Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Qupperneq 36
36
DV. FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1986.
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Julio Iglesias
spánski hjartaknúsarinn með flau-
elsröddina hefur orðið fyrir miklu
mótlæti undanfarið, og átt við
mikil og þung vandamál að stríða.
Aðalástæðan fyrir vanlíðan hans
undanfarið er húðkrabbamein
sem hann þjáist af.
Til upplyftingar brá kappinn sér
til Panama um daginn, en einmitt
í rómönsku Ameríku hafa vin-
sældir hans verið hvað mestar.
Þar fékk hann góðar viðtökur og
hér sést hann í umvafinn indjána-
börnum sem dá hann og dýrka.
Líklega tókst honum að dreifa
huganum frá húðkrabbameininu
rétt á meðan.
Sophia Loren
heldur ser alltaf jafn undurfagurri.
Þótt hún sé orðin 51 árs gömul
er hún enn kyntákn í augum
margra. Geri aðrir betur!
Nýlega var hún á ferð á London
til að kynna nýja bók sína sem
ber nafnið Women & Beauty, eða
Konur og fegurð á íslensku og
talar hún þar eflaust af reynslu.
Annars er Sohphia gift, hamingju-
samlega að eigin sögn, og býr
með eiginmanni sínum Carlo
Ponti í Genf, en eins og sumir
muna þurfti hún að flýja heima-
land sitt, Ítalíu, fyrir nokkrum
árum vegna skattsvika. Á tímabili
var henni meira að segja stungið
í steininn fyrir skattsvikin en þá
varð Sophiu nóg boðið og hafði
sig burt hið fyrsta eftir dapurlega
daga í fangelsi á italíu. Að sögn
kunnugra er hún búin að hreiðra
hið þokkalegasta um sig í Genf
þar sem hún blómstrar.
Karólína
prinsessa
af Mónakó brá sér í blóðsugu-
partý í St. Moritz um daginn. Sá
sem stóð fyrir þessu hófi þar sem
allir áttu að mæta í Drakúlagervi,
var margmilljónerinn og glaum-
gosinn Gunther Sachs en hann
er vanur að halda þennan fögnuð
árlega og safna þar saman sem
mest af fyrirfólki úr öllum áttum.
Þ.e. þeir sem ekki eiga minnst 10
milljónir á banka ættu ekki að
reikna með að verða boðið. Karó-
l(na sem er ólétt var auðvitað
miðpunktur veislunnar allan tím-
ann, en hún hélt sig þétt upp að
sínum ektamaka, honum Stefano
Cashiragi, og hafa þau skötuhjú
ekki sést svo lukkuleg á almanna-
færi í langan tíma.
Konunglegt stress og vannæring
- Díana Bretaprinsessa að missa heilsuna vegna álags og megrunarmaníu
Eins og Diana lítur út í dag. 1,78
á hæð og aðeins 55 kíló að þyngd.
Álagið sem fylgir prinsessuhlut-
verkinu er að gera hana heilsu-
lausa.
Þegar Díana Bretaprinsessa féll
í yfirlið í opinberri heimsókn þeirra
hjóna til Kanada fyrir nokkru var
það mikilvægt merki um að eittvað
alvarlegt væri að. Þetta erfiða
hlutverk hennar eftir að hún giftist
Karli Bretaprinsi er á góðri leið
með að fara með hana, bæði and-
lega og líkamlega. Það er heldur
ekkert lítið álag að vera daglegt
forsíðuefni í heimspressunni og
stöðugt undir smásjá.
Nú hefur læknir bresku konungs-
fjölskyldunnar fyrirskipað strang-
an heilsufæðiskúr til handa
prinsessunni til þess hún geti safn-
að kröftum því þetta er ekki í fyrsta
skipti í úr sem hún fellur í yfirlið.
