Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Page 7
DV. FIMMTUDAGUR 3. APRlL 1986.
7
Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál
Sam-
bandið
sendi
24upp-
sagnar-
bréf
Samband islenskra samvinnufélaga
sendi 24 starfsmönnum sínum upp-
sagnarbréf um mánaðamótin. Upp-
sagnirnar taka gildi eftir þrjá mánuði.
Þetta er fyrsti liður í hagræðingu
sem stjóm Sambandsins ákvað í síð-
asta mánuði til að draga úr kostnaði
og auka tekjur. Búist er við fleiri
uppsögnum á næstunni.
„Við höfum gert ráð fyrir að þetta
myndi hafa áhrif á störf40-50 manna,“
sagði Axel Gíslason, aðstoðarforstjóri
Sambandsins.
Starfemannafélagi Sambandsins
hefur verið tilkynnt að reynt verði
að bjóða því fólki, sem sagt verður
upp, annað starf innan Sambandsins
eftir því sem tök em á.
Af þeim -24 mönnum, sem sagt var
upp í fyrstu lotu, em 18 á teiknistofu
Sambandsins. Ákveðið hefur verið að
leggja hana niður. Öllum starfsmönn-
um hennar var sagt upp, þar á meðal
forstöðumanni, verkfræðingum, arki-
tektum og tæknifræðingum, að sögn
Baldvins Einarssonar starfsmanna-
stjóra.
Skrifstofa Sambandsins í Hamborg
verður lögð niður. Þrír starfsmenn
hennar em í hópi þeirra sem fengið
hafa uppsagnarbréf.
Ennfremur var trésmið og verka-
manni, sem orðnir vom sjötugir, sagt
upp, svo og tryggingafulltrúa.
Starfemönnum teiknistofunnar hef-
ur verið boðinn sá möguleiki að ef
þeir vilja reka stofuna áfram sem
eigið fyrirtæki muni Sambandið beina
verkefnum til þeirra. -KMU
Framkvæmdir við byggingu þeirra 10 blokka sem Byggung er að reisa við Selás hafa legið niðri að undanfömu. Vanskil húsbyggjenda og vanskil Hús-
næðismálastofnunar við Byggung eru sagðar ástæðurnar og einnig endurskoðun framkvæmdamáta við byggingarnar. Blokkirnar við Selás verða liklega
siðustu framkvæmdir Byggung þvi eins og málin standa í dag verður félagið lagt niður þegar þær íbúðir hafa verið afhentar. DV-mynd GVA
Byggung verður lík-
lega lagt niður
Að öllum líkindum verður starf-
semi byggingafélagsins Byggung
lögð niður þegar búið að verður að
afhenda þær 400 íbúðir sem era nú
í byggingu á vegum félagsins, að
sögn Guðmundar Karlssonar, nýs
framkvæmdastjóra félagsins.
„Það er dýrt að byggja í dag miðað
við það markaðsverð sem er í gangi
á eldri íbúðum. Okkur hefur þó
tekist að selja flestar þessara 400
hundmð íbúða sem em í byggingu,
enda kjörin hjá okkur mun betri en
almennt gerist á markaðnum. Núna
em um 15-20 íbúðir óseldar, flestar
við Selás og nokkrar úti á Seltjarn-
arnesi," sagði Guðmundur.
Stefnt er að því að búið verði að
afhenda allar þessar 400 íbúðir eftir
u.þ.b. 2 1/2 ár. „Þá verður hægt að
hætta starfseminni nema að að-
stæður hafi breyst á tímabilinu
þannig að hagstætt verði að halda
henni áfram.“
Framkvæmdir við þær 10 blokkir,
sem em i byggingu við Selás, hafa
að mestu leyti legið niðri að undan-
fómu. Samkvæmt Áma Þ. Áma-
syni, stjómarformanni Byggung,
em ástæðurnar helstar þær að stað-
ið hefur á greiðslum frá Húsnæðis-
málastofnun og að um 300 hús-
byggjendur hjá Byggung em í van-
skilumviðfélagið.
„Aðalástæðan fyrir því að fram-
kvæmdir við Selás hafa að mestu
legið niðri er sú að við erum að
endurskoða framkvæmdamátann.
Við erum að athuga hvort hagstæð-
ara er fyrir okkur að bjóða út fram-
kvæmdimar sem eftir em í stað
þess að sjá um þær sjálfir. Þetta
ætti að skýrast á næstunni og þá
ættu framkvæmdir að geta hafist á
fullu að nýju,“ sagði Guðmundur
Karlsson, framkvæmdastjóri Bygg-
ung.
-KB
Fjöldauppsagnir
hjá lögregluþjónum:
Allir lögreglu-
þjónar á Akranesi
hafa sagt upp
- og nær allir í Keflavík, Borgamesi
og Vestmannaeyjum. 129 lögreglu-
menn í Reykjavík segja upp
Bílstjórar langferðabíla vilja fá sáma kaup og bílstjórar steypubila. Þeir telja sig ekki aka ómerkilegri farmi.
