Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Blaðsíða 15
DV. FIMMTUDAGUR 5. JÚNl 1986. 15 Dregur að næstu lotu „Sjálfstæðisflokkurinn varð vissulega að þola nokkurt tap, en hann vann einnig sigra.“ Þá eru sveitarstjórnarkosningarn- ar afetaðnar í stærstu byggðunum og nú fara stjómmálamenn að huga að næstu lotu, þingkosningunum, sem verða í síðasta lagi að ári. Sú barátta, sem fram undan er, verður víða háð. Næsta þing verður ábyggi- lega hreint kosningaþing. Stjómar- andstaða mun eðlilega láta þar öllum illum látum og vafalítið munu einhverjir þingmenn úr stjómarhð- inu, sem ekki vænta mikils fylgis vegna merkra afreka á þingi, reyna að afla sér eftirtektar og fylgis með einhverri óþekkt við flokksforystu. Og kosningabaráttan verður víðar rekin. Reynt verður að efha til ófrið- ar á vinnumarkaði, eftir því sem tækifæri gefast. Stjómarandstaðan er að verða úrkula vonar um að samningamir frá því f vor mistakist nema utanaðkomandi verk verði til þess. Hún hefur nú á nokkrum stöð- um í hendi sér að fylgja eftir hinu svokallaða Bolungarvíkursam- komulagi og lyfta lægstu launum meðal fámennra hópa bæjarstarfe- manna. Með því gæti hún valdið vemlegum óróa á vinnumarkaði, því slík hækkun á lægstu töxtum myndi valda gífurlegri hækkun launa, þar eð mikill hluti ákvæðisvinnu byggir á þeim. Að vísu nær Bolungarvíkur- samkomulagið ekki til þeirra í orði kveðnu, en nærri má geta hvort ekki yrði reynt að knýja slíkt fram í samningum, fljótlega eftir að þeir samningar yrðu fyrirmynd stórra sveitarfélaga. Síðast og ekki síst mun almennur áróður verða stórhertur. Reynt verð- ur að grafa upp hvert það smá- hneyksli sem finnast kann, að ekki sé nú talað um stærri málin, og eins miklu ryki þyrlað upp og mögulegt reynist og reynt að tengja stjóm- málamönnum. Ef að líkum lætur mun takast að reyta æruna af þó nokkrum mönnum næsta árið, enda slíkt ekki aðeins pólitísk nauðsyn sumra, heldur og hin ákjósanlegasta söluvara, því fátt gleður fremur augu almennra samborgara. Hvernig fór - og hvers vegna? Satt besta að segja urðu merm ekki mikils vísari við að hlýða á for- ystumenn stjómmálaflokkanna að afloknum kosningunum rseða um það hvemig kosningamar í raun og vem hefðu farið, og þaðan af síður hvers vegna. Auðvitað er ljóst af einfóldum prósentuútreikningi að stjórnarflokkamir töpuðu og stjóm- arandstaðan vann á. Hins vegar em sigramir og ósigramir misjafhlega Kjallari á fimmtudegi Magnús Bjarnfreðsson þýðingarmiklir og bæði orsakir og afleiðingar ofit á tíðum óljósar. Lítum á hvem flokk fyrir sig og byrjum á stjómarflokkunum. Sjálfetæðisflokkurinn varð vissu- lega að þola nokkurt tap, en hann vann einnig sigra. Vafalaust er flokksmönnum hans jafiit og forystu efet í huga að þeir héldu Reykjavík. í raun og vem held ég að þeim finn- ist það jafhast á við allt það sem þeir töpuðu, og jafnvel þótt það hefði orðið miklu meira. Heildartap flokksins getur heldur alls ekki tal- ist mikið, þegar tillit er tekið til þess að hann á aðild að ríkisstjóm, og er til dæmis hreint smáræði miðað við það sem gerðist árið 1978. Tap Framsóknarflokksins varð vissulega miklu meira og hann vann hvergi neinn umtalsverðan sigur. Segja má raunar að svipuðu gegni um hann og Sjálfetæðisflokkinn að ósigurinn varð ekkert svipaður og 1978. Vafalaust hafa líka margir glaðst yfir því að flokkurinn hélt sæti sínu í Reykjavík. Það er eftir- tektarvert að flokkurinn tapar um allt land, þótt