Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Blaðsíða 32
32
DV. FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986.
Andlát
BILALEIGA
Útibú í kringum iandið
REYKJAVÍK:..91-31815/686915
AKUREYRI:....96-21715/23515
BORGARNES:..........93-7618
BLÖNDUÓS:......95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:......96-71489
HÚSAVÍK:.....96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: .97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ...97-8303
interRerrt
Þóra Árnadóttir lést 23. mars sl. Hún
fæddist á Skútustöðum í Mývatns-
sveit 11. júní árið 1900. Foreldrar
hennar voru Auður Gísladóttir og
séra Árni Jónsson. Þóra lauk námi
í sjúkranuddi í Kaupmannahöfn árið
1921. Eftir það starfaði hún í nokkur
ár sem nuddkona í Reykjavík og rak
um skeið stofu við Laufásveg. Maður
Þóru var Kristinn Ármannsson,
rektor Menntaskólans í Reykjavík,
en hann lést árið 1966. Þóra og Krist-
inn eignuðust 4 börn. Otför Þóru
verður gerð fró Dómkirkjunni í dag
kl. 13.30.
Friðrik Sigurbjörnsson lést 20. mars
sl. Hann fæddist 2. september 1923 í
Reykjavík. Foreldrar hans voru Sig-
urbjörn Þorkelsson og Unnur Har-
aldsdóttir. Friðrik lauk prófí í lög-
fræði árið 1953 og var þá skipaður
lögreglustjóri í Bolungarvík og
gegndi hann því starfi í 10 ár. Blaða-
maður við Morgunblaðið var hann
árin 1963-1972 en hóf þá störf við
Háskóla Islands og var þar prófstjóri
um langt árabil. Eftirlifandi eigin-
kona Friðriks er Halldóra Helga-
dóttir. Þeim hjónum varð þriggja
barna auðið. Útför Friðriks verður
gerð frá Hallgrímskirkju í dag kl.
13.30.
Jóel Sigurðsson lést 27. mars sl.
Hann var fæddur að Hraunbóli í
Hörgslandshreppi á Síðu 21. júni
1904. Foreldrar hans voru Guðlaug
Jónsdóttir og Sigurður Jónsson. Jóel
starfaði lengst af hjá Sláturfélagi
Suðurlands. Eftirlifandi eiginkona
hans er Jónína Jóhannsdóttir. Þeim
hjónum varð fjögurra barna auðið.
Útför Jóels var gerð frá Fossvogs-
kirkju í morgun.
. Sigríður Eiriksdóttir lést 23. mars sl.
;'j Hún fæddist að Miðdal í Mosfells-
! sveit 16. júní 1894. Voru foreldrar
i hennar Eiríkur Guðmundsson og
-j Vilborg Guðnadóttir. Sigríður lauk
j námi frá Verslunarskóla íslands og
! starfaði við skrifstofustörf í Reykja-
f vík á árunum 1910-1918, hélt þá til
j Kaupmannahafnar og hóf hjúk-
, runarnám við Kommunespítalann
: og lauk þaðan prófi. Sigríður sneri
j heim haustið 1922 og réðst brátt sem
j hjúkrunarkona hjá hjúkrunarfélag-
inu Líkn í Reykjavík. Sigríður var
; síðan formaður Líknar í aldaríjórð-
f ung. Maður Sigríðar var Finnbogi
í Rútur Þorvaldsson en hann lést árið
1973. Þeim hjónum varð tveggja
’■ barna auðið, en misstu son sinn af
| slysförum ungan að aldri. Útför Si-
gríðar verður gerð frá Dómkirkjunni
ídagkl. 15.15.
Björn Grímsson sem andaðist á
Hrafnistu, Reykjavík, 26. mars, verð-
ur jarðsunginn frá Fossvogskirkju
mánudaginn 7. apríl kl. 13.30.
Halldóra Gunnarsdóttir, Bakkagerði
6, andaðist í Landakotsspítala 1.
apríl.
Þráinn Sigurðsson klæðskeri lést í
. Bandaríkjunum 25. mars.
t Kveðjuathöfn um Líneyju Sigurjóns-
; dóttur frá Sauðárkróki, sem andaðist
19. mars, fer fram frá nýju kapellunni
í Fossvogi föstudaginn 4. apríl kl.
