Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Side 37
DV. FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1986.
37
Sandkorn Sandkorn
Regnbog-
inn
Stefnt er að því að gera
nýju flugstöðina á Kefla-
víkurflugvelli hina vegleg-
ustu í alla staði. Skal þar
ekkert til sparað.
Meðal þeirra hluta sem
þykja ómissandi í þessu
skyni er listaverk við bygg-
inguna. Þess vegna var á
dögunum efnt til mikiliar
samkeppni til að sem best
mœtti takast með þennan
þátt verksins. Þegar unnið
var úr tillögum sem bárust
varð hlutskarpast verk eft-
ir listakonuna Rúri. Ber
það heitið Regnboginn.
En nú höfum við sann-
frétt að æöstu yfirmenn
bandaríska hersins á Vell-
inum hafi orðið sármóðg-
aðir þegar þeir heyrðu að
fyrirhugað væri að reisa
merki sem bæri heitið
Regnboginn við flugstöð-
ina. Þeirtelja nefnilega
fullvist að með þessu séu
eyjarskeggjar að gera gys
að ameríska selskapnum
Rainbow Navigation.
Gagnarekki
gegngeisla-
virkni
Það hljóp ekki lítið á
snærið hjá Rússum þegar
þær sögusagnir fóru að ber-
ast um Sovétríkin að
vodkadrykkja læknaði þá
sem orðið hefðu fyrir
geislavirkni. Ekki nóg með
það. Hinir geislavirku, sem
dreyptu á rauðvini, áttu að
vera mun skárri til heils-
unnar eftir en áður.
Þetta varð auðvitað til
þess að rússnesku kapítal-
istarnir ruku upp til handa
og fóta og fóru að selja
brennivín á ótrúlegustu
Góöur til síns brúks en dugir
þó ekki gegn geislavirkni.
stöðum, meira að segja í
bakarium.
En vei rússneska heil-
brigðisráðherranum sem
lýsti því yfir að þetta væri
tómt kjaftæði. Brennivíns-
drykkja læknaði ekki
geislavirkni nema síður
væri. Og þar með var sá
draumurinn búinn.
Það er annars synd að
ekki skuli vera hægt að
drekka vodka við hús-
næðisvandanum.
Blautar
lóðir
Akurnesingar eiga sitt
hesthúsahverfi eins og aðr-
ir þéttbýlingar. Er það við
Æðarodda. Einhveijum
lóðum mun enn óráðstafað
í hverfinu og verður svo lík-
lega enn um sinn þrátt fyrir
mikla eftirspurn. Ástæðan
er sú að lóðimar, sem eftir
standa óbyggðar, em sagð-
ar svo blautar að ekki sé
byggjandi á þeim. Em þær
„ Flóöhestar“ eru þeir kallaðir
sem lenda á blautu lóðunum á
Skaganum.
meðal hestamanna kallað-
ar „flóðhestalóðirnar.“
/
Hættulegur
sjúkdómur
Urval færir okkur þennan
á silfurfati:
Lalli var að sálast: „Ég
sé svarta bletti, hef suðu
fyrir eyrunum og á bágt
með að anda,“ sagði hann
viðlækninn.
„Þáerþað
botnlanginn,“sagði læknir-
inn. Og botnlanginn var
tekinn úr Lalla. En honum
leið ekkert skár. Hann sá
svarta bletti, hafði suðu
fyrir eyrunum og átti bágt
með að anda.
„Þá reynum við gallstein-
ana,“ sagði læknirinn. En
Lalla vildi ekki skána.
Hann var líka losaður við
miltað, heiladingulinn og
þindina. En ekkert gekk.
„Þá dugir ekkert minna
en allsheijarskoðun," sagði
læknirinn.
Og Lalli fór í herrafata-
verslun til að punta sig fyrir
skoðunina.
„Herraskyrtu númer 38,“
sagðihann.
„Ertu vitlaus, þú þarft
örugglega númer 42,“ sagði
afgreiðslumaðurinn.
„Annars sérðu svarta
bletti, færð suðu fyrir eymn
og átt bágt með að anda.“
Þar mun-
aði mjóu
Það munaði afar mjóu á
sjálfstæðismönnum og al-
þýðubandalagsmönnum í
bæjarstjórnarkosningun-
um á Seltjarnarnesi um
daginn. Eins og flestir vita
þurftu sjallamir ekki nema
tvö atkvæði til viðbótar til
að koma 5. manni inn og
fella þar með út 2. mann
aUabaUa.
Og nú vitum VID um ves-
alings hjón af bláa listanum
sem fóru til útlanda en
gleymdu að kjósa áður. Þau
þora ekki heim.
Það vantaði bara tvö atkvœði
á Seltjarnarnesinu.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
R?
Ahyggjur
af aukakílóum?
Ný námskeið: í
í aerobic
^ Sérsalur. ☆
hefjast 7. júní.
T ækj asalur-eimgufa.
Sérstaklega góðir ljósa-
bekkir.
Heilsubar-kaffistofa.
Leiðbeinendur.
OPNUNARTÍMI:
Mánud.-fimmtud. kl. 08-22.
Föstudaga ki. 08-20.
Laugard.-sunnud.
kl. 10-18.
RŒKTIN
Ánanaustum 15, Reykjavík,
sími 12815
sf.
Kvikmyndir Kvikmyndir
I Stjörnubíó - Bjartar nætur ★ ★ I
Dansað í Sovét
Bjartar nætur (White Nights).
Leikstjóri: Taylor Hackford.
Aðalleikarar Mikhail Baryshnikov, Greg-
ory Hines, Isabella Rossellini, Jerzy
Skolimovski og Helen Mirren.
