Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Síða 6
6
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stœður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningamir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óvcrðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64‘X, á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4'%, ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 óra afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7.5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum. nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða
verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxt.un
annaðhvort 13,1% eða eins og á verðtiyggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknastalmennirspari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. I>eir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun
bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvcxti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri
sparisjóðanna cru mcð innstæðu bundna
óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn-
vöxtum og 15,2% ársávöxtun.
Spariskírteini
Spariskírtein^Kíkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem,
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Meö
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afíollum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2 -4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóðurákveðursjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eflir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tr/ggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfír þann tíma. Séu vextir.
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
. 10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún,
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í júní 1986 er 1448 stig
en var 1432 stig í maí og 1425 stig og í apríl.
Miðað er við grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA
INNLÁN MEÐ SÉRKJÚRUM
SJA sérlista
(%)
11.-20.06
lili
iiiiilíi li 11
1986
INNLAN ÚVERÐTRYGGÐ
SPARISJÚÐSBÆKUR Óbundin innstn&a 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsógn 10.0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mán. uppsógn 12.5 12.9 12.5 9.5 11.0 10.0 10.0 12.5 10.0
12 mán.uppsögn 14,0 14.9 14.0 11.0 12.6 12.0
SPARNAÐUR- LÁNSRÉTTUR Sparaó J-5 mán 13.0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp. 6mán. ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Avísanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
innlAn VERÐTRYGGÐ
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 1.0 1.0 1,0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán.uppsógn 3.5 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
innlAn GENGISTRYGGÐ
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 7.0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.0 6.5 6.25
Sterlingspund 11.5 10.5 9.5 9.0 9.0 10.5 9.5 11.5 9.5
Vestur-þýsk mórk 4.0 4.0 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5
Danskar krónur 7.5 7.5 7.0 7.0 6.0 7.5 7.0 7.0 7.0
útlAn ÚVERÐTRYGGD
ALMENNIR VlXLAR (forveitir) 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25
VIÐSKIPTAVlXLAR 3) (forvextir) 19.5 kf»* 19.5 kg. kge kg. Mx
ALMENN SKULDABRÉF 2) 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 3) kq. 20,0 kqe 20,0 kfle kfl. kge kge
HLAUPARtlKNINGAR YFIRDRÁTTUR 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0
útlAnverotryggð
SKULDABRÉF AÓ21/2ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri m 21 /2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5,a 5.0
ÚTLAN TIL FRAMLEBSLU
SJANBMWMAISII
1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,5%, í sterlingspundum 11,75%, í vestur-
þýskum mörkum 6,25%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er
2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og
viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum.
íslenskt sjónvarpsefhi
selt eriendis
Innkaupa- og markaðsdeild Ríkisút-
varpsins, sjónvarps, sá nú í fyrsta sinn
um aðild sjónvarpsins að árlegum
markaði norrænu sjónvarpsstöðvanna
sem haldinn var í Helsinki 1.-6. júní
sl. Á þessum alþjóðlega markaði er
boðið til skoðunar og sölu norrænt
sjónvarpsefni og voru þar u.þ.b. 60
innkaupafulltrúar frá 21 landi.
Hinrik Bjamason, dagskrárstjóri
sjónvarpsins, hafði umsjón með kynn-
ingu íslenska efriisins á markaðnum.
í Helsinki vakti myndin Á fálkaslóð-
um, sem er myndaflokkur fyrir böm
og unglinga frá árinu 1985, mesta at-
hygli þessara verka og þar var einnig
ákveðin sala á myndaflokknum til
írska sjónvarpsins, austur-þýska sjón-
varpsins og ástralskrar sjónvarps-
stöðvar og fleiri íhuga kaup eftir
nánari skoðun.
Finnar hafa óskað eftir myndini
Bygging, jafhvægi, litur, um listmák
rann Tryggva Olafeson, til sýningi
Þriðja íslenska verkið, sem kynnt vs
á markaðnum, var heimildamynd ui
írsk/bresku skáldkonuna Iri
Murdoch, gerð árið 1985. Myndini
var sýndur mikill áhugi af þeim c
skoðuðu hana
-BTI
Ekki litið álrt á SÍS
„Það er afar villandi að segja að
þjóðin hafi lítið álit á Sambandinu,"
sagði Stefán Ólafsson, félagsvisinda-
deild Háskólans-, um klausu í dálkin-
um Sandkomi í gær.
