Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Side 21
DV. FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986. 21 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir ■■Ætti að duga okkuráSnáni“ - sagðí hetja Gautaborgar, Thorbjöm Nilsson,eftir3~0 sigur á Barcelona Frá Gunnlaugi Jónssyni, fréttaritara DVíSvíþjóð: „Þetta ætti að duga okkur á Spáni,“ sagði Thorbjörn Nilsson, sem var.hetja Gautaborgar í góðum sigri liðsins á Barcelona í undanúrslitun- um i Evrópukeppni meistaraliða í gærkvöldi, 3-0. 43 þúsund áhorfendur sáu leikinn og gífurleg stemmning var meðal áhorfenda. Þá fullyrti sænski sjónvarpsþulurinn að sigur Gautaborgar væri sá mesti hjá sænsku félagsliði, meiri en þegar sama lið sigraði i UEFA keppninni fyrir fjórum árum. Hvað sem líður allri sigurgleði Svía nú er víst að róðurinn verður erfiður fyrir þá í seinni leiknum á Spáni eftir hálfan mánuð. Spönsk lið hafa verið þekkt fyrir það á undanförnum árum að vinna upp stærri mun en þennan á heimavöllum sínum. Það varThorbjörn Nilsson sem gaf Svíum tóninn á 23. mínútu er hann skoraði frá markteig eftir undir- búning félaga síns, Ekströms. Sam- vinna þessara tveggja leiddi einnig til annars marks Gautaborgar rétt fyrir leikhlé. Ekström sendi þá á Nilsson sem lék á tvo Spánverja áður en hann skoraði. Tommy Holmgren skoraði siðan þriðja mark Svíanna á 59. mínútu. Bæði liðin fengu góð tækifæri til að skora á síðasta stundarfjórðungn- um. Nilsson var felldur inni í vítateig Barcelona en ekkert var dæmt og stuttu síðar átti hann skot í stöng. Spánverjarnir voru siðan atkvæða- meiri á lokamínútunum án þess að takast að nýta sér sóknarþungann til marka. -fros WEST HAM FÉLL í LOKiN Bestu leikmenn á Norðurlöndum í sínum aldursflokkum, Jón Arnar Ingvarsson í Haukum og Herbert Arnarson ÍR. Mjög góður árangur unglingaliða Hauka og ÍR á Norðurlandamóti félags- liða (Scania-Cup) í Svíþjóð um páskana Ungir körfuknattleiksmenn úr Haukum og IR gerðu garðinn frægan á miklu unglingamóti í körfuknatt- leik, Scania-Cup, sem fram fór í Sví- þjóð um páskana. Til mótsins var boðið öllum bestu unglingaliðum á Norðurlöndum. Haukar sendu lið í flokk drengja sem fæddir eru 1971 en IR-ingar í flokk drengja sem fæddir eru 1970. Haukarnir urðu í öðru sæti og ÍR-ingar í því þriðja. Bæði liðin geta verið stolt af sínum leikmönnum og ekki kannski síst þeim Jóni Arnari Ingvarssyni, Hauk- um, og Herbert Arnarsyni, ÍR. Þeir voru kosnir bestu leikmenn á Norð- urlöndum í sínum aldursflokkum og voru einnig kosnir í Norðurlanda- úrval. Herbert annað árið í röð og Jón Arnar þrátt fyrir að hann hafi verið ári yngri en allir leikmenn í f. ’71 flokknum. í úrslitaleiknum hjá Haukum sem var gegn sænska liðinu Uppsala fékk Jón Arnar sína 5. villu þegar 10 mínútur voru til leiksloka og það var aðalástæðan fyrir 54-58 tapi Haukanna í úrslitaleiknum. Eftir leikinn var Þorvaldur Henn- ingsson (bróðir Hennings Hennings- sonar í mfl. Hauka) kosinn besti leik- maður úrslitaleiksins og Kristján Henrysson fékk sérstaka viðurkenn- ingu fyrir mesta baráttu. Jón Arnar skoraði flest stig Hauka í mótinu eða 109 stig í leikjunum fimm. Næstir komu þeir Guðmundur Björnsson með 49 stig og Steingrímur Bjarna- son með 46 stig. Úrslit í leikjum Haukanna á mót- inu urðu annars þau að í fyrsta leikn- um unnu þeir Hörsholm frá Dan- mörku, 79-32, þá unnu Haukar Ákersberga frá Svíþjóð, 67-47, loks töpuðu þeir fyrir sænska liðinu Söd- ertalje, 47-53, og í undanúrslitum sigruðu þeir Járva frá Svíþjóð 57-54 og frá úrslitaleiknum er áður greint. Góður árangur ÍR-inga ÍR-ingar kepptu í næsta aldurs- flokki fyrir ofan Haukana og höfn- uðu í 3. sæti. ÍR-ingar tóku einnig þátt í þessu Norðurlandamóti félags- liða, Scania-Cup, í fyrra og höfnuðu þá einnig í 3. sæti. Mótið nú um páskana var mun sterkara en í fyrra og því er árangur ÍR-inga enn betri nú en í fyrra. Álls tóku 12 lið þátt í þessum aldursflokki, drengir fæddir 1970. I fyrsta leiknum unnu ÍR-ingar Brahe, 68-52, þá unnu þeir Söd- ertálje, 66-50, loks töpuðu þeir fyrir sigurvegurum mótsins, Járfálla frá Svíþjóð, 51-69, þá unnu ÍR-ingar Helsingfors, 42-36, og loks unnu þeir Arvika 55-46. Þar með voru ÍR-ingar komnir i undanúrslit en þar töpuðu þeir fyrir Ákersberga, 62-59. í leikn- um um 3.