Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Qupperneq 34
I kynnir 1. deildar félögin: DV. FIMMTUDAGUR 5- JÚNÍ 1986. Breytingar hjá Fram: Omar er farinn - Janus á leiðinni Ómar Torfason miðvallarspilari, sem lék mjög vel með Fram sl. keppnistímabil, gerðist atvinnumað- ur með svissneska liðinu Luzern. Það var mikill missir fyrir Fram að missa þennan snjalla leikmann, sem skoraði alls 19 mörk fyrir Framliðið í fyrra. Þá hefur Ásgeir Elíasson, þjálfari Framliðsins, lagt skóna á hilluna. Hefur ekki leikið með liðinu í ár. Það hefur verið mikil blóðtaka fyrir Fram að missa þessa tvo snjöllu miðvallarspilara sem stjómuðu leik Framliðsins í fyrra. Framarar hafa fengið mikinn liðs- Ómar Torfason. Janus Guðiaugsson. styrk, þar sem Janus Guðlaugsson tilkynnti félagaskipti yfir í Fram á dögunum, en hann hefiir leikið í Sviss með Lugano. Janus verður lög- legur með Fram 28. júní, þannig að hann getur leikið tíu síðustu um- ferðimar í 1. deild með Fram. Framarar fengu annan nýjan leik- mann fyrir keppnistímabilið. Þórður Marelsson gekk til liðs við félagið. Hann lék áður með Víkingi. Nokkrir leikmenn hafa yfirgefið herbúðir Fram. Ólafur Hafsteinsson gerðist leikmaður með FH, Haukur Bragason fór til KA og Einar Bjömsson til Leiknis á Fáskrúðs- firði. Guðmundur Torfason, leikmaðurinn marksækni, skoraði draumamark gegn Þór. Sendi knöttinn beint úr aukaspyrnu upp undir þverslá og þaðan þeyttist knötturinn í netið. Eyjólfur Bergþórsson: Verðum að taka fram skotskóna Tveir með gull skó Adidas Framarar hafa átt markahæstu leikmenn 1. deildar keppninnar tvö sl. keppnistímabil. Guð- mundur Steinsson varð marka- hæstur 1984, skoraði 10 mörk, og þá var Ómar Torfason marka- hæstur í fyrra með 13 mörk. Ómar varð þar með fyrsti mið- vallarspilarinn til að verða markahæsti leikmaður 1. deildar. Þessir tveir leikmenn hafa þar með tryggt sér gullskó Adidas, sem voru fyrst veittir hér á landi 1983. Ingi Bjöm Albertsson fékk skóna þá. Áður en þeir Guðmundur og Ómar urðu markakóngar, hafði aðeins einn Framari orðið markahæstur í 1. deild. Það var Helgi Númason sem skoraði 8 mörk 1968. SEVEN UP hjá Guðmundunum - og nýta færin okkar Guðtnundamir hjá Fram, Steins- son og Torfason, hafa skorað sín hvor sjö mörkin á keppnistímabil- inu. í leikjum Fram í Reykjavikur- mótinu, meistarakeppni KSÍ og 1. deildar keppninni. Pétur Ormslev hefur skorað þijú mörk og einnig hinn efnilegi Am- ljótur Davíðsson, sem er yngsti leikmaður Framliðsins. 