Til að safna kröftum, jú, og ekki
síst dálitlu holdi, því mönnum ber
saman um að hún sé allt of grönn,
Lady Di fyrir fimm árum og tölu-
vert búttaðri en hún er nú enda
afslöppuð og vel nærð.
eins og sumir segja hættulega hor-
uð. Fyrir konu sem er 1,78 á hæð
er ekki mikið að vega 55 kí-
lógrömm.
„Skortur á næringarríkum mat
er ástæðan fyrir þessum yfirliðum
prinsessunnar," sagði blaðafulltrúi
hennar fyrir skömmu þegar sú saga
gekk fjöllunum hærra að yfirliðin
mætti rekja til þess að Díana gengi
með sitt þriðja bam.
Það er flestum ljóst að Díana
þolir ekki að borða í opinberum
veislum, hún bara dútlar við mat-
inn sinn með hnífapörunum án
þess að snerta við honum. Þegar
hún er ein vill hún ekki borða ann-
að en tómt grænmeti, hræðslan við
að fitna er hreint yfirþyrmandi.
Hún neitar af þessum sökum að
borða annað en grænmeti og
ávexti.
Vinir og vandamenn eru nú farn-
ir að hafa miklar áhyggjur af
heilsufari prinsessunnar, bæði af
rýru holdafari hennar og því gífur-
lega álagi sem hún er að sligast
undan. Hún tekur það yfirleitt
mjög nærri sér að fara í löng ferða-
lög eins og skyldan býður, sérstak-
lega vegna þess að hún saknar sona
sinna og verður mjög niðurdregin
eftir t.d. að hafa talað við þá heim
í gegnum síma.
Díana veit líka að hún er undir
smásjánni út um allan heim, þetta
er meira álag en nokkur popp-
stjarna hefur þurft að þola, ekki
síst vegna þess að brosið þarf alltaf
að vera á sínum stað. Og það starf
sem felst í því einungis að vera
falleg og koma vel fram er ekki
alltaf auðvelt þegar augu heimsins
mæna á mann.
Ein aðalskyldan er að líta alltaf vel
út, klæðast smekklegum drögtum
og hafa brosið á sínum stað.
„Það er kúnst
að kunna á
myndbönd“
Islensk myndritun hefur undanfarið
staðið fyrir námskeiðum þar sem
fólki er veitt undirstöðuþekking í
notkun videomyndavéla og upptöku-
tækja fyrir VHS myndbandskerfi.
Þarna er fjallað um myndband sem
fjölmiðil, tekinn er fyrir undirbún-
ingur upptöku, upptaka myndar og
hljóðs og klipping.
„Viðbrögð við námskeiðunum hafa
verið mjög góð,“ sagði Jón Arason,
framkvæmdastjóri íslenskrar mynd-
ritunar, í samtali við DV. „Ég held
að þátttakendur á námskeiðunum
hingað til séu yfir sig ánægðir því
þá hafði ekki dreymt um að öðlast
svo mikla þekkingu á myndböndum
á svo stuttum tíma. það er nefnilega
töluverð kúnst að kunna á mynd-
bönd og upptökutæki. Nú erum við
að fara í gang með námskeið handa
þeim sem vilja kynna sér U-MATIC
HI-BAND tæki en þau uppfylla m.
a. kröfur sjónvarpsstöðvar. Við
reiknum með að þátttaka í þeim
námskeiðum verði einnig góð.
Karl Jeppesen, kennari á námskeiðinu, leiðbeinir einni áhugasamri í mynd-
bandagerðinni um klippingu á þar til gerðu klippingartæki.
Hjalpsemi
í umferðinni
Þær urðu þakklátar mjög, ungu stúlkurnar, þegar þessa tvo
lögregluþjóna bar að eftir að vinstra framhjól á Lödunni
þeirra brást« hellirigningu niðri í bæ um daginn.
Eins og lögregluþjóna er von og vísa, a.m.k. sumra, tóku
þeir alfarið að sér að skipta um dekk á bílnum og varð þá
annarri stúlknanna að orði. „Þetta eru sko almennilegar
löggur“.