Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Qupperneq 8
DV. FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Sprengingin í þotu Trans Worid Airlines Sérfræðingar í málefhum Mið- Austurlanda segjast óttast að sprengingin um borð í farþegafiug- vélinni frá Trans World Airlines í gær sé aðeins sú fyrsta í röð hryðju- verka sem muni fylgja í kjölfar átakanna á Sidraflóa milli Banda- ríkjanna og Líbýu. Skiptar skoðanir eru hins vegar meðal sérfræðing- anna um það hversu bein tengslin séu á milli Líbýu og sprengingar- innar. Telja sumir að liðssveitir á snærum Gaddafis, sem margoft hef- ur hótað hefndaraðgerðum, hafi staðið fyrir sprengingunni en aðrir að hér hafi verið á ferðinni hópur hliðhollur Líbýu, án neinna beinna tengsla við Gaddafi. Forseti arabísk-amerískra vin- áttusamtaka, M.T. Mehdi í Banda- ríkjunum, sagði í gær að ábyrgðin á sprengingunni hvíldi á herðum Reagans en ekki Gaddafis. Hátt á annað hundrað Líbýumenn létu líf- ið í átökunum á Sidraflóa og það „leysti úr læðingi ótakmarkað hat- ur araba á Ronald Reagan sem saklausir Bandaríkjamenn þurfa svo að líða fyrir", sagði Mehdi. Hópur, sem kallar sig Arabísku byltingarhreyfinguna, hefur lýst ábyrgð á sprengingunni á hendur sér og segir hana hefndarráðstafan- ir vegna atburðanna á Sidraflóa. Stjómvöld í Washington hafa hins vegar lýst því yfir að þau telji ekki að um tengsl sé að ræða milli Líbýu og sprengingarinnar í gær. Larry Speakes, talsmaður Hvíta hússins, sagði að Bandaríkjastjórn talaði ekki um sprenginguna sem hryðju- verk. „Við höfum ekki enn neinar sannanir fyrir því að um hryðjuverk hafi verið að ræða.“ Þá sagði Spe- aks að ákveðið hefði verið í samráði við grísk stjómvöld að sérfræðingar frá FBI yrðu sendir til Aþenu til að rannsaka orsakir slyssins. Líbýskur varðbátur brennur á Sidr- aflóa en átökin þar kveiktu mikið hatur margra araba í garð Banda- ríkjanna og telja margir að spreng- inguna í farþegavélinni í gær megi rekja til þess. Flugmenn gegn hvyðjuverkum Formaður alþjóðasamtaka at- vinnuflugmanna, Tom Ashwood, skoraði í gær, eftir sprenginguna um borð í Trans World Airlines þotunni, á flugmenn að hætta að fljúga til landa sem styðja hryðjuverkamenn. Tiltók Ashwood sérstaklega Libýu, Sýrland og Iran. „Við munum stöðva flug til og frá þessum löndum,“ sagði Ashwood en í Alþjóðasamtökum at- vinnuflugmanna eru flugmenn frá sextíu löndum. „Ef stiómvöld eru ófær um að einangra þetta fólk frá hinum siðmenntaða heimi, einangra Gaddafi og aðra, í íran, Sýrlandi og öðrum stöðum sem fóstra hryðju- verkamenn, þá verðum við að gera það fyrir þau.“ Ashwood sagði enn- fremur að hann vonaðist til að fá önnur samtök sem fást við flutninga, eins og til dæmis millilandasiglingar, til að styðja aðgerðimar. Æk BUCKSDECKER I NAGLA- OG HEFTIBYSSUIMNI gC Sm snura "SBÍ*£ (II ttJOZZ* Hentug til uppsetninga á panelloftklæðningum, spónaplötum o. fl. 16-30 m/m hefti og naglar. Electronisk ásláttarstilling. Endurtekinn ásláttur. Kynningarverð 5.688,- með fylgihlutum. Sölustaðir um land allt. ►rsteinsson ÁRMÚLI 1 105 REYKJAVÍK SÍMI 91-685533 Sonur Ferraro kókaínsali? John A. Zaccaro yngri, sonur Gerald- ine Ferraro, varaforsetaefnis demó- krata í bandarísku forsetakosningun- um árið 1984, hefur verið ákærður fyrir sölu á kókaini í Vermontríki. Hér sést sonurinn, til vinstri, ásamt lögfræðingi sínum á leið til dómhúss- ins í Middlebury í Vermont þar sem mál hans verður tekið fyrir. Viljafrí frá sjónvarpinu