Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Qupperneq 2
2
DV. FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
íslenska flugstjómarsvæðið nær ekki aðeins yfir island og hafsvæðið i kringum landið heldur einnig yfir meginhluta
Grænlands i hæðum yfir 19.500 fet og norður fyrir Grænland og Svalbarða að norðurpólnum. Um þetta svæði fara yfir
40 þúsund flugvélar á ári og allt upp í 260 flugvélar á dag. Austurmörk svæöisins em milli Færeyja og Noregs.
Frásagnir breskra blaða af flugatvikinu yfir íslandi:
Næstum búnir
að drepa okkur
Frá Kristinu Þorsteinsdóttur, frétta-
ritara DV í London:
Stærstu blöð Bretlands hafa birt
fréttir um atburðinn yfir íslandi þegar
tvær farþegaþotur, fró British Airways
og SAS, höfðu nærri rekist saman.
The Guardian segir á blaðsíðu tvö
að 590 manns hafi verið 200 fet frá
dauðanum vegna mistaka íslenskrar
flugumferðarstjómar. Verið sé að
rannsaka málið.
The Times er með frétt á forsíðu,
neðarlega, um atburðinn. Talsmaður
SAS í Kaupmannahöfn segir í viðtali
við blaðið að félagið líti þetta mjög
alvarlegum augum.
Næststærsta frétt á forsíðu Daily
Mail er um flugatvikið yfir íslandi.
Frétt þessi hefst á þeim orðum að
sinnuleysi íslenskra flugumferðar-
stjóra hafi verið kennt um það atvik
þegar tæplega 600 manns sluppu
naumlega við dauðann. Lögregla á
íslandi sé að rannsaka hvort flugum-
ferðarsfjórar verði ákærðir.
Daily Mail hefur eftir Pétri Einars-
syni flugmálastjóra að svo virðist sem
mannleg mistök hafi átt sök á at>
burðinum. Flugmálastjóm hafi beðið
lögreglu að rannsaka málið og hún sé
að athuga hvort hér hafi verið um
saknæmt atriði að ræða.
Pétur Einarsson segir ennfremur í
viðtali við Daily Mail að agaleysi sé
meðal starfsfólks. Sumir starfsmenn
fylli ekki út skýrslur um flugumferð
og það veki spumingu um hæfni þeirra
til starfans.
Blaðið segir að aðeins heppni hafi
forðað 590 manns frá dauða. Áhöfh
British Airways-þotunnar hafi á síð-
ustu stundu séð SAS-flugvélina þjóta
framhjá. Flugmenn hafi engin tök
haft á að gera neitt.
Sagt er að flugtuminn í Reykjavík
hafi heyrt flugmann SAS-þotunnar
segja: „Mér þykir leitt að þuífa að til-
kynna ykkur það að árekstur virðist
óumflýjanlegur."
Eftir farþega frá Grænlandi er haft:
„Þetta er ótrúlegt. Þeir hafa allan
himingeiminn. Samt vom þeir næstum
búnir að drepa okkur.“
-KMU
Við vitum af vandamálinu
- segir Roderick Heytmeier hjá Alþjóðaflugmálastofhuninni
Roderick Heytmeier, framkvæmda-
stjóri hjá Alþjóðaflugmálastofiiuninni
í Montreal, ICAO, segir að engin
ástæða sé til að færa alþjóðaflugum-
ferðarþjónus|tu frá íslandi og slíkt hafi
ekki komið til tals.
„Á Islandi er mjög góð þjónusta. Is-
land er staðsett á mjög góðum stað í
Atlantshafinu og samstarfið við aðrar
flugstjómardeildir, svo sem í Kanada
og Bretlandi, er mjög gott,“ sagði
Heytmeier sem er meðal annars yfir
deild þeirri sem annast framkvæmd
alþjóðasamnings um flug á Norður-
Atlantshafinu.
„Mér þótti leitt að heyra um þetta
atvik yfir íslandi síðastliðinn mánu-
dag. Áuðvitað vonum við að svona
komi ekki fyrir.“ -
í samtali DV við Heytmeier í gær
kom einnig fram að honum var vel
kunnugt um önnur alvarleg flugum-
ferðaratvik í íslenska flugstjómar-
sviðinu undanfarin ár.
„íslenska flugmálastjómin gerir sér
grein fyrir vandanum og við vitum af
vandamálinu. Þetta er einmitt ástæð-
an fyrir fjölgun flugumferðarstjóra úr
30 í 38. Ég held að þörf hafi verið fyr-
ir fleiri flugumferðarstjóra. Nýir
flugumferðarstjórar hafa verið í þjálf-
un í Kanada og ég held að þeir séu
núna í þjálfun í Reykjavík.
Það er verið og hefúr verið unnið
að því að auka öiyggið, svo sem með
betri tækjabúnaði, með því að tengja
flugstjómarmiðstöðina við ratsjár-
stöðvar. Og mér skilst að fara eigi að
reisa nýjar ratsjárstöðvar á norðvest-
ur- og norðausturhomi íslands sem
mun enn auka á öryggi flugumferð-
ar,“ sagði Heytmeier.
-KMU
Jón og Hansen jafriir og efstir
í gær lauk 8. umferð á alþjóðlega
skákmótinu í Helsinki og í þeirri
umferð vann Jón L. Ámason
Finnann Valke Salmi. Jón hefúr nú
unnið 6 skákir í röð og em hann og
Curt Hansen jafnir og efstir á mótinu
með 6'A vinning hvor.
í 3.-4. sæti em Tisdall og Timos-
henko frá Sovétríkjunum með 5 Vi
vinning hvor. Nú em 3 umferðir eft-
ir á alþjóðlega skákmótinu í Hels-
inki og teflir Jón næst við Svíann
Lars Kalsson. Þarf Jón 8 vinninga
á þessu móti til að ná stórmeistarat-
itli. -S.Konn.
