Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Page 40
68*78*58 Hafir þú ábendingu eða vitn- eskju um frétt - hringdu þá í sima 687858. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtíst eða er notað í DV, greiðast 1.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 3.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhrmginn. FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1986. Vestmannaeyjar Viljafá Pál aftur A-flokk£imir og Framsóknarflokkur __^ .hafa myndað meirihluta í bæjarstjóm Vestmannaeyja. Þeir hafa fimm bæj- arfulltrúa af níu. Flokkamir hafa leitað til Páls Zophoníassonar tækni- fræðings og vilja fá hann sem bæjar- stjóra. Páll var bæjarstjóri í Eyjum 1976- 1982. Hann rekur nú teiknistofu i bænum og hefur ekki gert upp hug sinn til bæjarstjórastarfsins. ________________________-HERB Njarðvík: Nýr meiríhluti Alþýðuflokkur og Framsóknar- flokkur mynduðu meirihluta í bæjar- stjóm Njarðvíkur í gærkvöldi. *' Samkomulag hefur náðst um málefha- samning og verður hann lagður ffarn í flokksfélögunum á næstunni. Akveð- ið hefur verið að auglýsa eftir bæjar- stjóra. Þessir tveir flokkar hafa fjóra full- trúa. Alþýðuflokkur þrjá og Framsókn einn. Sjálfstæðisflokkur var áður með hreinan meirihluta sem hann tapaði í kosningunum. -APH Eldur á Stöðvarfirði: Kona bjargað- ist naumlega úr húsinu Eldri kona bjargaðist naumlega úr íbúð sinni er íbúðin eyðilagðist í elds- voða á Stöðvarfirði. Er konan með bmnasár á öxlum og baki en líðan hennar góð eftir atvikum. Eldurinn kom upp á efri hæð í tví- býlishúsi að Austurvegi 51 í gærkvöldi og er slökkviliðið kom á staðinn var íbúðin alelda. Fljótlega tókst að ráða niðurlögum eldsins og tókst að bjarga öllu innbúi íbúðarinnar á neðri hæð- inni sem skemmdist töluvert af vatni 1 ■ og reyk. Ekki er vitað um eldsupptök en kon- an varð eldsins vör er hún opnaði dyr á svefnherbergi sínu. Gaus þá eldurinn á móti henni og tókst henni með naumindum að bjarga sér. -FRI LOKI í Hafnarfirði verður það Ijós- myndari sem myndar meiri- hlutann. Mikil leit við Eldvatn: Leitaö að 18 áva gamalli stúlku Mikil leit stendur nú yfir við Eld- vatn í Skaftafellssýslum en þar mun biffeið hafa farið í gegnum brúar- handrið og í vatnið. A leitarsvæðinu em nú slysavamasveitir frá Klaustri, Meðallandi og Skaftárt- ungu auk fjögurra kafara úr Reykja- vík og Sandgerði. Samkvæmt upplýsingum frá Slysa- vamafélaginu hefúr ýmsum munum skolað á land, þar á meðal skilríkjum ökumanns, en þama var á ferðinni 18 ára gömul stúlka á leið ffá Reykjavík til Hafhar í Homafirði. Hún var ein á ferð er hún lagði af stað. Slysið var tilkynnt síðdegis í gær og þá vom slysavamasvéitir strax kallaðar út. Nú em um hundrað manns á leitarsvæðinu. Hannes Haf- stein, fr amkvæmdastjóri SVFÍ, sagði í samtali við DV í morgun að að- stæður til leitar væm mjög erfiðar, mikið dýpi á þeim stað sem talið er að bíllinn hafi sokkið og vatnið kol- mórautt -FRI Tekið fagnandi á móti Jóni Páli eftir sigurinn i Glasgow. DV mynd S. Jon Páll Iflvöröur Jóni Páli Sigmarssyni, sterkasta manni í heimi, hefur verið boðið að leika aðalhlutverkið í bresku kvikmvndinni „Body Guard“. „Ég vissi ekkert um þetta fyrr en ég las það í bresku tímariti að ég væri orðinn kvikmyndastjama. Að sjálfsögðu tek ég að mér hlutverkið, ég er til í allt sem gefur eitthvað í aðra hönd,“ sagði Jón Páll í samtali við DV í morgun. „Þessi kvikmynd verður tekin á Möltu og fjallar um hermdarverkamenn og annað þess háttar.