Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Side 3
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986.
3
Baðstofa Iðnaðarniannafélagsins:
Útskurður Ríkharðs
orðinn að ósku og sóti
í tumherbergi gamla Iðnskólans var
baðstofa í gömlum stíl í eigu Iðnaðar-
mannafélagsins, einhver sú fallegasta
á landinu. Þar var allt útskorið, vegg-
ir jafiit sem bekkir og önnur húsgögn,
og heiðurinn af því átti Ríkharður
Jónsson tréskurðarmeistari. I brunan-
um á laugardagskvöldið brann bað-
stofan til kaldra kola, listaverk
Ríkharðs er nú ekki annað en aska
og sót.
„Ríkharður vann þetta verk árið
1924 og hér höfiim við haldið félags-
fundi okkar alla tíð síðan,“ sagði
Siguroddur Magnússon, ritari Iðnað-
armannafélagsins, í samtah við DV.
Iðnaðarmannafélagið hefur fullan
hug á því að endurbyggja baðstofuna
í upphaflegri mynd sinni þó Ríkharður
Jónsson sé allur: „Nemendur hans lifa,
það ætti að vera hægt að vinna verkið
á ný,“ sagði Þór Magnússon þjóð-
minjavörður.
-EIR
Siguroddur Magnússon og félagar hans úr Iðnaðarmannafélaginu bjarga því
sem bjargað verður af listaverkum Rikharðs Jónssonar i baðstofunni i tumher-
bergi gamla Iðnskólans. DV-mynd PK
Eini íbúinn
að heiman
Gamli Iðnskólinn við Tjömina var
mannlaus er eldurinn kom upp á laug-
ardagskvöldið. I húsinu er lítil íbúð í
risi þar sem ung flugfreyja hefur búið
undanfarin ár. Hún var ekki heima á
laugardagskvöldið, hafði farið í flug
þá um morguninn.
Ibúðin í risinu, sem er tveggja her-
bergja, er ákaflega illa farin eftir
brunann. Þar er fatt eftir sem gefur
vísbendingu um að um mannabústað
hafi verið að ræða. -EIR
VERKFRÆÐISTOFUR,
PRENTSMIÐJUR, AUGLÝSINGASTOFUR,
IÐNSKÓLAR, TÆKNISKÓLAR,
MYNDUSTARSKÓLAR OG HEMLL
Á ÖLLUM ÞESSUM STÖÐUM
ERU NEOLT TEIKNIBORÐ
OG FYLGIHLUTIR ÞEIRRA
ÓMISSANDI.
Það er gott að eiga annað borð heima
fyrst maður vinnur á annað borð heima
Hjólaskáp u
teikninga
Hraðbátar í
æðarvarpi
Hraðbátar steíndu æðarvarpi í að bmna á íullri ferð í aðeins nokk-
Brautarholti á Kjalamesi í hættu urra metra fjarlægð frá landi, fugli
um helgina. og bónda til mikillar hrellingar.
Þó lög geri ráð fyrir að bátar megi Lögreglan vinnur nú að því að
ekki fara nær landi en 300 metra í hafa upp á siglingamönnunum og
stórstraumsfjöru þar sem æðarvarp segja þeim til syndana.
er létu sjókappar sig ekki muna um _EIR
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
NEOLT vörumar eru framleiddar af einum stærsta
teiknivöruframleiðanda í heimi.
Þær eru vandaðar og á hagstæðu verði.
NEOLT teikniborð em nú í vaxandi mæli einnig notuð
við teiknivinnu í heimahúsum.
Þau em óneitanlega þægilegri en eldhúsborðið eða
borðstofuborðið.
Við NEOLT teikniborðið ertu alltaf í réttum stellingum
og reynir ekki um of á bakið.
Að lokinni notkun má leggja það saman.
Þannig geymist það auðveldlega til dæmis á
bakvið hurð.
Það ber mörgum saman um að gott sé að eiga annað
borð.
Nú er nýkomið frá NEOLT:
Teikniborð, margar gerðir og stærðir með stiUanlegri
hæð og halla.
KL teiknivélar, sem em arftakar JOKER teiknivélanna.
Hirslur fyrir teikningar, bæði skápar til að geyma
hangandi teikningar, skúffuskápar
og grindur fyrir teikningar.
Ljósaborð í þremur stærðum með fjómm útfærslum.
Hæð og halli stillanlegt.
Hjólaskápar fyrir ýmsa smáhluti og skjöl.
Lampar og aðrir fylgihlutir, svo sem pennabakkar og
rennur.
ALLT í EINNI FERÐ
Hallarmúla 2 Sfmi 83211
I