Stefán sagði að endanlegar niður-
stöður lægju ekki fyrir úr skoðana-
könnun sem félagsvísindadeild gerði
fyrir Samband ungra framsóknar-
manna. Spurt var meðal annars um
afetöðu fólks til Sambands íslenskra
samvinnufélaga.
Sagði Stefán að sér virtust menn
vera frekar jákvæðir gagnvart Sam-
bandinu. Önnur fyrirtæki eða samtök
hefðu komið verr út. Þetta kæmi hins
vegar í ljós þegar niðurstöður yrðu
birtar opinberlega á næstunni.
-KMU
Þýsk sjónvarpsstöð
sýnir Dalalíf
„Þetta er í fyrsta skipti sem við kom-
um íslenskri mynd inn á erlenda
sjónvarpsstöð, en ekki var betur séð
en að Dalalíf fengi mjög góðar við-
tökur,“ sagði Ari Kristinsson, annar
höfúndur íslensku kvikmyndarinnar
Dalalíf, sem þýsk sjónvarpsstöð í
Stuttgart sýndi í síðustu viku.
„Það var eiginlega fyrir tilviljun að
myndin var tekin til sýninga, en ís-
lensk kona, sem er búsett í Stuttgart
og þekkir til umboðsaðila fyrir þessar
lókalstöðvar í öllu Þýskalandi, hafði
milligöngu um að útvega myndina og
setti jafnframt á hana þýskan texta.“
Sagði Ari að með þessu væri myndin
komin á mjög mikilvægan markað, og
hefðu þýsku umboðsaðilamir þegar
sýnt öðrum myndum, frá kvikmynd
fyrirtækinu Nýju lífi, áhuga.
„Við höfúm ekki hugsað okkur ;
einbeita okkur að fleiri löndum í bili
sagði Ari „en næst verður Skammde
tekin til sýninga í Þýskalandi, byrju
in á sýningu íslenskrar myndar þan
úti, lofar a.m.k. góðu“.
Xenix stýrikerfið
á íslenskan hugbúnað
í fyrsta skipti er nú Xenix stýri-
kerfið komið á íslenskan viðskipta-
hugbúnað, en Unix/Xenix stýrikerf-
in eru notuð á AT og APC tölvumar.
Softver sf. hefur nú í samvinnu við
Heimilistæki hf. umboðsaðila
WANG á íslandi, yfirfært ALLT
hugbúnaðinn á APC tölvur frá
WANG. ALLT hugbúnaðurinn er
þaulreyndur hugbúnaður á PC tölv-
ur og fjölnotendavélar. Hann er
fyrsti íslenski viðskiptahugbúnaður-
inn sem keyrir á Xenix stýrikerfinu.
Softver sf. mun í framhaldi af þessu
vinna að þvi að yfirfæra ALLT hug-
búnaðinn á Xenix stýrikerfinu yfir á
IBM AT samhæfðar tölvur.
Ráðgjafastofan rekstrar- og tölvu-
ráðgjöf annast markaðssetningu á
ALLT hugbúnaðinum og Xenix
stýrikerfinu. Ráðgjafastofan annast
auk þess ráðgjöf á sviði fyrirtækja
rekstrar og tölvumála auk annarra
starfa, og sérhæfir sig í því að finna
réttu lausnimar fyrir minni fyrir-
tæki sem hafa tölvuvæðingu í huga
án undangenginna útboða. _BTH
Páll Pétursson, framkvæmdastjóri Softvers sf„ og Öm Guðmundsson hjá Ráðgjafaþjónustunni skoða ALLT bók-
haldskerfið sem keyrir á XENIX kerfinu, en Paðgjafaþjónustan kynnti nýjungar þessar fyrir skömmu.
Tölvur:
Viðskipti______________Viðskipti______________Viðskipti