undantekningar séu á einstökum stöðum. Hvergi er þó tap- ið eins gegnumgangandi og í Reykjaneskjördæmi. Vafalaust veld- ur það mörgum hugsandi mönnum í flokknum miklum áhyggjum, þótt öðrum sé væntanlega sama. Vonir Framsóknar Það virðist vonlítið fyrir flokkinn að ná aftur þingsæti í kjördæminu innan árs eftir þá útreið sem hann fékk nú. Eitthvað mikið þarf einnig að gerast í Reykjavík til þess að það takist. Án þess er flokkurinn orðinn þingmannslaus meðal yfirgnæfandi meirihulta þjóðarinnar og hans bíð- ur ekkert annað en hægur dauðdagi áhrifalauss minnihlutahóps. Vafalítið reyna einhverjir að kenna stjómarsetu flokksins um, en því miður er hún ekki nema lítill hluti ástæðunnar til þess hvemig er komið fyrir flokknum. Innanflokks- eijur og baktjaldamakk eiga líka sína sök. En að langmestu leyti er þetta afleiðing þess hver afetaða þingflokks flokksins hefur verið til þessa landshoms. Ekki fyrst og fremst sem heildar, heldur þeirra einstaklinga sem hann mynda. Sú þróun, sem nú er að ná hámarki með dauða flokksins á svæðinu, hófst með byggðastefhunni 1971, og þótt löngu hafi verið snúið af þeirri braut, sem þá var mynduð í offorsi, em afleiðingamar enn að koma fram á svæðinu og fólk treystir flokknum ekki. En það grátlega er að enn skilja ekki nema tiltölulega fáir þingmenn flokksins ástæðuna, og mig grunar að þeir muni aldrei gera það! Ávinningar stjórnar- andstöðunnar Stjómarandstaðan vann á í kosn- ingunum. Alþýðubandalagsmenn vom þó hógværir eftir sigurinn og létu sér um munn fara að þeir hefðu vænst betri útkomu. Það skil ég vel. Það hljóta að hafa verið þeim von- brigði að uppskeran varð ekki meiri. Alþýðuflokkurinn vann stærstu sigrana. Fylgi flokksins jókst um nær allt land, mest þó í Reykjanes- kjördæmi. Formenn stjómarandstöðuflokk- anna reyndu eðlilega að þakka það andstöðu sinni við ríkisstjómina að þeir unnu á. Það var hins vegar ekki mjög sannfærandi og skal enn vitnað til 1978. Það var líka áber- andi að þegar talað var við liðsodda stjómarandstöðunnar, þar sem mestu sigramir unnust, þá minntust þeir lítið á að andstaða við ríkis- stjómina hefði ráðið úrslitum. Þeir vitnuðu til staðbundinna ástæðna en ekki ríkisstjómar. Vafalítið á andstaða við ríkis- stjómina einhvem þáti í sigri stjóm- arandstöðunnar. En ég held að meginástæðan hggi í betri áróðurs- aöferðum, einkum hjá krötum. Þar skorti augljóslega ekki íjármagn og þeir komu fram með ýmsar nýjung- ar, svo sem með útvarpsstöð. Þó komust þeir merkilega upp með það að blekkja kjósendur í húsnæðismál- um, með því að gera þau að kosn- ingamáli í sveitarstjómarkosning- um, sem alls ekki ráðast þar, heldur á alþingi. Það kann að reynast þeim skammgóður vermir, því vafalítið kunna hinir flokkamir að svara þessum tillögum í þingkosningun- um. Því er hætt við að Ámundi þurfti að fara aftur til Svíþjóðar fyr- ir þær. Magnús Bjamfreðsson. „Sú barátta, sem fram undan er, verður víða háð. Næsta þing verður ábyggilega hreint kosningaþing.