17 ára. Guðmundur Torfason hefur náð að skora þrennu. Skoraði þrjú mörk í Ieik gcgn Fylki í Reykjavik- urmótinu. „Ég er að mörgu leyti ánægður með leik Framliðsins sem er alltaf á uppleið. Leikmenn eru alltaf að læra og bæta sig smátt og smátt. Náðst hefur upp góður samanþjappaður kjarni, sem gerir góða hluti,“ sagði Eyjólfur Bergþórsson, liðsstjóri Framliðsins. Eyjólfur sagði að það væri ljóst, að breytingar verði að verða á markaskorun liðsins. „Við höfum ekki skorað nema tvö mörk úr þrem- ur fyrstu leikjum okkar í deildinni. Á sama tíma í fyrra vorum við bún- ir að skora átta mörk. Strákamir þurfa því að taka fram skotskóna og nýta færin sín. Leikir liðsins hafa verið nokkuð misjafhir. Við áttum þokkalegan leik uppi á Akranesi þar sem við máttum sætta okkur við jafntefli, vorum heppnir með að knýja fram sigur gegn Þór í jafhteflisleik. Síðan óheppnir gegn Keflavík og máttum þola tap. Svona er knattspyman, það er enginn ömggur með að vinna sig- ur á einhveijum ákveðnum degi. Þó að lið ná að sýna betri knattspymu heldur en mótheijamir hveiju sinni geta þau ekki verið 100% ömgg um sigur. 1. deildar keppnin er svo jöfn að það er ógjömingur að spá til um úrslit leikja, eins og hefur komið fram,“ sagði Eyjólfur. - Vom það ekki vonbrigði fyrir leikmenn Fi n að tapa fyrir Kefla- vík? „Það er alltaf sárt að tapa. Kefl- víkingar eiga mjög duglega leik- menn sem erfitt er að glíma við. Þeir börðust hetjulega gegn okkur. Höfðu tapað 0:4 fyrir Valsmönnum í Keflavík, þannig að þeir vom að beijast fyrir lífi sínu gegn okkur. Náðu að knýja fram sigur á loka- mínútunum. Þessi leikur hefur sýnt okkur að það má aldrei gefa eftir. Við eigum að vera með vel þjálfaða leikmenn, sem gefast ekki upp við mótlæti," sagði Eyjólfur. -sos Á morgun: Vestmannaeyjar og Víðir LEIKMENN Friðrik Friðriksson, 21 árs Guðmundur Baldursson, 26 ára V amarleikmenn: Þorsteinn Þorsteinsson, 21 árs Þorsteinn Vilhjálmsson, 22 ára Sverrir Einarsson, 27 ára Viðar Þorkelsson, 23 ára Ormarr Örlygsson, 23 ára Þórður Marelsson, 28 ára Jón Sveinsson, 20 ára Miðvallarspilarar: Gauti Laxdal, 20 ára Jónas Bjömsson, 19 ára Kristinn Jónsson, 21 árs Steinn Guðjónsson, 22 ára Pétur Ormslev, 27 ára Sóknarleikmenn: Guðmundur Steinsson, 25 ára Guðmundur Torfason, 24 ára Amljótur Davíðsson, 17 ára Jónas Guðjónsson, 19 ára Öm Valdimarsson, 20 ára Viðar Þorkeisson. Ellefu lands- liðsmenn hjá Fram í herbúðum Fram em ellefu leikmenn sem hafa leikið með íslenska landsliðinu á undan- fömum ámm. Fimm leikmenn voru í landsliðshópnum gegn íram og Tékkum á dögunum. Þeir Friðrik Friðriksson, Þor- steinn Þorsteinsson, Pétur Ormslev, Viðar Þorkelsson og Guðmundur Steinsson. Aðrir leikmenn, sem hafa lcik- ið með landsliðinu, em: Guð- mundur Baldursson, Þórður Marelsson, Ormarr Örlygsson, Ásgeir Eliasson, Guðmundur Torfason og Janus Guðlaugsson. Sverrir og Ormarr meiddir Þó nokkuð hefur verið um meiðsli hjá leikmönnum Fram. Tveir leik- menn vom skomir upp fyrir keppn- istímabilið. Þeir Þorsteinn Þorsteinsson og Sverrir Einarsson, báðir vegna meiðsla í liðþófa. Sverrir, sem var fyrirliði Fram sl. keppnistímabil, var þá frá vegna meiðsla um tíma. Hann hefur ekki leikið á þessu keppnistímabili. Þá hefur Ormarr Öriygsson átt við meiðsli að stríða í læri og hefur ver- ið frá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.