Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Qupperneq 6
6
DV. FÍMMTUDAGUR 3. APRÍL Í986.
Viðskipti Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Peningamarkaðurinn
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65 74 ára geta losað inn-
stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarn-
ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextireru 15% ogársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði
án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 13,75% nafnvöxtum og
14,2% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynisthún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort mcð 10,5‘X. nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildirhvem mánuð.
Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging
auk 1% vaxta í úttektíirmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávtixtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtrvggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7.25%
og breytast ekki á mcðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði
8,50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9.5% og eftir
6 mánuði 12%. eftir 12 mánuði 12.5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggöum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verötryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaöhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra rcikninga í
bankanum, nú 12,4‘X>, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verötryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé
tekiö út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga, scm innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni. eru reiknaðir hæstu vextir spariíjár-
reikninga í hankanum. Nú er ársávöxtun
annaöhvort 12,9% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir
sparisjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæð-
una innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
meö 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
mtíð svokölluðum trompvöxtum. 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miöaö er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist tromj)-
vextir gc?fa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða. annars almenna spari-
sjóðsvexti. 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði
vélstjóra er með innstæðu bundna í 12 mán-
uði, óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum.
Þeir eru fa*röir einu sinni á ári og ársávöxtun
er því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar 5 sparisjóða eru
með innstæðu bundna óverðtrvggða í 18
mánuði en á 14,5% nafnvöxtum og 15,2‘X,
ársávöxtun. Sparisjóðirnir í Keflavík. Hafn-
arfirði, Kópavogi, Borgarnesi og Sparisjóður
Reykjavíkur bjóða þessa reikninga.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru hundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi. yeni. þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll. vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau éru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfín eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau
eru seld með afföllum og ársávöxtun er al-
mennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán. nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2 4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. I^ánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán. nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstaklings,
annars mest 195 þúsund. 2 4 manna fjölskylda
fær mest 497 þúsund til fyrstu kaupa. annars
mest 248 þúsund. 5 manna fjölskvlda eða
stærri fær mest 580 þúsundir til fyrstu kaupa.
annars mest 290 þúsund. Lánstími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3.5‘%, nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól.
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lifeyrissjóða
Um 90 Íífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns-
rétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum. starfstíma og stigum. I^ánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15 42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir
í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
.10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
tímabilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður
því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verð-
bólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur
og hún getur jafnvel oröið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir
6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 ogársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í apríl 1986 er 1425 stig
en var í mars 1428 stig og í febrúar 1396 og
janúar 1364 stig. Miðað er við grunninn 100
í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaöi um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður. frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðaö sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÖÐA (%) 01. -10.04. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM sjAsérlista ij X 2 ij x fe Í 6 11 jj Íl ij lifi j.E 11 ii
INNLAN OVERDTRYGGÐ
SPARtSJOÐSBÆKUR Úbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.0 8.0 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 10.0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mán.uppsögn 12.5 12.9 12.5 9.5 10.5 10.0 10.0 12.0 10.0
12mán uppsoqn 14.0 14.9 14.0 11.0 12,0 12.0
SPARNAÐUR - LÁNSRtTTURSparad 3-5 mán 13.0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp. 6mán. ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
TEKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4,0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán.uppsogn 3.5 2.5 2.5 3.0 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
INNLAN GENGISTRYGGD
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.0 7.0 6.5 7.5 7.0 7.0 7.5
Sterlingspund 11.5 11.5 10.5 11.0 11.5 11.5 11.5 11.5 10,5
Vestur-þýsk mörk 4.5 4.5 3.5 4.0 3.5 4.0 3.5 3.5 4.0
Danskar krónur 9.5 9.5 7.0 8.0 7.0 7.5 7.0 7.0 8.0
ÚTLÁN Overdtryggð
ALMENNIR ViXLAR (forvextir) 15.25 15.0 15.25 15,25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25
VIÐSKIPTAVÍXLAR 3) (forvextir) kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge kge
ALMENN SKULDABREF 2) 15.5 15.5 15,5 15.5 15.5 15.5 15,5 15.5 15,5
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 3) kge 20.0 kge 20.0 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0
UTLAN VERDTRYGGÐ
SKULDABRÉF Að 2 1/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengrien21/2ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU
sjAnedanmAlsij
1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutnings, í
SDR 9,25%, í Bandaríkjadollurum 9,0%, í sterlingspundum 13,25%, í vestur-þýskum
mörkum 5,75%. 2)Vaxtaálag á skuldabréf til upfjgjörs vanskilalána er 2%, bæði á
verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum,
á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er
merkt við, eirmig hjá flestum stærstu sparisjóðunum.
