Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Side 18
18 DV. FIMMTUDAGUR 31APRÍL1986. Menning Menning Menning Menning Mennin Háskólakórinn Tónleikar Háskólakórsins i Félagsstofnun stúdenta 22. mars. Stjórnandi: Árni Haröarson. Efnisskrá: Gaudeamus igitur; islensk þjóólög i útsetningum Jónasar Tómas- sonar (eldra); Jónas Tómasson (yngri): Cantata V; íslensk þjóölög i útsetningum Hjálmars H. Ragnarssonar; Árni Harðar- son: Spjótalög; Kjartan Ólafsson: Raddir á daghvörfum. Háskólakórinn hélt vortónleika sína í Félagsstofnun stúdenta um helgina næstu fyrir páska en var búinn að flytja þá á Norðurlandi áður. Efnisskráin var alíslensk og fyrri hluti hennar að mestu ísfirskur því að verk alnafhanna Jónasa Tómassona, eldra og yngra, og Hjálmars Helga Ragnarssonar fylltu hann auk Spjótalaga söng- stjórans Arna Harðarsonar. Þjóðlagaútsetningar Jónasar Tómassonar eldra bera glöggt vitni reynslu hans af kórstjórn og þekk- ingu hans á þörfum söngfólksins fyrir að fá að vera af og til í leiðandi stöðu. Jónas hafði einstakt lag á að leyfa liðsmönnum hverrar raddar að fá að leiða um stund án þess að raska í neinu heildarsamræmi lags- ins. Þannig vinna aðeins þeir sem vita hve miklu mikilvægari söng- gleðin er kunnáttunni hjá fólki sem þjónar sönggyðjunni ánægjunnar einnar vegna. EYJÓLFUR MELSTED við Þjóðsagnakvæði Hannesar Pét- urssonar. Hættan er að lögin verði hvert öðru of lík en þó má sundur- iyndis ekki gæta nema í hófi. Kjart- an sýndi hér að honum miðar vel. Hann hélt uppi ákveðinni seið- mögnun og dularfuilum blæ með mismunandi glisandotilbrigðum - eins konar eigin galdralagi sem gekk meira og minna gegnum lögin öll. Bálkurinn hafði heildstætt yfir- bragð en þó nýtur hvert lag eigin sjálfstæðs svips og ber með sér hugblæ hvers ijóðs. Kórinn söng mjög vel. Hann kunni alit upp á sina tíu fingur að venju, sem út af fyrir sig er afrek þegar um svo erfiða músík er að ræða. Hann er í góðum höndum Áma Harðarsonar sem heldur merki framsækninnar hjá þessum eina listasprota Háskólans á lofti. EM gert meira fyrir kórinn en nokkur annar til þessa. Cantata V og Spjótalög eru einnig gamlir kunningjar. Bæði eru verkin samin við ijóð úr Spjótalögum á spegil eftir Þorstein Jónsson frá Hamri. Kórinn skilaði sínu mjög vel, öruggur á erfiðum stefjum og naut þess að fá að syngja þessi fersku verk aftur. Að mínu viti er það góð stefna að halda nýjum verkum inni á efnisskrá í nokkur skipti og láta hana endumýjast þannig smám saman. Kemur það Háskólakórinn. Gamlirkunningjar Síðan komu gamlir kunningjar. íslensk þjóðlög í útsetningum Hjálmars Ragnarssonar em gott dæmi þess að hægt sé að sýna dirfsku og brydda upp á nýbreytni án þess að ganga í berhögg við hefðir - að segja, hafi menn tii þess kunnáttu og hugkvæmni. Það var vel til fundið hjá kórnum að rifja upp atriði úr stjómandatíð Hjálm- ars Helga með þessum hætti en hann hefur að öðrum ólöstuðum bæði fiytjendum og höfundi til góða og kynni að festa ný verk betur í sessi. Merki framsækninnar Kjartan Ólafsson er eitt hinna ungu tónskálda sem menn vænta mikils af. Hann stundar framhalds- nám í Hollandi en hefur þegar sent frá sér athyglisverð verk. Það er ekki i lítið ráðist að semja lagabálk Tónlist Snoturiegt landslag Katrin H. Ágústsdóttir er þekkt fyrir framlag sitt til batíklistar. Henni er fleira til lista lagt, m.a. hefur hún gert