Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Page 20
DV. FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986.
iþróttir__________________iþróttir___________________iþróttir__________________Iþróttir______________ íþróttii
• Karl Þráinsson sést hér reyna að brjótast í gegnum vörn Vals í leik Vals og Víkings í bikarnum í gærkvöldi en ekki hafði Karl erindi sem erfiði í þetta
skipti. DV mynd Brynjar Gauti.
-Ragnarfrá vegna
meiðsla
Frá Kristjáni Bernburg, fréttamanni DV
íBelgíu.
Ragnar Margeirsson gat ekki leikið með
Waterschei í fallleiknum þýðingarmiklá í
Lierse um helgina vegna meiðsla. Lierse
sigraði, 2-1, og útlitið er nú afar dökkt lijá
Waterschei. Liðið er í neðsta sæti í 1. deild
með 19 stig. Lierse hefur 20 og Kortrijk 21
stig. Tvö neðstu liðin falla í 2. deild. Ragnar
var slæmur í læri og töldu læknar í fyrstu
að um bólgur væri að ræða. Hins vegar
kom í ljós að það reyndist slæm tognun.
Ragnar getur ekki leikið með Waterschei
í næstu umferð.
Aðeins þrjár umferðir eru eftir í 1. déild-
inni. Allar líkur eru á að Anderlecht verji
meistaratitil sinn eftir jafntefli, 3-3, gegn
Club Brugge í Brugge á sunnudag. And-
erlecht hefur 48 stig eftir 31 leik en Club
Brugge 46 stig eftir sama leikjafjölda.
Anderlecht hefur miklu betra markahlút-
fall en það ræður ekki í Belgiu ef lið eru
jöfh að stigum heldur sigurleikir. And-
erlecht hefur sigrað í 20 leikjum, Club
Brugge í 19. Standard Liege er í þriðja
sætiíl.deildmeð38stig. hsim
Omggt hiá Víkingi gegn Val
- 3. deildar lið ÍÁ vann KR
- Fimm leikir í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar í handknattleik fóru fram
í gærkvöldi og nokkuð var um óvænt úrslit. Víkingar með aðra hönd á
bikarnum eftir 24-19 sigur gegn Val
FH í Belgíu
Frá Kristjáni Bernburg, fréttamanni DV
í Belgíu.
FH-ingar, leikmenn 1. deildar liðsins í
knattspyrnu, hafa að undanförnu dvalið
hér í Belgíu við æfingar og keppni. Hafa
þeir leikið þrjá æfingaleiki við belgísk fé-
lög. 3. deildar lið Hernes í Gent sigraðl FH,
5-4, i fjörugum leik, Lokerese SV, sem er
4. deildar lið hér, vann FH, 3-1, og aðallið
Lokeren í 1. deild sigraði FH, 3-1. Það var
besti leikur FH-inga. Að vísu var staðan
3-0 fyrir Lokeren í hálfleik og i síðari hálf-
leik voru bestu leikmenn Lokeren ekki
með. Ungir strákar settir inn á í þeirra
stað en hvað um það, FH-ingar léku oft
vel í þessum leik. hsím
Eftir öruggan sigur Víkinga á Vals-
mönnum í 16 liða úrslitum bikar-
keppni Handknattleikssambands Is-
lands í Laugardalshöll i gærkvöldi
verður að telja mjög liklegt að Vik-
ingar verði bikarmeistarar í ár og
vinni þar með bæði deild og bikar.
Fimm leikir fóru fram í bikarnum í
gærkvöldi og óvæntustu úrslitin urðu
í leik Akurnesinga og KR-inga en
Skagamenn sigruðu með eins marks
mun eftir framlengingu.
Leikur Víkings og Vals í gærkvöldi
var tilþrifalítill og eftir tíu mínútna
leik var staðan aðeins 1-1. Víkingar
náðu síðan fímm marka forskoti fyrir
leikhlé og höfðu þá yfir, 12-7. Ekki
náðu Valsmenn að ógna sigri Vík-
inga í síðari hálfleik og Iokatölur
urðu 24-19 Víking í vil. Mörk Vík-
inga skoruðu Steinar Birgisson 7,
Páll Björgvinsson 6, Guðmundur
Albertsson 6, Guðmundur Guð-
mundsson 2, Karl Þráinsson 1,
ísland áfram í
3. deild
- eftir tap fýrir írum, 2-3, í badminton
Þrátt fyrir að íslenska iandsliðinu
í badminton, sem staðið hefur sig
mjög vel á Evrópumeistaramótinu í
Svíþjóð, hafi tekist að sigra í 3. deild
Evrópukeppninnar tókst íslenska
liðinu ekki að komast upp i 2. deild.