Erient sjónvarp um gervihnetti:
Leyfifæsttil að
sjá þrjár stöðvar
Samgönguráðherra hefur nú veitt
þremur einstaklingum leyfi til að
taka við erlendum sjónvarpsstöðv-
um frá gervihnetti. Um tíu umsókn-
ir bíða afgreiðslu, samkvæmt upp-
lýsingum sem DV fékk frá Halldóri
S. Kristjánssyni, skrifstofustjóra
samgönguráðuneytis.
Leyfi fæst nú til að horfa á þrjár
sjónvarpsstöðvar. Þær eru franska
stöðin TV-5, bandaríska stöðin
Worldnet og kristilega stöðin New
World. Búist er við að nokkrar
stöðvar bætist við á næstunni.
Þorvaldur Sigurðsson, starfsmað-
ur Hljómbæjar, varð fyrstur til að
fá leyfi, eins og DV hefur áður skýrt
ffá. Síðan hafa bæst við tveir Garð-
bæingar, Sigurður Þorkelsson og
Jón ísfeld Karlsson. Stutt er í fjórða
leyfið, sem væntanlega fer til Am-
ars Hákonarsonar hjá versluninni
Rafeind.
Þeir sem þegar hafa fengið sér
móttökuskerm, eða hyggja á slíkt,
virðast mest spenntir fyrir að tengj-
ast bresku stöðinni Sky Channel.
Ari Þór Jóhannesson, sem setti upp
skerm við heimili sitt í Breiðholti,
hefur unnið að því að fá leyfi Sky
Channel. Kvaðst hann í gær vonast
til að það leyfi fengist innan fárra
vikna.
Samkvæmt reglugerð frá því í
janúar eru leyfi til móttöku sjón-
varpsefnis um gervitungl ekki veitt
nema umsækjandi hafi aflað sér
heimildar rétthafa hinnar tilteknu
sjónvarpsrásar um afnot hennar.
Menningarstofnun Bandaríkj-
anna veitir leyfi fyrir Worldnet.
Friðrik Brekkan, blaðafulltrúi
stofnunarinnar, sagði að skráð
kapalkerfi og áhugasamir einstakl-
ingar gætu fengið heimild til að
taka við sendingu Worldnet.
Menningarstofnunin stefhir að
því að setja upp móttökuskerm við
hús sitt að Neshaga 16 í sumar.
Verður skermurinn um fjórir metr-
ar í þvermál. Er unnið að því að
afla tilskilinna leyfa.
-KMU
Sigurður Þorkelsson í Garðabæ er meðal þeirra þriggja einstaklinga hér-
lendis, sem fengið hafa opinbert leyfi til að taka við erlendum sjónvarps-
stöðvum.
DV-myndKAE.
Framkvæmdastjóri hættir hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað:
Vill aftur heim
til Stöðvarfjarðar
Nokkuð hefur verið rætt um það í
Neskaupstað að Guðjón Smári Ein-
arsson, fríimkvæmdastjóri Síldar-
vinnslunar þar í bæ, sé að láta af
starfinu.