og sýnt vatnslita- myndir sem hlotið hafa góðan hljómgmnn meðal þeirra sem séð hafa. Undanfarið hafa vatnslitamyndir Katrínar hangið uppi í vesturgangi Kjarvalsstaða, sem er ekki besta sýningarlókal í bænum en gerir þó sitt gagn. Þetta eru snotrar myndir og Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON þekkilegar af upplifunum úti í náttúmnni. Katrín hefur minni áhuga á víðáttum landsins en hinu afmarkaða og smágerva, árbakka, nokkmm hnullungum, fjallskriðu eða moldarbarði. Hún dregur upp myndir sínar með löngum og mjóum strokum uns þær virðast sem ofnar í pappírinn. Þetta er svolítið sérkennileg tækni og kannski óþarflega varfæmisleg. í allra nýjustu myndum sínum er Katrín hins vegar dirfskulegri, kompónerar með stærri flötum og tengir þá betur saman. Með frekari áhættu ætti listakon- an að geta uppskorið enn meira en hún gerir. -ai Katrín H. Ágústsdóttir. Það sem er og það sem maður sér er ekki eitt og hið sama. Þessi meðalháspeki fær byr undir báða vængi við skoðun á sýningu Valtýs Péturssonar að Kjarvalsstöðum. Valtýr er, eins og alþjóð veit, mynd- listarmaður með næstum fjörtíu ára feril að baki, Septembermaður í mannsaldur og krítíker í jafnlangan tíma. Allt síðasta ár var Valtýr síðan á heiðurslaunum Reykjavíkurborgar við að mála myndir sínar. Það er síðan erfitt að koma þeirri vitneskju heim og saman við þau verk sem maður sér á sýningu hans. Valtýr hefur nú endanlega snúið baki við hinum óhlutbundna stóra- sannleika, það vitum við. Hins vegar verður ekki af verkum hans ráðið að hann hafi fundið sér kjöl- festu annars staðar í listinni. Hann málar hús, skip og landslag eins og hann hafi aldrei séð þessi fyrirbæri. Þau lúta engum lög- málum, hvorki hlutveruleikans né málverksins, heldur hrærast í ein- hvers konar myndlistar-limbó. Leikfangakubbar Teikning er annað tveggja, of stíf eða of slöpp, svo hús verða að leik- fangakubbum og hafið að hræringi. Litir eru stríðir og berjast innbyrðis, þannig að myndir gliðna í sundur fyrir augum okkar. Sumar þeirra eru svo illa sam-, stilltar í litum að þær verða beinlín- is kómískar: fjöll og haf mynda ekki eðlilegt mótvægi við það sem gerist í forgrunni, húsin eða bátana, held- ur hanga yfir þeim eins og sverð Damoklesar. Valtýr Pétursson - Málverk, 1985 Það er eins og málaranum takist ekki að fá verk sín til að ganga upp, nema með tilvitnunum í aðra listamenn: Kjarval og Jón Stefáns- son í landslagsmálverkum, Gunn- laug Scheving, kannski einnig Ein- ar Baldvinsson í húsa- og báta- myndum, Matisse og Braque í upp- stillingum og innimyndum. Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON Þessi föng eru heldur ekki sam- ræmd, vaxa ekki saman við vitund Valtýs, heldur vekja þau ævinlega athygli á uppruna sínum. Tværmyndir Þau ná heldur ekki að draga fjöð- ur yfir þá agnúa sem nefndir eru hér á undan, agnúa sem venjulegast eru slípaðir af myndlistarnemum meðan þeir eru í skóla. Sem betur fer leynist löngun til einföldunar einhvers staðar innra með listamanninum. Sú löngun hefur getið af sér tvær bestu myndir sýningarinnar, Keili (nr.49) og Rauðan jökul (nr.55). En þær eru bara tvær á móti áttatíu og tveimur. Það má draga ýmsar ályktanir af því sem maður sér á þessari sýn- ingu, meðal annars þær að heiðurs- laun tryggi ekki heiðarlega mynd- list. -ai

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.