Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Síða 18
18 DV. FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1986. PANTANIR SÍMI13010 r\ncuiL/r\wn i in HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG 29. LÖGTÖK Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtunnar I Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskurði, uppkveðnum 2. þ.m., verða lögtök látin fara fram fyrir vangoldnum opinberum gjöldum sem féllu I gjald- daga 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí. og 1. júní 1986. Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum, ásamt dráttarvöxt- um og kostnaði, verða hafin að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði tilskyldar greiðslur ekki inntar af hendi innan þess tíma. Reykjavík 2. júní 1986. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. VERZLUNARSKÓLIÍSLANDS ÖLDUNGADEILD öldungadeild verður starfrækt við Verslunarskóla Is- lands frá og- með næsta hausti, kennt verður mánudaga til föstudaga kl. 17-22. Boðið verður upp á nám til verzlunarprófs og stúdentsprófs og geta þeir sem lokið hafa verzlunarprófi fengið það viður- kennt og innritað sig til stúdentsnáms, Innritun fer fram á skrifstofu skólans vikuna 2.-6. júní kl. 8-12 og 13-16. Innritunargjald er kr. 1.000,- ——————— “ RAFMAGNSVEITUR RlKISINS ÚTBOÐ Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfarandi: RARIK-86009: Þrífasa dreifispennar 800-1600 kVA. Opnunardagur: Fimmtudagur 10. júlí 1986 kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóð- endum er þess óska. -Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis- ins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með fimmtu- degi 5. júní 1986 og kosta kr. 300,- hvert eintak. Reykjavík, 3. júní 1986. Rafmagnsveitur ríkisins. ERTU KENNARI? - VILTU BREYTA TIL? Hvemig væri þá að athuga alla möguleika á því að gerast kennari í Grundarfirði? Grunnskólinn í Grundarfirði er að stærstum hluta í nýlegu húsnæði. Hann er ágætlega búinn tækjum, með góðri vinnuaðstöðu kennara ásamt góðu skóla- safni. Bekkjardeildir eru af viðráðanlegri stærð (12-14 nem.) en heildarfjöldi nemenda er 150. Sértu að hugsa um að slá til þá vantar kennara í al- menna bekkjarkennslu og til kennslu í raungreinum, tungumálum og handmennt. Ennfremur til kennslu á skólasafni (hálft starf á móti hálfu starfi á almennings- safni). Grundarfjörður er í fögru umhverfi í um það bil 250 km fjarlægð frá Reykjavík. Þangað eru daglegar ferð- ir með áætlunarbílum og flug þrisvar í viku. Viljir þú kynna þér málið þá sláðu á þráðinn. Skólastjórinn, Gunnar Kristjánsson, gefur nánari upp- lýsingar, síminn er 93-8802 eða 93-8736. Skólanefnd. Menning_______ Menning_____________Menning kaupa hund? Guðnuindur Olalsson Emil og Skundi Útgefandi Vaka og Helgafell Rvík 1986 Höfundur er fæddur á Ólafsfirði, 35 ára að aldri, lærður leikari og starf- andi í Reykjavík, kvæntur og þriggja bama faðir. Þetta er fyrsta bók hans, en áður hefiir birst eftir hann ein smá- saga. Um síðustu áramót stoínaði Ármann Kr. Einarsson, hinn kunni og vinsæli bamabókahöfimdur, verð- launasjóð með stuðningi fjölskyldu sinnar og bókaforlags í Reykjavík. Forlagið auglýsti samkeppni um besta bamabókarhandrit og hét verðlaunum á vegum sjóðsins. Sá fyrsti er þess heiðurs verður aðnjótandi að hljóta verðlaunin er einmitt Guðmundur Ól- afsson. í frétt um útkomu þessarar bókar er þess getið, að dómnefhdin hafi þóst þess fullviss, að handrit þessarar bókar hlyti að vera komið frá þrautreyndum