Það er oft ótrúlegt hvað hægt er
að gera þrátt fyrir lélegan sögþráð.
Fyrirfram, heíði verið hætt við að
margir hefðu álitið handritið að
Bjartar nætur dauðadæmt, þvilík
endileysa sem það er. Fyrsti sigur-
inn, kvikmyndaframleiðendunum í
hag, var aftur á móti að fá frægasta
og besta ballettdansara heims til að
leika rússneskan, landflótta ballett>
dansara.
Eftir að það var komið á hreint
var peningahliðin tryggð. Annar sig-
urinn var leikaramir sem valdir
voru til að leika með honum. Flestir
þeirra gæða hinar ótrúlegu persónur
lífi. Og þriðji sigurinn, og það sem
gerir myndina nokkurs virði, var að
gera mikið úr danshæfileikum Bar-
yshnikovs og Broadwaydansarans
Gregory Hines. Svo sannarlega ólík-
ir dansarar, en snillingar hvor á sínu
sviði.
Með allt þetta hæfileikafólk, ásamt
fyrsta flokks tækniliði, eru Bjartar
nætur hin ágætasta skemmtun þrátt
fyrir veikt og ótrúlegt handrit. Mik-
hail Baryshnikov leikur Nicolai
Rodchenko sem vel gæti verið Mik-
hail Baryshnikov. Rodchenko er
landflótta ballettdansari sem er far-
þegi í flugvél sem verður að nauð-
lenda í Síberíu.
Þrátt fyrir tilraunir hans til að
leynast þekkist hann fljótt og KGB
maðurinn Chaiko, sem hinn þekkti
leikstjóri Jerzy Skolimowski leikur,
gerir honum ljóst að hann er dæmd-
ur maður og það sé best fyrir hann
að gera eins og honum er sagt. Til
að vakta hann er fenginn sverting-
Dansaramir Mikhaii Baryshnikov og Gregory Hines í hlutverkum sínum.
inn Raymond (Gregory Hines) sem
hafði flúið tU Bandaríkjanna í Víet-
nam stríðinu.
Hann hafði áður verið steppdans-
ari og dauðsér nú eftir öllu saman,
þótt ekki viðurkenni hann það fyrir
öðrum. Þrátt fyrir stirt samband í
fyrstú verða þeir brátt ágætis vinir,
enda áhugamálin þau sömu. Ásamt
konu Raymonds og með hjálp fyrr-
verandi ástkonu Rodchenkos leggja
þau á ráðin að komast í bandaríska
sendiráðið.
Það er óhætt að segja að dansat-
riðin í Bjartar nætur séu frábær.
Ballettdans Baryshnikovs er stór-
kostlegur og þrátt fyrir vankunnáttu
undirritaðs á því sviði er ekki hægt
að komast hjá því að sjá að þar er
á ferðinni mikill listamaður.
Gregory Hines er einnig mikill
dansari eins og þeir sem sáu Cotton
Club muna sjálfsagt eftir og stepp-
dans hans hér er ógleymanlegur. Og
þrátt fyrir ólíkt uppeldi í dansinum
náþeirvelsaman.
Baryshnikov er ekki eini leikarinn
í Bjartar nætur sem fengið hefur að
kenna á kerfinu austantjalds. Jerzy
Skolimovsky er Pólverji sem einnig
fór vestur fyrir jámtjald til að geta
sinnt list sinni. Hann leikur hér
harðlínumanninn Chaiko sem er
ákveðinn í að notfæra sér handtöku
Rodchenkos. Annað nýtt andlit er
Isabella Rossellini. Hún hefúr erft
útlit móður sinnar, Ingiid Bergman,
en því miður ekki leikhæfleikana.
Er hún mjög byrjendaleg í hlutverki
rússnesku eiginkonunnar.
Eitt er það atriði sem ekki verður
komist hjá að minnast á, það er
nauðlending 747 þotunnar. Eins
eðlileg nauðlending hefur varla sést
á hvíta tjaldinu og sýnir hvers góðir
tæknimenn eru megnugir í dag.
Leikstjóri myndarinnar erTaylor
Hackfonl sem á að baki álíka róm-
antískar myndir og Against All Odds
og An Officer and a Gentleman.
Honum hefur tekist það sem ætlunin
var; að gera skemmtimynd sem
áhorfendur, ef þeir geta litið framhjá
slæmu handriti, geta skemmt sér
ágætlegayfir.
HilmarKarlsson.
*
t
'k'k'k'k Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit
BARNASKOR FRA
n
X
«
x
3
+
¥
¥
¥
¥
■h
¥
%
¥
¥
i
¥
¥
¥
¥
i
¥
¥
¥
¥
¥
¥
Teg. Ufan
Litur: bleikt, blátt, hvítt, rautt leð-
ur. Stærðir: 20-27. Verð kr.
1.195,-
Teg. Ubix
Litur: hvítt, bleikt, blátt leður.
Stærðir: 20-27. Verð kr. 1.195,-
Teg. Raquety
Litur: hvitt og dökkblátt, rautt leð-
ur. Stærðir: 20-29. Verð kr.
1.293.-
Teg. Antar
Litur: hvítt með bláu, hvítt með
bleiku. Stærðir 20-30. Verð kr.
1.310,-
Teg. Aunis
Litur: hvítt með bláu leðri. Stærð-
ir: 20-27. Verð kr. 1.390,-
V:
Teg. Asterix
Hvitt leður. Stærðir: 20-27. Verð
kr. 1.330,-
PÓSTSENDUM
¥
t
¥
¥
¥
■h _
¥ *
¥
¥
¥
*
STJÖRNUSKÓBÚÐIN!
Laugavegi 96 (við hliðina á Stjörnubíói)
Sími 23795.
í
JJ-
X-