„Viljum fá sama kaup
og steypubílstjórar“
„Það er ljóst að stór hluti af þeim
lögregluþjónum, sem sagt hafa upp
störfum, snýr ekki aftur. Það tollir
enginn í starfi sem byggist upp á því
að menn þurfa að vinna yfir 100 yfir-
vinnutíma til að ná viðunandi laun-
um. Lögreglumenn em búnir að fá
nóg og það er alvara í þessum upp-
sögnum," sagði einn af fjölmörgum
lögregluþjónum sem sagt hafa upp
störfum. Alls hafa um 300 lögreglu-
þjónar víðs vegar um land sagt upp
störfum. Það er um helmingur lög-
regluþjóna landsins.
Flestar uppsagnirnar eru frá síð-
ustu mánaðamótum og taka því gildi
að þremur mánuðum liðnum 1. júlí.
„Við höfum ekki sagt upp, en ég
reikna fastlega með því að það verði
gert um næstu mánaðamót," sagði
einn lögregluþjónninn úti á landi.
Á Akranesi hafa allir lögregluþjón-
arnir í Lögreglufélagi Akraness sagt
starfi sinu lausu, eða tíu lögreglu-
þjónar. Báðir lögregluþjónamir á
Seltjamanesi hafa sagt upp og þá
hefur 99‘Xi af lögregluliði Keflavíkur
og Vestmannaeyja sagt upp.
Fjórir af fimm sögðu upp í Borgar-
nesi. Meirihluti lögregluþjóna á Sel-
fossi hefur sagt upp og yfir 50% á
Keflavíkurflugvelli.
Miklar uppsagnir hafa verið í
Reykjavík. Þar hafa 129 lögreglu-
þjónar af 225 sagt starfi sínu lausu.
20 af 36 lögregluþjónum í Hafnarfirði
hafa sagt upp og 27 af 40 hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins. Svona mætti
lengi telja.
Lögregluþjónar gera kröfur um
hærri dagvinnutekjur. Byrjunarlaun
lögreglumanna eru nú kr. 20.800. Þá
eru gerðar kröfur um að á fámennum
stöðum séu lögregluþjónar ekki einir
við störf. Auk þess fara lögregluþjón-
ar fram á aukna menntun.
Flestir þeir lögregluþjónar, sem
sagt hafa upp störfum, eru yngri
menn. „Það er ljóst að þeir koma
ekki aftur þegar þeir hafa farið í
önnur störf," sagði einn af eldri lög-
regluþjónunmn sem DV ræddi við.
-sos
Ólga hefur nú gripið um sig hjá
rútubílstjórum eða þeim sem aka
langferðabílum til mannflutninga.
Nýlega ákváðu þeir á félagsfundi hjá
stéttarfélagi sínu, Sleipni, að sam-
þykkja verkfallsheimild ef viðsemj-
endur þeirra, sérleyfishafar, gengju
ekki að launakröfum þeirra.
Kröfumar felast fyrst og fremst í
því að fá sömu lauri og þeir bílstjórar
sem keyra steinsteypu. „Okkur finnst
ansi hart að bílstjórar sem keyra
steinsteypu og vörur að hafnarbakka
skuli hafa mun hærri laun en rútubíl-
stjórar sem keyra 50-60 farþega á
milli staða.
Okkar laun eftir 18 ára starf með
10% álagi, sem gildir á sumrin, er um
24.085 krónur á mánuði. Eftir 3
mánaða starf á steinsteypubílunum
fá menn 26.148 á mánuði,“ sagði
Valdimar Ásmundsson rútubílstjóri
í samtali við DV.
„Það er okkar gmndvallarkrafa að
fá samræmingu við laun þeirra sem
keyra steinsteypu á milli staða. Við
sættum okkur ekki við neitt annað,“
sagði Valdimar.
Ákveðið hefur verið að skjóta mál-
inu til sáttasemjara og verður haldinn
sáttafundur í deilunni næsta þriðju-
dag. -KB
FYRiRTÆKJAÞJÓNUSTAN Austurstræti 17, III. hæð, s.26278
Til sölu eru nú þegar eftir- Kjörbúðir með kvöldsöluleyfi Prentsmiðja
Kjötbúðir Einangrunarverksmiðja
talin fyrirtæki: Matvöruverslanir með videoleigum Kjötvinnsla Harðfiskverkun og -sala
Veitingastaðir með vinleyfi Byggingavöruverslun Ryðvarnarskáli og margt fleira
Barnafataverslanir Heildsölur Matvöruverslun með kjötvinnslu ósk-
Vefnaðan/öruverslanir Fiskbúð ast.
Fatabúðir Bilaverkstæði Sölumenn:
Videoleigur Bjórpöbb Magnús Sigurjónsson, hs. 79542,
Sjoppur Pylsuvagn Birgir Þorvaldsson, hs. 15299.