Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Qupperneq 2
2
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Slökkviliðsmenn berjast við eldinn i rishæö hússins og rjúfa þakið.
DV-myndir S
Stórbruni við Tjómina
„Við sendum tvo reykkafara strax
inn í húsið og þeir komust upp á
aðra hæð. Þegar þeir brutu rúður
til að lofta út sáu þeir að allt risið
logaði og þangað var ógjömingur
að komast," sagði Ragnar Sólonsson,
varðstjóri hjá Slökkviliði Reykja-
víkur, en það barðist við magnaðan
eld í gamla Iðnskólanum á homi
Lækjargötu og Vonarstrætis allt
laugardagskvöldið.
„Tilkynning um eldinn kom til
okkar klukkan 17.49 og við fórum
þegar með allt tiltækt lið á staðinn.
Þegar við komum niður í Lækjar-
götu sáum við að reyk lagði upp úr
reykháfi og gluggar á annarri hæð
og í risi vom kakkbrúnir og svartir
að innan. Við byggðum því upp
starfið eins og um margra tíma bar-
áttu væri að ræða,“ sagði Ragnar.
Baráttan við eldinn við Tjömina
stóð í fjórar klukkustundir. Klukkan
22 var allur eldur slökktur og
slökkvihðsbifreiðir yfirgáfu svæðið
rétt fyrir miðnætti. Vakt var höfð
við húsið fram undir hádegi á sunnu-
dag.
Um tíma óttuðust menn að eldur-
inn myndi breiðast út í áfastar
byggingar sem em gamla Búnaðar-
félagshúsið, þar sem Leiklistarskóli
ríkisins er til húsa, og Iðnó. Þessum
byggingum tókst að bjarga þótt tæpt
stæði um tíma: „Eldurinn var að
krækja sig yfir í þak Búnaðarfélags-
hússins en okkur tókst að koma í
veg fyrir það á síðustu stundu.
Brunaveggur, sem er þama á milli,
hélt,“ sagði Ragnar Sólonsson.
Gífúrlegt tjón varð í bruna þessum.
Leikfélag Reykjavíkur missti nær
allt búningasaih sitt, hljóðupptökur
á gömlum verkum og leikhljóð. í risi
brann baðstofa Iðnaðarmannafé-
lagsins sem byggð var árið 1924,
listilega útskorinn af Ríkharði Jóns-
syni tréskurðarmeistara. Þar við
hliðina var lítil íbúð sem í bjó ung
flugfreyja. Hún var ekki heima er
eldurinn kom upp. Hafði farið í flug
snemma laugardagsmorguns.
Gamli Iðnskólinn við Tjömina var
byggður um aldamótin og undan-
farin fimm ár hafði farið fram
gagnger endumýjun á húsinu.
Rannsókn á eldsupptökum er í hönd-
um Rannsóknarlögreglu ríksins.
-EIR
Stefán Baldursson leikhússtjóri fylgist með baráttu siokkviliösins við eldinn á laugardagskvoldió. Með honum eru
leikaramir Guðrún Gísladóttir, Guðmundur Pálsson og Sigríður Hagalín. DV-mynd S
Þór Magnússon þjóðminjavörður:
„Vatn á myllu niðunffsafla“
„Þetta er náttúrlega óskaplegt
tjón en hræddastur er ég um að
þessi bruni verði vatn á myllu nið-
urrifeafla sem vilja láta rífa öll
gömul hús í raiðbænum. Það er
venjan þegar gömul timburhús
brenna,“ sagði Þór Magnússon
þjóðminjavörður i samtah við DV.
Þór stóð þá í útbrunnum tumi
gamla Iðnskólans og þótti aug-
sýnilega sárt að h'ta eyðilegging-
una.
„Þetta hús verður að byggja upp
afW, það væri gert í öllum menn-
ingarlöndum. Á þennan bruna að hugsa {ægar um menningar-
verður að líta sem hvert annað verðmæti er að ræða,“ sagði Þór
slys. Þegar maður slasast er farið Magnússon.
með hann á sjúkrahús og reynt að -EIR
lækna hann. Þannig verður einnig