í gær lék íslenska liðið gegn því
írska og tapaði 2-3. Eftir einliða-
leiksleikina var staðan jöfn og því
skar tvenndarleikurinn úr um j>að
hvor þjóðin léki í 2. deild. Þau Arni
Þór Hallgrímsson og Elísabet Þórð-
ardóttir töpuðu fyrstu hrinunni 9-15
en unnu þá næstu örugglega 15-5.
Þriðja lotan var lengst af í járnum
en í lokin stóð írska parið uppi sem
sigurvegari og loklatölur 11-15.
Þrátt fyrir að islenska liðinu tækist
ekki að vinna sig upp í 2. deild var
frammistaða liðsins mjög góð og þá
sérstaklega Árna Þórs Hallgríms-
sonar sem er mjög ungur og efnilegur
badmintonleikari.
-SK
ÍBR ___________________ KRR
REYKJAVÍKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR
í kvöld kl. 20.30
FRAM-KR
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
Hilmar Sigurgíslason 1 og Siggeir
Magnmússon 1. Mörk Vals: Jakob
Sigurðsson 5, Jón Pétur Jónsson 4,
Júlíus Jónasson 3, Valdimar Gríms-
son 2, Þorbjörri Guðmundsson 2,
Þorbjörn Jensson 1, Þórður Sigurðs-
son 1 og Geir Sveinsson 1.
Skellur KR-inga á Skaganum
KR-ingar voru slegnir út úr bikar-
keppninni í gærkvöldi á Akranesi.
Heimamenn sem leika í 3. deild sigr-
uðu með eins marks mun eftir fram-
lengdan leik og eru því komnir í
8-Iiða úrslitin.
• KR-ingar voru ekki eina 1. deildar
liðið sem mátti þola tap fyrir sér
fyrirfram álitnum lélegri andstæð-
ingi. Framarar töpuðu með fimm
marka mun, 23-28, fyrir Ármenning-
um og verða það að teljast óvænt
úrslit.
37 mörk á 20 mínútum
• Það gekk mikið á í fyrri hálfleik
hjá Breiðabliki og Fylki í Seljaskóla
í gærkvöldi. Þegar komið var að
leikhléi var staðan 23-14 fyrir UBK
og höfðu liðin því skorað 37 mörk á
20 mínútum í fyrri hálfleik sem gerir
tæp tvö mörk á mínútu. Síðari hálf-
leikinn unnu Blikar síðan, 10-6, og
leikinn þar með, 33-22.
• Þróttarar áttu aldrei möguleika
gegn FH-ingum og Hafnfirðingarnir
sigruðu með 26 mörkum gegn 22.
-SK.
• íslenska landsliðið í badminton sem stóð sig mjög vel á Evrópumeistaramót-
inu sem fram fór í Svíþjóð. íslenska liðið var aðeins Ijórum punktum frá því
aðkomastí2.deild.
Tómas aðal-
þjálfari norska
blaklands-
liðsins
Tómas Jónsson hefur verið ráðinn aðal-
þjálfari norska karlalandsliðsins í blaki.
Stýrir Tómas norska liðinu á Norður-
landamótinu hér á landi í næsta mánuði.
Áður tekur liðið þátt í Spring Cup i Aust-
Tómas Jónsson, þjálfari norska blak-
landsliðsins.
um'ki.
Tómas á að baki 28 landsleiki fyrir ís-
land. Hann lék með Ungmennafélagi
Laugdæla til ársins 1977 er hann hélt til
Noregs til að nema við norska íþróttahá-
skólann.
í Noregi lék hann fyrst með KFUM
Volda en síðan KFUM Osló og varð með
því Noregsmeistari árið 1981. I fyrra var
hann ráðinn þjálfari KFUM Osló jafn-
framt því sem hann starfaði í hlutastarfi
hjá norska blaksambandinu. Hann er
þrítugur að aldri og kvæntur norskri
stúlku. -KMU