Einn af hverjum tveimur sjónvarps- glápendum í Frakklandi vill að minnsta kosti eitt sjónvarpslaust kvöld í viku, í þeirri von að það megi verða til að lækna sjónvarpssýki þeirra sem þeir segja að sé síst minni fíkn en tóbaks- eða brennivínsfíkn. Þetta kom fr am í skoðanakönnun sem vikuritið Telerama lét gera. Þar kom einnig fram að þrjátíu og sjö prósent aðspurðra töldu sig geta lifað af án sjónvarps alla ævi, tæp þrjátíu pró- sent töldu sig geta lifað af án þess í allt að mánuð og ellefu prósent viður- kenndu að þeir treystu sér ekki til að vera sjónvarpslausir einn einasta Gullæði í kjölfar verðhruns á olíu Frá Gissuri Helgasyni, fréttaritara DV í Zurich: Olía verður sífellt ódýrari og dregur gullverðið með sér á niðurleiðinni. Oliuverðfallið gerir Rússana taugaóstyrka. í síðustu viku keyptu Kremlbankamir gull, þrátt fyrir minnkandi olíutekjur, til þess að fjár- festa í erlendri mynt. Aprílgabbið skelfdi marga Frá Gissuri Helgasyni, fréttaritara DV í Zurich: ísraelska útvarpið tilkynnti lands- mönnum þann fyrsta apríl að sviss- nesku bankamir hefðu ákveðið að veita ísraelsstjórn nánari upplýsingar um alla þá milljarða króna sem ísra- elskir ríkisborgarar eiga í sviss- neskum bönkum en slíkar inneignir eru óleyfilegar samkvæmt ísraelskum lögum. Mun mörgum hafa bmgðið illilega í brún við þessi tíðindi. En mönnum létti skjótt. í lok fréttarinnar sagði þulurinn: 1. apríl, 1. apríl. í gær var olíuverðið komið í 9,75 dollara fyrir tunnuna og þó við verð- leggjum hana á 10 dollara þá er það lægsta verð í átta ár. Það voru ekki bara Sovétmenn sem fjárfestu í hinum gullna málmi heldur fjárfestu bandarískir bankar einnig í gríðogergígulli. Gullúnsan kostaði 334,50 dollara í gær í Zurich eða 11,50 dollurum minna en á skírdag. Gullkílóið kostar nú 20.880 sviss- neska franka en 21.625 á föstudaginn langa.. Talsmaður svissnesku bankanna segir Sovétmenn undanfarið hafa keypt daglega mikið af gulli. Þess má og geta að Svisslendingar taka fljótt við sér í sambandi við olíu- verðlækkanir og er nú svo komið að allvíða má fá bensínlítrann, meira að segja súperbensín, á undir einum svissneskum franka eða á rúmlega 21 krónu íslenska. Sovesk olia eykur enn olíuframboðið Sérfræðingar í olíumálum búast við enn frekari verðlækkun á heims- markaðsverði oh'u í dag eftir að Sov- étmenn, mestu olíuframleiðendur í heimi, tilkynntu fyrr í vikunni að þeir myndu brátt setja töluvert magn hráolíu á sölu á olíumörkuðum heims. Sovétmenn hafa ekki haft olíu til sölu á frjálsum olíumörkuðum síðast- liðna þrjá mánuði. Ein milljón Sovéttunna Haft er eftir heimildarmönnum á bandarískum olíumarkaði að fregnin um endurkomu sovésku olíunnar og þar af leiðandi enn meira framboð á yfirfullum olíumörkuðunum hafi borist of seint til að hafa áhrif á heimsmarkaðsverð fyrr en í fyrsta lagi í dag og megi því enn búast við lækkun olíuverðs er líður á daginn. Búist er við að Sovétmenn setji allt að einni milljón tunna á dag af hráol- íuámarkaðinn. Olíuverð lækkaði enn um einn doll- ar í gær í kjölfar yfirlýsingar Hvíta hússins um að verðmyndum á olíu yrði fyrst og fremst að ákvarðast af frjálsum markaði og framboði og eft- irspurn. Yfirlýsing Hvíta hússins var birt eftir að orðrómur komst á kreik í Washington að George Bush, vara- forseti Bandaríkjanna, kynni að ræða aukin höft á olíumarkaðnum við ráðamenn í Saudi-Arabíu, en þangað heldur varaforsetinn innan.skamms.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.