér til hreifings. Tveir af máttarstólpum Metalo- plastika, sem um árabil hefur skartað skrautíjöðrum júgóslavnesks hand- knattleiks, hafa nú samið við lið í Vestur-Þýskalandi. Þetta eru þeir Mile Isakovic, einn besti homamað- ur heims, og línumaðurinn Vukovic. Talið er að Isakovic fari til 2. deildar liðsins Milbertshofen en kaupverðið nemur um 10 milljónum íslenskra króna. Ekki hefur það fengist upp- gefið hvert Vukovic fer en kaupverð hans nemur einnig 10 milljónum króna sem er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir handknattleiks- mann í þýska handknattleiknum frá upphafi. Isakovic fer til Þýskalands í júní en Vukovic í september. Og enn eitt áfallið sem skellur á Met- aloplastika þessa dagana er að hinn heimsfrægi leikmaður Vujovic er alvarlega meiddur og óvíst hvenær hann getur leikið með að nýju. Tveir í herinn og fyrirliðinn til Spánar Fleiri leikmenn eru á leið úr hand- knattleiknum í Júgóslavíu. Mark- vörðurinn Basic og vinstri handar skyttan Cvetkovic eru á leið í herinn og munu því ekki leika handknatt- leik á næstunni, líklega ekki næstu tvö árin. Þegar Cvetkovic hefur lokið herskyldu og náð 28 ára aldri er talið víst að hann fari til Dússel- dorf en viðræður á milli hans og félagsins hafa þegar farið fram. Basic mun halda til Spánar og leika þar. Fyrirliði heimsmeistaraliðs Júgó- slavíu, Rnic, er á leið til Spánar og mun leika þar á næsta keppnistíma- bili en ekki er enn vitað með hvaða liði. Allir leikmennirnir, sem rætt er um hér að framan, voru í sigurliði Júgóslavíu í síðustu heimsmeistara- keppni í Sviss. -SK. • Rnic, fyrirliði heimsmeistara Júgóslava, leikur á Spáni næsta vetur og Basic markvörður fer í herinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.