Haukur Hauksson vaiaflugmáiastjóri:
Óttast ekki að
flugumferðar-
þjónustan verði
færð annað
„Ég á ekki von á því. Þetta er
það algengt í öðrum löndum að
svona atvik gerist,“ sagði Haukur
Hauksson varaflugmálastjóri er
DV spurði hvort flugumferðarat-
vikið yfir Austfiörðum á mánudag
gæti orðið til þess að Alþjóðaflug-
málastofnunin, ICAO, færi að
íhuga að fela öðrum þjóðum um-
sjón alþjóðaflugumferðar á því
svæði sem íslendingar hafa hingað
til annast.
„Það væri frekar að menn ýti á
að starfsemin verði vandaðri og
tækjabúnaður jafnframt aukinn,“
sagði Haukur.
íslendingar fá tæplega 100
stöðugildi greidd
Alþjóðaflugmálastofnunin greið-
ir íslendingum kostnað við 94
stöðugildi til að halda úti þjónustu
við flugumferð. Stöðugildin em 38
hjá Flugmálastjóm, 36 hjá Pósti
og síina og 20 hjá Veðurstofú. Á
árinu 1985 greiddi Alþjóðaflug-
málastofiiunin íslendingum um
140 milljónir króna fyrir þjón-
ustuna.
Haukur kvaðst ekki minnast
þess, á þeim tíu árum sem hann
hefði verið hjá Flugmálastjóm, að
þrýstingur hefði verið á að færa
flugumferðarþjónustuna frá ís-
landi til annars lands. Þetta væri
á valdi fastaráðs Alþjóðaflugmála-
stofnunarinnar. Þó hefði á árinu
1976 verið sett á stofn sérstök
nefrid til að gera úttekt á þessum
málum.
Þjónustan fest í sessi fyrir
tíu árum
Leifur Magnússon, þáverandi
varaflugmálastjóri, var í nefndinni
sem Haukur minntist á. Hlutverk
nefhdarinnar var að endurskoða
dönsku og íslensku alþjóðaflug-
þjónustuna með sérstöku tilliti til
hagkvæmnissjónarmiða.
„Niðurstaðan í þessari nefrid
varð eiginlega til að festa þessa
þjónustu hérlendis frekar í sessi,"
sagði Leifúr.
Hann sagði að verkefhi nefhdar-
innar hefði meðal annars verið að
karrna hvort flugumferðarþjónust-
an hefði tilvist í framtíðinni eftir
að gervihnettir kæmu. Ýmsir póli-
tískir annmarkar hefðu hins vegar
reynst vera á því að nota gervi-
hnetti. Menn hefðu verið hræddir
um að of mikið vald myndi með
því færast yfir á eitt ríki. Gervi-
hnattamálin hefðu ennfremur
verið talin eins og óútfylltur víxill.
„Bretar studdu okkur eindregið
í því að halda þessari þjónustu,"
sagði Leifur.
Hann kvað ógerlegt að vita hvort
atvikið síðastliðinn mánudag hefði
áhrif í þá átt að alþjóðaflugþjón-
ustan yrði tekin úr höndum Islend-
inga. Meginmáli skipti hver
endanleg niðurstaða yrði af rann-
sókninni. Leifur taldi ekki óeðli-
legt að svona atvik ýtti undir að
athugað yrði hvort eitthvað væri
að.
„Það er rétt að svona atvik,
misjafnlega alvarleg, eru að gerast
daglega út um allan heim. Ég veit
hins vegar ekki hvort tíðnin er
meiri hérlendis en annars staðar í
hlutfalli við flugumferð," sagði
Leifur.
-KMU
Stórbruni á ÁHjgeirsvöllum:
Reykjamiökkurinn
sást í
70 km
Öll útihús á Álfgeirsvöllum í Lýt-
ingsstaðahreppi í Skagafirði brunnu
til grunna í stórbruna þar síðdegis í
gær. Var reykjarmökkurinn svo mikill
að hann sást vel á Hofsósi sem er í
70 km fjarlægð.
„Það brann allt sem brunnið gat,“
sagði Bjöm Mikaelsson, yfirlögreglu-
þjónn á Sauðárkróki, í samtali við DV.
„Húsin vom alelda er slökkviliðið
fjariægð
kom að og engu var hægt að bjarga.“
Húsin sem bmnnu vom 100 kinda
fjárhús, vélageymsla, 12 bása hesthús,
hlaða og súrheystum en allt var þetta
sambyggt. Engar skepnur vom í hús-
unum er eldurinn kom upp en í
vélageymslunni vom tvær diáttarvél-
ar sem gjöreyðilögðust.
Gmnur leikur á að kviknaði hafi í
út frá rafmagni. -PR]
Kristján hleypur
í skarðið
Kristján Jóhannsson óperusöngvari
féllst í gær á að hlaupa í skarðið fyrir
hinn heimsþekkta rússneska bassa-
söngvara, Paata Burchuladze, sem
meinað var að syngja hér á Listahá-
tíð. Kristján syngur ítalskar ópemar-
íur með Sinfóníuhljómsveit Islands á
tónleikum í Háskólabíói á morgun,
föstudag.
„Þetta er mikið drenglyndi gagnvart.
Listahátíð og jafiiframt karlmannleg
ákvörðun hjá honum,“ sagði Birgir
Sigurðsson, blaðafúlltrúi hátíðarinn-
ar. „Kristján tekur þetta að sér með
nánast engum fyrirvara og frestar æf-
ingum í Bandaríkjunum til að geta
liðsinnt okkur. Við kunnum honum
miklar þakkir fyrir og vonum einnig
að fólk bregðist vel við.“
-ai