10.30. Jarðsett verður frá Sauðár-
' krókskirkju laugardaginn 5. apríl kl.
13.30.
Anna Kristin Daníelsdóttir, Lang-
holtsvegi 148, verður jarðsungin
föstudaginn 4. apríl kl. 15 frá Bú-
staðakirkju.
Stefán Ketilsson frá Minni-Ólafs-
völlum, fyrrum bóndi Roðgúl,
Stokkseyri, verður jarðsunginn frá
Ólafsvallarkirkju, Skeiðum, laugar-
daginnð. apríl kl. 14.
Útför Ásgríms Jónssonar, Kapla-
skjólsvegi 51, verður gerð frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 4. apríl kl.
-43.30.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á Þörungaverksmiðju á Reykhólum í Barðastrandarsýslu,
þingl. eign Þörungavinnslunnar hf„ fer fram eftir kröfu Iðnþróunarsjóðs þriðju-
daginn 8. apríl 1986 kl. 14.
f ___________________________Sýslumaður Barðastrandarsýslu.
Bjami Geir Alfreðsson matreiðslumaður
Lengi verið
aðdáandi Bowies
Fréttir í sjónvarpinu í gær voru
svona ósköp venjulegar, það er að
segja alveg ágætar, sérstaklega
veðurfréttir, veðurkortin hér eru
með þeim bestu í heiminum.
Leiðangursþátturinn var mjög
góður og spennandi eins og besta
hasarmynd, ég er ákaflega ánægður
með hann. Þetta er eitthvað sem
maður hefur aldrei gert sjálfur en
hefði fullan hug á. Annars þarf ansi
hugaða menn í svona ferð.
David Bowie var góður, eins og
hans er vandi. Þessi samantekt á
ferli hans - fyrri hluti - var mjög
áhugaverð. Ég er og hef lengi verið
eindreginn aðdáandi Bowies, hann
hefur líka að mínu mati vaxið hin
síðari ár, það er auðveldara núna
fyrir venjulegan mann að átta sig á
hvað hann er að fara, en í upphafi
ferilsins var hann dálítið þungur
og torskilinn. Hann nær i dag til
miklu stærri hóps en áður. Þó hann
sé ekki endilega númer eitt hjá mér
sem tónlistarmaður - enda er það
enginn ákveðinn - þá er hann ör-
ugglega í einu af toppsætunum.
Hótelþátturinn er klassískur
amerískur og ég er ekki sérlega
hrifinn af honum, þetta er föst
uppskrift og það skiptir ekki máli
hvort maður horfir eða ekki, það
er alltaf sama uppskriftin. En ég
"hef nú samt yfirleitt kíkt á hann
með öðru auganu, hann er ágætisaf-
þreying, þokkalegur aðalréttur með
tilbrigði af meðlæti, alla vega aðeins
skárri en Dallas, sem var einum of
mikil framleiðsla, þar að auki fram-
leiddur fyrir Ameríkana en við
erum á öðru greindarstigi en þeir.
Ég heyrði með öðru eyranu góðan
og skemmtilegan þátt hins ágæta
útvarpsmanns á rás 2, Leópolds, hef
hana gjaman á en hlusta einkum á
fréttir á hinni.
Útför Hafþórs Más Haukssonar,
Fjarðarási 28, Reykjavík, sem lést
af slysförum 20. janúar 1985, fer fram
frá Langholtskirkju föstudaginn 4.
apríl kl. 16.
Fjóla Jensdóttir Boðaslóð 25, Vest-
mannaeyjum, verður jarðsungin frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 5. apríl kl. 16.
Gunnar Magnús Björnsson, Löngufit
16, Garðabæ, verður jarðsunginn fró
Garðakirkju föstudaginn 4. apríl kl.
13.30.
Marteinn Lúther Einarsson, Hafnar-
braut 47, Höfn, Hornafirði, verður
jarðsunginn frá Bjamarneskirkju
fimmtudaginn 3. apríl kl. 14.
Tilkynningar
Minningarsjóöur Þorvalds
Finnbogasonar stúdents
Minningarspjöld sjóðsins eru seld í
skrifstofu Háskóla íslands. Símar
21331 og 25088.