rithöfundi. Þessi ummæli lýsa bókinni nokkuð vel. Það er eins og reyndur og ráðsett> ur maður hafi skrifað hana. Hér eru engin ærsl ungs manns, svo sem hefði mátt vænta. Þessi höfimdur virðist ekki þurfa að hlaupa af sér nein hom, hvorki í stfl né efhisvali, engar ævin- týra- né auglýsingabrellúr. En í því, sem ég hér nefhi geta falist bæði kost- ir og gallar ungs höfundar, eftir því hvemig úr spilast. Venjuleg byrjenda- merki eru hér ekki. Ótrúlegt en satt. Vítt svið Svið sögunnar er nokkuð vítt og koma þar fram ótrúlega margar per- sónur. Foreldrar tæplega ellefu ára drengs eru að byggja og virðast hafa reist sér hurðarás um öxl, vinna of mikið og sambandið við drenginn þeirra rofhar. Hann verður of háður vináttunni við skólafélaga sinn, sem á efnaðri foreldra. Eitthvað vantar þó þar líka, því báðir sækjast drengimir eftir sambandi við dýr. Sá er munurinn að félaginn fær sínar óskir uppfylltar fyrirhafharlaust, en aðalpersóna sög- unnar, sonur iðnaðarmanns og af- greiðslukonu í sjoppu, verður sjálfur að leysa sinn vanda. Á þessu ári em þegar komnar út tvær bamabækur, þar sem hunda- og kattamál koma við sögu. Kannski er það ekki hrein tilviljun. Eðlilegt sam- band við dýralíf sveitanna hefur rofiiað. Það er ekki hollt. Fyrir nokkr- um árum, f sambandi við hundadeil- una, hreyfði ég þessu máli í grein og benti á stofhun smárra sýningarstaða í þéttbýlinu, þar sem böm og ungling- Bókmenntir JÓN ÚR VÖR ar gætu komist í samband við dýrin. Vonandi er ekki nýtt hunda- og katta- vandamál að komast á dagskrá. Sambandsrof En víkjum aftur .að bókinni. Emil, son húsbyggingprdrauma- og dugnað- arfólksins, langar til að eignast hvolp, hann hefur í bemsku kynnst hundi afa síns fyrir norðan og hefur þegar hugsað sér að láta hvolpinn sinn bera sama nafh. Skundi á hann að heita. Foreldrunum líst ekkert á þetta, en ætla þó að leyfa hvolpskaup, ef drengnum takist að vinna fyrir honum sjálfur. Þetta er duglegur strákur. Hann fær snattvinnu og selur blöð. Kaupin eru gerð. En skuldavandamál fjölskyl- dunnar hafa valdið sambandsrofi milli feðganna. Drengurinn strýkur með hvolpinn og hyggst leita á náðir afa síns. Um þetta fjallar bókin. Allt sem þar er lýst getur raunvemlega staðist. Hér er góð mannþekking, en öllum predikunum og djúpsálarfræði stillt í hóf. Eðlilegir bamadraumar rekast á þjóðfélags- og skammsýnivandamál fullorðna fólksins. Þetta er nútíma- bók. Sögumaður hefur ótrúlega gott vald á penna sínum. Haldi hann fram sem horfir. Aðalbjörg Þórðardóttir hefur gert smekklegar myndir í bók og á kápu. Útgáfan er vönduð. Jón úr Vör DV-teppi fyrir DV-husið D V-húsinu við Þverholt bættist ný hýbýlaprýði í síðustu viku þegar veggteppi eftir ungan textflhönnuð, Helgu Kristmundsdóttur, var komið fyrir í anddyri þess. Á síðasta ári sínu í textíldeild Myndlista- og handíðaskólans er nemendum gert að vinna textflverk fyrir ákveðinn stað eða rými í opinberri byggingu og afréð Helga að hanna teppi á stór- an vegg í anddyri DV-hússins sem er næsti nágranni skólans. Lagði hún ekki einasta sjálft rými hússins til grundvallar heldur einnig blaðið sjálft, með spöltum, letri og rauðum strikum í kjölinn. Forráðamenn DV voru svo hrifhir af útkomunni að þeir festu þegar kaup á verkinu og létu koma því fyrir á réttum stað. Helga vinnur nú að teppi fyrir textflsýningu í Kaupmannahöfii og verður við kennslu í grein sinni næsta vetur. -ai ***** •***•» W » H* Helga Kristmundsdóttir við DV-teppið upp komið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.