Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Page 13
DV. MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL1986. 3!»i' Tf; 4 4 / ' ? . í I > ►■ ( ■ t ) H M Tf 'f Neytendur Neytendur Neytendur Virkt verðlags- eftirlit kemurneyt- endum tílgóða „Við ætlum nú að nýta hina frjálsu verðlagningu neytendum í hag og það gerum við með því að fylgjast grannt með verðlagi á helstu nauðsynjavörum og birta vikulega niðurstöður verðkannana. Þetta verður framkvæmt í samstarfi við launþegahreyfinguna, ASÍ og BSRB,“ sagði Sigurður Sigurðar- son, formaður Neytendafélags Reykjavíkur, í samtali við Neyt- endasíðu DV. „Við höfum lengi verið að falast eftir samstarfi við launþegahreyf- inguna í neytendamálum sem nú er orðið að veruleika. Ráðinn verður sérstakur starfsmaður sem mun sinna þessu starfi eingöngu," sagði Sigurður. Ætlunin er að vikulega verði heimsóttar um fiórtán verslanir á höfuðborgarsvæðinu og kannað verð á a.m.k. tuttugu vörutegund- um. Niðurstaðan verður birt í fiöl- miðlum. Lögð verður áhersla á að birta nöfri verslana sem teknar verða fyrir hverju sinni. „Við ætlum að fylgjast þannig með verðlagi frá einum tíma til annars.'Þannig ætlum við að veita verslunum virkt aðhald og láta þær takast á innbyrðis. Við munum hiklaust nota nafnbirtingu og ætl- um við þannig að reyna að fá versl- anir til að halda í við verðhækkanir eða lækka vöruverð í stað þess að hækka eins og verið hefur undan- farin ár. Hingað til höfum við verið svo máttlausir að við höfum ekkert geta gert. Þetta er svo sannarlega ánægju- leg þróun sem við væntum mikils af. Við ætlumst til þess að neytend- ur notfæri sér þessar kannanir og beini viðskiptum sínum þangað sem vöruverð er hagstæðast hverju sinni,“ sagði Sigurður. Auk verðkannana verður ýmis- legt annað varðandi neysluvaming kannað, eins og t.d. dagstimplun og raunar hvaðeina sem getur komið neytendum að sem bestu haldi. „Með þessu móti kemur frjáls álagning neytendum til góða. Þetta er mögulegt fyrst og fremst vegna samninga ríkisstjórnarinnar og launþegahreyfingarinnar um niður- færslu á verðlagi og verðbólgu," sagði Sigurður Sigurðarson, for- maður Neytendafélags Reykjavíkur ognágrennis. -A.Bj. NÝJARUMBÚÐIRÁ DÚN MÝKINGAREFNINU Sápugerðin Frigg, sem framleiðir mýkingarefnið Dún, hefur nú endur- bætt og breytt samsetningu mýking- arefnisins og breytt um ilmefni. í fréttatilkynningu frá Frigg segir að bætt efnasamsetning á Dún dreifi mýkingarefninu og þannig afraf- magnist allt tauið auðveldar og mýkingin verði betri en áður. Nýju umbúðirnar eru 2 og 4 lítra brúsar en Dún verður einnig selt áfram á 1 lítra brúsum. Til stendur að breyta merkingum á umbúðunum þannig að skýr og greinileg inni- haldslýsing verði aftan á brúsunum og viljum við hér nota tækifærið til að hvetja aðra framleiðendur til að gera slíkt hið sama. Umræðan um vörumerkingar hefur stórlega aukist hér á landi og er það mjög til hins góða. Enn er mjög langt í land að vörumerkingar hér á landi geti talist fullnægjandi og skýtur það nokkuð skökku við að íslenskir fram- leiðendur skuli ekki nota sér það sem þeir hafa svo greinilega umfram inn- fluttar vörur en aðstaða þeirra til að upplýsa neytendur mikill kostur sem lítið virðist nýttur. -S.Konn. itllSíl Nú fæst mýkingarefnið Dún einnig í 2 og 4 lítra brúsum 13 TOYOTA TOYOTA BLAÐBERA VANTAR í Helgalandshverfi i Mosfellssveit Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 66481. AÐALFUNDUR Knattspyrnudeildar Víkings verður haldinn í Víkings- heimilinu 3. apríl kl. 8. Venjuleg aðalfundarstörf. Sýnum samstöðu og fjölmennum á fundinn. Qlinrnin Nissan Cedrik árg. ’85, ekinn 26.000. Verð 840.000,- Honda Civic árg. ’82, ekinn 65.000. Verð 230.000,- Colt árg. ’83, ekinn 27.000. Verð 230.000,- Toyota Carina station ’82, ekinn 48.000. Verð 300.000,- MNC Galant station ’80, ekinn 108.000. Verð 155.000,- Datsun Cherry ’81, ekinn 76.000. Verð 170.000,- Nýbýlavegi8 200 Kópavogi S. 91-44144 Datsun King-Cab árg. '82, bensín, ekinn 60.000, svartur/silfur. Verð 360.000,- Toyota Corolla árg. ’85, 4ra dyra, 4 gíra, gylltur. Verð 310.000,- Toyota Hilux 4x4, árg. '81, ekinn Mazda 626 1600, árg. ’81, ekinn 60.000, m/plasthúsi, hvitur. Verð 68.000, grár.Verð 190.000,- 360.000,- Toyota Cressida, árg. '78, ekinn 67.000, grænn. Verð 165.000,- Toyota Corolla Liftback 1600, árg. '85, ekinn 9.000, hvitur. Verð 385.000,- Subaru 4x4 árg. '81, vínrauður. Verð 240.000,- Toyota Crown dísil árg. ’80, sjálf- skiptur, ekinn 130.000, hvitur. Verð 295.000,- Toyota Tercel árg. ’84, brúnn/ dökkbr. m/aukamælum, ekinn 50.000. Verð 380.000,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.