70 ára varð í gær, 2. apríl, Guðmunda
Þ. Jónsdóttir frá Kjörvogi, til heimil-
is að Langholtsvegi 128. Maður
Guðmundu er Guðjón Magnússon.
80 ára er í dag, 3. apríl, frú Björg
Árnadóttir, fyrrum húsfreyja á
Stóra-Hofi í Gnúpverjahreppi. Hún
er nú á Landakotsspítalanum.
Fundir
Háskóii ísiands og
atvinnulífið
í tilefni 115 ára afmælis Stúdentafé-
lags Reykjavíkur og 75 ára afmælis
Háskóla Islands gengst félagið fyrir
eins dags ráðstefnu 4. apríl nk. um
málefnið: Háskóli Islands og atvinnu-
lífið. Félagið gefur jafnframt út veg-
legt afmælisrit um sama efni sem
kemur út nú um mánaðamótin.
Ráðstefnan verður í Kristalssal
Hótel Loftleiða frá kl. 10 17. Fram-.
sögumenn á ráðstefnunni fjalla allir
um tengsl Háskólans við atvinnulíf
þjóðarinnar.
Dagskrá ráðstefnunnar verður
þessi:
Sigmundur Guðbjarnason rektor
setur ráðstefnuna og ræðir um:
Háskóla íslands og atvinnulífíð.
Brynjólfur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Granda hf., talar um:
Þróun sjávarútvegs og tengsl hans
við menntun og rannsóknir.
Jón Bragi Bjarnason prófessor fjallar
um: Líftækni; horft til framtíðar.
Valur Arnþórsson, kaupfélagsstjóri
KEA, ræðir um: Háskóli og atvinnu-
líf eru ekki andstæður.
Sverrir Hermannsson menntamála-
ráðherra flytur ávarp.
Víglundur Þorsteinsson, formaður
Fél. ísl. iðnrekenda, talar um: Rann-
sóknir í þágu atvinnuveganna.
Rögnvaldur Ólafsson, dósent og
hönnunarstjóri Marels hf., talar um:
Hlutverk H.í. í þjóðlífmu.
Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri
ræðir um: Tengsl Ríkisútvarpsins við
atvinnulífið og menntastofnanir.
Magnús L. Sveinsson, formaður at-
vinnumálanefndar Reykjavíkur,
ræðir um: Samstarf H.I. og Reykja-
víkurborgar.
Ráðstefnustjóri er Friðrik Pálsson,
forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna.
1 afmælisritinu „Háskóli Islands
og atvinnulífið“, verða yfir 20 grein-
ar um einstakar deildir og stofnanir
H.í. og einstök mikilvæg rannsókn-
arverkefni sem þar eru unnin. Grein-
arnar eru flestar eftir fræðimenn og
kennara Háskólans sem hafa sýnt
þessu verki áhuga.
Arnað heilla
Gullbrúðkaup eiga í dag, 3. apríl,
hjónin Sigríður A. Sigurðardóttir og
Antóníus Ólafsson, fyrrum ábúendur
að Berunesi í Beruneshreppi. Undan-
farin ár hafa þau búið í skjóli dætra
sinna, ýmist austur í Berunesi éða
hér í Reykjavík. í dag, á gullbrúð-
kaupsdaginn, eru þau á heimili dótt-
ur sinnar í Álftamýri 47 hér í bænum.
Bylur og Blúsbrot á Hótel Borg
Fimmtudagskvöldið 3. apríl verða
haldnir tónleikar á Hótel Borg. Þar
koma fram hljómsveitirnar Bylur og
Blúsbrot. Hljómsveitin Bylur hefur
verið starfrækt um nokkuð langt
skeið en þetta verða fyrstu tónleikar
hljómsveitarinnar á þessu ári.
Hljómsveitin Blúsbrot er ný af nál-
inni og flytur eins og nafnið bendir
til blús og blúsafbrigði. Verða þessir
tónleikar frumraun hljómsveitarinn-
ar á opinberum vettvangi. Tónleik-
arnir hefjast kl. 21.30 og mun Ijúka
um miðnætti. Aðgangseyrir er kr.
250.