Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Page 8
8
DV. FIMMTUDAGUR 5. JÚNl 1986.
Útlönd Utlönd Útlönd Útlönd
Chemobyl er milljón sinnum
verra en slysið í Harrisburg
Edward Teller, sém nefridur hefur
verið faðir vetnissprengjunnar, segir
að magn geislavirló-a efna, sem slapp
út í andrúmsloftið í slysinu í Chemo-
byl, hafi sennilega verið um milljón
sinnum meira en það sem slapp i slys-
inu við Harrisburg i Bandarikjunum
árið 1979.
Hinn sjötíu og átta ára gamli eðlis-
fræðingur sagði að útreikningar hans
væru byggðir á því hve mikil geisla-
virkni hefði borist til Svíþjóðar og
annarra Evrópulanda svo og hegðun
vinda.
„Við áætlum að það hafi verið um
það bil milljón sinnum meira en það
sem slapp út í andrúmsloftið í Harris-
burg,“ sagði Teller á ráðstefnu vís-
indamanna í gær.
Teller sagði einnig að ef Sovétmenn
gæfú upp allar upplýsingar um slysið
yrði það til að auðvelda að gera sov-
ésk kjamorkuver ömggari en þau
eru í dag.
Hann sagði að í seinni heimsstyq-
öldinni heföu Bandaríkjamenn byggt
þrjú kjamorkuver af sömu gerð og í
Chemobyl en nefnd um öryggismál í
kjamorkuverum, sem var undir hans
stjóm, mæltist til þess að þeim yrði
lokað árið 1950 og benti á að þau
væm hættuleg.
„Engin slík kjamorkuver hafa verið
byggð í Bandaríkjunum frá því að
nefhdin kvað upp þennan úrskurð,"
sagði Teller.
Hann sagðist ekki hafa séð þessi
sovésku kjamorkuver en vita nægi-
lega mikið um kjamorkuver almennt.
Hann vissi fyrir víst að þessi tegund
kjamorkuvera væri ekki ömgg.
Edward Teller, sem nefndur hefur verlð faðlr vetnissprengjunnar, segir slysið
I Harrisburg hafa verlð smáóhapp mlðað vlð slysið I Chemobyl
w
ermeiraen
Shakespeare
ViðtalviðÖmÁmason
leikaraogspaugara
Landnemaráhjólum
Greinumgamlabíla
Hjónabönd sem endast
Fófboltinn
skiptir
Norðmenn
** ■■ ** ■■
ollu mali
Björg Eva Erlendsdóttir, Stavangri
Ekkert lát. er enn orðið á verk-
fallsaðgerðum Norðmanna en í
dag eða á morgun verður ríkis-
stjómin að taka afstóðu í málinu.
Um daginn tókst borgarstarfs-
mönnum í Osló að leysa sína deilu
og héldu menn þá að samningar
myndu nást víðar. En því fór fjarri,
Aðgerðimar magnast dag frá degi
og æ fleiri stofnanir og fyrirtœki
lamast að meim eða minna leyti.
Það sem ekki lamast em útsend-
ingar sjónvarpsins á fótboltaleikj-
um frá Mexíkó. Sjónvarpið sendir
ekkert nema,' fréttir og fótbolta,
sem hefúr fengið undanþágu frá
verkfallinu.
Sjúkrahús fá hins vegar ekki
undanþágu. Þar liggur fólk eins
og hráviði um ganga og fær varla
nauðsynlegustu aðhlynningu.
Hreinsunardeildir fá ekki undan-
þágu og sums staðar hafa rusla-
haugamir verið lokaðir í næstum
hálfan mánuð og sorpið hleðst upp
á götum, í fyrirtækjum og á heimil-
um.
Flug frá Bergen mun verða
stöðvað á fóstudaginn ef verkfullið
leysist ekki og engir skólar eða
bamaheimili fá undanþágu. Svona
mætti lengi telja. En fótboltinn
lengi lifi og það lítur út fyrir að
Norðmenn lifi lyrst og fremst fyrir
hann.
Sprengju-
hótun
hjá
Pollini
Franska lögreglan stöðvaði í gær
píanótónleika hjá ítalska píanó-
snillingnum Maurizio Pollini, eftir
að tilkynning barst um að sprengju
heföi verið komið fyrir í tónleika-
höllinni í París.
Pollini, 6em er einn allra fremsti
píanóleikari í heiminum í dag, var
í miðju verki, er lögreglan fýrir-
skipaði að tónleikahöllin skyldi
rýmd, en hún var þéttsetin.
Engin sprengja fannst, og Pollini
hélt áfram þar sem frá var horfið.
Umsjón:
Ólafur Amarson
rsteinsson
yonnsonhf
ÁRMÚLA 1 - SlMI 68-55-33