“ Jón Páll er nýkominn til landsins eftir að hafa sigrað í vöðvaaflsmóti í Glasgow; The World Muscle Power Champ- ionship. _EIR Veðrið á morgun: Áfram rigning suðvestan- lands Á morgun verður veður á landinu svo til óbreytt frá því sem nú er. Sunnan- og suðvestankaldi og skúrir á Suður- og Vesturlandi. Norðan- og austanlands verður skýjað með köfl- um og víða bjart veður. Hiti á landinu verður á bilinu 5-11 stig. : ; • ■ Patreksfjörður: Framsókn og Sjálfstæðis- flokkur sljóma Sjálfstæðismenn og Framsóknar- menn hafa gengið frá samkomulagi um myndun meirihluta í hreppsnefnd á Patreksfirði. Úlfar B. Thoroddsen verður endurráðinn sveitarstjóri en oddviti verður Sigurður Viggósson úr Framsóknarflokki.'v Alþýðuflokksmemvhverfa úr meiri- !hlutanum eftir átta ára setu þar og nýr meirihluti stjómarflokkanna tek- ur við. Sjálfstæðismenn hafa þrjá 'menn en Framsóknarmenn og Al- þýðuflokksménn tvo í hreppsnefnd. _______________ás ísafjörður: Haraldur áfram sem bæjarstjórí Þeir flokkar, sem nú em í þann mund að mynda meirihluta á ísafirði, hafa ákveðið að ganga til samninga við Harald L. Haraldsson, núverandi bæjarstjóra, um að hann starfi áfram. Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur og Álþýðubandalag hafa verið í við- ræðum undanfarið og talið líklegt að þessir flokkar myndi meirihluta. _______________________-APH Viðreisn á Ólafsvík í kvöld ætti að fást úr því skorið hvort mynduð verði „viðreisnar- stjórn“ í Ólafcvík. í gærkvöldi stóð yfir langur viðræðufundur milli Al- þýðuflokks og Sjálfetæðisflokks. Annar fundur er boðaður í kvöld. Þessar viðræður em að frumkvæði Alþýðuflokks og sagðist Sveinn Elín- bergsson, Alþýðuflokki, ekki vera svartsýnn á að þessir flokkar næðu saman. -APH Sauðárkrókur: Snoni Bjöm bæjarstjórí Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni DV á Akureyri Á Sauðárkróki hafa Sjálfstæðis- flokkur, Alþýðuflokkur og óháðir myndað meirihluta í bæjarstjóm. Þeir hafa samtals fimm bæjarfulltrúa af níu. Nær fullvíst er að Snorri Bjöm Sigurðsson, núverandi sveitarstjóri á Blönduósi, verði bæjarstjóri. Á Dalvík er á lokastigi meirihluta- myndun Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-, bandalags. Sömuleiðis em A-flokkam- ir að mynda meirihluta á Siglufirði. A-flokkamir em einnig að ræðast við á Húsavík. Þar hefur Bjami Aðal- geirsson sagt upp starfi bæjarstjóra. HERB Tómatar lækka enn I gærmorgun lækkuðu tómatar um helming. Kílóverð í heildsölu lækkaði úr 120 krónum í 60 krónur. Verð á tómötum hefur því lækkað um 75% frá því að þeir komu á markað í vor. Að sögn Níelsar Marteinssonar, sölustjóra hjá Sölufélagi garðyrkju- manna, hefur framleiðsla á tómötum verið mjög mikil í sumar vegna góðrar tíðar og berst því mikið af tómötum á markaðinn. \ Þetta nýjasta verð á tómötum er að öllum líkindum það lægsta sem það getur orðið í sumar og ættu því þeir sem eru sólgnir í tómata að nota tæki- færið. -RóG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.