Samkvæmt heimildum blaðsins
ganga um það sögur í bænum að
málið sé af pólitískum toga spunnið,
Guðjón Smári sé ekki í Alþýðubanda-
laginu og honum gangi erfiðlega að
vinna með stjórn Síldarvinnslunnar
því hann vilji reka þetta eins og fyrir-
tæki en ekki eins og félagsmálastofh-
un.
DV hafði samband við Guðjón
vegna þessa orðróms og sagði hann
að erfitt samstarf við stjóm Síldar-
vinnslunar væri ekki meginástæðan
fyrir uppsögninni. „Mig langar aftur
heim til Stöðvarfjarðar, þar vann ég
í hraðfrystihúsinu sem fram-
kvæmdastjóri áður en ég fluttist til
Neskaupstaðar fyrir einu og hálfu
ári. Nú hafa þeir boðið mér starfið
aftur og ég tók því fengis hendi,“
sagði Guðjón Smári.
Ekki hefur verið ákveðið hver muni
taka við framkvæmdastjórastöðunni
af Guðjóni Smára. Heyrst hefur að
Kristinn V. Jóhannsson, stjómarfor-
maður Síldarvinnslunar, muni jafnvel
vilja fá starfið, en hann hefur með
höndum mörg ábyrðarmikil störf í
Neskaupstað, hann er forseti bæjar-
stjómar, efsti maður á lista Alþýðu-
bandalagsins fyrir sveitarstjómar-
kosningamar í vor, stjómarformaður
Síldarvinnslunnar og framkvæmda-
stjóri Samvinnufélags útgerðamanna
á staðnum.
„Það er rétt að komið hefur til tals
s að ég taki við starfinu. Guðjón Smári
nefndi það á síðasta stjómarfundi
fyrir páska að hann teldi mig vel
fallinn til starfans. En ég verð ekki
næsti framkvæmdastjóri Síldar-
vinnslunnar," sagði Kristinn V. Jó-
hannsson, stjómarformaður Síldar-
vinnslunnar.
-KB
Frétt Þjóðviljans um 5 milljon dollara tap Landsvirkjunar:
„Fráleitur fréttaflutningur* ‘
Landsvirkjun hefur sent frá sér
athugsemd þar sem því er lýst yfir að
frétt Þjóðviljans á forsíðu í gær, um
að skuldbreytingar stofnunarinnar
hafi gleypt allan hagnað Landsvirkj-
unnar á síðasta ári, sé röng og stað-
hæfingar í þeirri frétt villandi.
í frétt Þjóðviljans er fullyrt að
Landsvirkjun hafi tapað 5 milljónum
dollara við að breyta lánum í dollur-
um í lán í japönskum yenum og sviss-
neskum frönkum á vitlausum tíma,
- segir í bréfi frá Landsvirkjun
eins og það er orðað, en við það hafi
höfuðstóll þessara lána hækkað um
10,1 milljón dollara. Að frádregnum
vaxtasparnaði að fjárhæð 4,8 milljón-
ir dollara sé tapið um 5 milljónir
dollara sem gleypi hagnað Lands-
virkjunar á síðasta ári, en hann var
um 253 milljónir íslenskra króna.
í athugasemd Landsvirkjunar segir
að stofnunin hafi náð góðum árangri
með skuldbreytingum undanfarin ár,
þ.e. að breyta skuldum úr sterkum
gjaldmiðli í veikan og þá jafnframt í
lán með hærri vöxtum eftir því sem
mögulegt hefur reynst. Þannig hafi
stofnunin sparað vaxtakostnað á sl.
þremur árum í verulegum mæli eða
alls um 4^S milljónir dollara.
Ennfremur segir í athugasemdinni
að það sé fráleitt að halda fram að
Landsvirkjun hafi með fjármála-
stjórnun sinni tapað 5 milljónum
dollara í kjölfar skuldbreytinga á
árunum 1983-1985 eins og Þjóðviljinn
staðhæfir.
-KB