Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Page 17
DV. FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1986.
17
Lesendur
Lesendur
Lesendur
,lnger Anna er rós í hnappagat rásar 2,“ segir Guðmundur Þorsteinsson.
rásarinnar
Rós
Guðmundur Þorsteinsson skrifar:
Ég var að lesa DV á mánudaginn.
Ég rakst þar m.a. á bréf frá „rásarað-
dáanda" þar sem hann ræðst á
ósmekklegan hátt að stjómanda þátt-
arins „Út um hvippinn og hvappinn“,
Inger Önnu Aikman.
Mig langar aðeins að segja frá því
að ég er þessum málflutningi algerlega
ósammála. Inger Anna þykir mér þvert
á móti vera einn allra besti þátta-
stjómandinn hjá útvarpinu. Henni er
lagið að bera margvísleg áhugaverð
málefhi á borð fyrir hlustendur á að-
gengilegan og skemmtilegan hátt.
Þættir hennar em líka fjarri því
grunnhyggna glamri sem rás 2 er því
miður orðin svo þekkt fyrir, svo ekki
sé minnst á allar málvenjumar sem
urðu til við tilkomu stöðvarinnar.
Inger Anna er mjög vel máli farin,
auðheyrilega bráðgreind, fjölfróð og
víðsýn ung kona, sem alltaf er ánægju-
legt að hlusta á. Ekki þekki ég hana
sjálfa en af því sem ég hef heyrt til
hennar í útvarpinu þykist ég mega
ráða að hún muni átta sig á hvert rót
slæmrar gagmýni muni liggja. Það er
því ástæðulaust að ætla að slíkt muni
draga úr henni kjark. Ég vona að
stjómendur útvarpsins beri gæfu til
að láta hana ekki ganga sér úr greip-
um og fái henni því betri og meiri tíma
fyrir þennan þátt.
Það var eitt sinn sagt um fyrrver-
andi forseta Bandaríkjanna, að hann
væri ekki nægilega greindur til að
bæði ganga og tyggja í senn. Það má
kannski benda „rásarunnanda" og
vinnufélögum hans á skiljanlegra efhi
í útvarpinu. Það er t.d. miklu auðmelt-
ara að einhver hafi skorað mark í
fótbolta heldur en margt af því sem
Inger segir í útvarpinu. Mönnum
hættir til að telja það óhæft sem þeir
ekki skilja. Ég vil hvetja vinnufélag-
ana á verkstæðinu til að leggja frá sér
verkfærin um stund og hugleiða þetta.
Inger er sannarlega rós í hnappagat
rásar 2.
Áskorun til greiðenda fast-
eignagjalda í Mosfellshreppi.
Fasteignagjöld í Mosfellshreppi 1986 eru nú öll gjaldfallin.
Gjaldendur sem ekki hafa gert skil innan 30 daga frá birt-
ingu áskorunar þessarar mega búast við að óskað verði
nauðungaruppboðs á eignum þeirra, samanber lög númer
49/1951 um sölu lögveða án undangengins lögtaks.
Mosfellshreppi, 5. júní 1986.
Innheimta Mosfellshrepps.
Verslunin
Sendum
i póstkröfu
um allt land.
eiðiVf
Langholtsvegi 111
104 Reykjavík 0) 687QT90
Stærsta
sérverslun
landsins
með
veiðivörur.
Veiðimenn!
m
NU eykst veiðivonin.
Nýjar sendingar af:
ódýru dönsku vöðlunum, kr. 2.575,-
Jensen-spúnum,
Daiwa-flugustöngum,
Daiwa-spinnhjólum, verð frá kr. 970,
Flugur og linur i úrvali.
Margra ára reynsla sannar gæði
þakmálningunar frá Málningu hf.
ÞOL er sérframleidd alkýðmálning,
sem innlend reynsla hefur
skipað í sérflokk vegna endingar
og nýtni.
ÞAKMÁLNING SEM ENDIST
>OL er framleitt í fjölbreyttu litaúrvali.
Híandhægt litakort auðveldar
valið á réttum lit.
l>OL tryggir þér fallegt útlit
Dg góða endingu^
málning