“ Ævintýri og galdrar Á aflíðandi sumri 1983 hittust að máli nokkrir samherjar í baráttunni við „rauða dauða“ til að viðra þá hugmynd að stoftia samtök hjarta- sjúklinga. Kjami þessa fámenna hóps hafði fylkt sér um Ingólf Vikt- orsson loftskeytamann sem síðar átti eftir að verða sporgöngumaður og driffjöður í þeirri hröðu viðburðarás sem fylgdi. Með hraða ljóssins snerust hjólin: Fjölmennur könnunarfundur með líflegum undirtektum, undirbúning- ur stofnsamkundu, smíðar uppkasts að lagafrumvarpi o.s.frv. Kjölur var lagður að stofnun nýrra sjúklinga- samtaka. Stofnfundur var haldinn' áttunda dag október eða rúmum mánuði eft- ir fæðingu hugmyndarinnar. Á stofiifundi var saman komið hálft þriðja hundrað manna. Nýbomum króganum var gefið ábúðarmikið nafn: Landssamtök hjartasjúklinga. En þrátt fyrir brennandi áhuga, sem skein úr andliti sérhvers fundar- manns, var þó í reynd ekki annað upp á að bjóða né fram að færa en takmarkalausa bjartsýni og óbilandi trú á það að þessum samtökum væri ætlað að lyfta Grettistaki í barátt- unni fyrir sameiginlegu markmiði. Ævintýrin Auðvitað vom óteljandi ljón á veg- inum sem menn höfðu ekki komið auga á í bjartsýnisvímunni. En ljón- in hurfu á brott hvert af öðm og við tók ævintýrið. Af einhverri tilviljun, sem ég kann ekki skýringu á, hafði fyrsta eintak á leið til Evrópu fró framleiðendum í Bandaríkjunum af svokölluðu óm- skoðara strandað um skamman tíma á Landspítalanum hér án þess að ráðamenn hefðu nokkra möguleika til að halda tækinu hérlendis. Stjóm Landssamtaka hjartasjúkl- inga fékk pata af þessum blankheit- um stjómvalda og áður en nokkur tími gæfist til umhugsunar var ten- ingnum varpað: Stjóm Landssam- bands hjartasjúklinga tók málið í sínar hendur, gaf loforð um að reiða af hendi tæpa milljón þegar til henn- ar væri kallað. Fyrsta fjáröflunamefhd samtak- anna var sett á laggimar og hjólin snemst með ævintýralegum hraða. Skömmu eftir áramót 1983-84 eða rúmum þrem mánuðum eftir stofnun samtakanna var stjómendum Landspítalans afhent andvirði óður- nefndra tækja. I kjölfar þessarar fyrstu vel heppn- uðu herleiðingar samtakanna fylgdu stórgjafir til Landspítala og Borg- arspítala, sem ekki verða tíundaðar hér. Hitt er önnur saga, að fjáröflun- in og örlæti samborgaranna ósamt frískleika félagsmanna samtakanna var engu öðm lík en ævintýri þá þau Björn Bjarman lögfræðingur gerast skemmtilegust og með mest- um ólíkindum. Galdrar Þá kemur að Rúriksþætti í sögu samtakanna. Eitt af fjarlægum markmiðum nýstofriaðra samtaka var að fá hjartaskurðlækningar á heimavígstöðvar. Leitað var til stjómvalda. Undirtektir misjafhar eins og gengur, en þó skal ekki und- an dregið að fyrrverandi heilbrigðis- ráðherra, Matthías Bjamason, sýndi málinu ótrúlega mikinn áhuga - og skilning og er mér til efe að umrædd áform hefðu komist á koppinn ef vilja hans og styrks hefði ekki notið við. Undireins og stjóm samtakanna sá hilla undir áður fjarlæg markmið var hafist handa. Skipuð var ný fjáröflunamefhd undir stjóm galdrameistarans Rú- riks Kristjánssonar. Með sölu merkja, sem sumum þótti ekki væn- leg leið til fjáröflunar, tókst galdra- karlinum Rúrik og hans fólki að hanka upp nægilega margar milljón- ir til að endar næðu saman um upphaf hjartaskurðlækninga hér- lendis sem em mjög á næsta leiti. Og enn mundar Rúrik galdratólin og hefur í sigti framlag til endur- hæfingar hjartasjúklinga sem starf- að hefur að Reykjalundi. Þrátt fyrir öll ævintýri og galdra þá em það fyrst og síðast þið, ágætu samborgarar, sem eigið leikinn þeg- ar leitað verður til ykkar með litlu hjörtun sem em góð tókn um þau störf sem samtök hjartasjúklinga munu ótrauð beita sér fyrir. Bjöm Bjarman „Þrátt fyrir öll ævintýri og galdra þá eru það fyrst og síðast þið, ágætu samborgar- ar, sem eigið leikinn þegar leitað verður til ykkar með litlu hjörtun...“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.