-4. sætið unnu ÍR-ingar Uppsala, 58-55. Herbert Arnarson skoraði flest stig ÍR-inga á mótinu eða 123, næstur kom Steinar Adolfs- son með 76 stig og Björn Bollason skoraði 72 stig. Þess má geta að liðin sem urðu í 1. og 2. sæti i fyrra höfn- uðu nú í 7. og 8. sæti. Líklegt er að Haukum og IR verði boðin þátttaka í þessu sterka móti að ári enda hefur frammistaða lið- anna verið framúrskarandi góð. Strákarnir stóðu sig frábærlega og greinilegt að í þessum efnilegu liðum fara körfuknattleiksmenn framtíðar- innar. Þjálfari Haukaliðsins er Ingvar Jónsson, faðir Jóns Arnars sem áður er getið, en þjálfari ÍR-inga erBjörnLeósson. Liðiðtapaði2-lfyrir Nottingham Forest Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta- ritara DV í Englandi: Nottingham Forest deyfði vonir West Ham um ensku meistaratign- ina í gærkvöldi er Nottingham liðið sigraði 2-1 í viðureign liðanna í Nott- ingham. Það var aukaspyrnusérfræðingur- inn Johny Method sem skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Forest í fyrri hálfleik beint úr aukaspyrnu af 30 metra færi. Tony Cottee jafnaði metin fyrir Lundúnaliðið á 67. mín- útu eftir að hafa snúið laglega af sér varnarleikmenn inn í vítateig Nott- inghamliðsins. En heimamenn áttu lokaorðið. Óvinsælasti maður vallar- ins, Brian Rice hjá Nottingham - Forest sem átt hafði mjög dapran leik skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok og tryggði Forest sigur. Þrátt fyrir tapið á West Ham raun- hæfa möguleika á meistaratitlinum. Liðið hefur tapað fæstum stigunum i deildinni en liðið þarf að leika tíu leiki á þeim 35 dögum er eftir eru af 1. deildar keppninni. Þá'fóru tveir leikir fram i 2. deild í gærkvöldi. Bradford vann Fulham, 3-1, og Brighton og Oldham skildu jöfn, 1-1. -SK -fros Leikmenn Anderlecht sáu rautt í Brussel Frá Kristjáni Bernburg, fréttaritara DV í Belgíu: „Ég bjóst við Rúmenunum mjög sterkum og ég er ánægður með að við skyldum ná að gera þetta mark. Lið Rúmena var geysisterkt og vann sem ein vél. Fyrir leikinn vonaðist ég eftir 2-0 sigri en þetta verður að duga,“ sagði Arie Haan, þjálfari Anderlecht, eftir að liðið hafði unnið - í naumum sigri á Steaua frá Búkarest nauman sigur á Steaua frá Rúmeníu í undanúrslitum Evrópukeppni meistaraliða en leikið var í Brussel. Það má segja að leikmenn And- erlecht hafi séð lítið annað en rautt í leiknum. Vörn Rúmena var mjög þétt og rauðklæddir búningar þeirra voru yfirleitt í skotlínu Belganna. Þrátt fyrir það fengu leikmenn Anderlecht mörg þokkaleg færi. Það var Enzo Scifo sem skoraði eina mark leiksins fyrir Anderlecht í síðari hálfleiknum með því að „vippa“ yfir besta leikmann Steaua sem hafði hætt sér of framarlega í vítateiginn. Scifo fékk ásamt þeim Erwin Van der Bergh og Dananum Andersen tækifæri til að auka við muninn en markvörður Steaua sá við þeim félögum. Þess má geta að leik- menn rúmenska liðsins léku gífur- lega agað. Allir leikmenn liðsins eru í herþjónustu og þjálfari þeirra er hátt settur innan hersins. Arnór Guðjohnsen lék síðustu þrjár mínútur leiksins fyrir And-. erlecht. Hann tók þá stöðu Erwin Van der Bergh sem lítið sást í leikn- um. Fyrirliði Belganna, Van der Eycken, meiddist undir lok fyrri hálfleiks og þurfti að yfirgefa leik- völlinn. -fros

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.