Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Side 15
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986. 15 Þjóðavsátt um byggðastefnu Á áratugnum 1970-1980 átti sér stað einhliða atvinnuuppbygging í sjávarútvegi og fiskvinnslu víða mn land. Landbúnaðarframleiðslan óx umfram eðlilegar markaðsaðstæður. Gert var átak til að efla útflutnings- iðnað. Tilraunir til stóreflingar erlendrar stóriðju höfðu ekki erindi sem erfiði. Byggðastefna þessa ára- tugar var framleiðslustefha sem aðhæfðist landkostum þjóðarinnar og byggðahagsmunum dreift um landið. Á þessum áratug stóð íbúa- hlutfall höfuðborgarsvæðisins í stað. Það tókst að ná búsetujafnvægi þótt um stuttan tíma væri. Byggðastefna þessa áratugar átti sinn stóra þátt í þeim mikla hagvexti sem einkenndi áratuginn. Mistökin í mótun byggðastefhu þessara ára lágu í tvennu: blindri trú á aukinn afla og vanrækslu á að tryggja landsbyggð- inni margfeldisáhrif af uppgangi framleiðsluatvinnuveganna. i Byggðaröskun Island er á jaðri hins byggilega heims. Lækki hitastig í sjónum eða straumar breytist eru fiskistofnar okkar í hættu. Falli sumarhiti er heyfengur í hættu. Hvoru tveggja höfum við fengið að kynnast á síð- ari árum. Á ráðstefnu um sjávarút- veg 1975 var spáð að þorskaflinn gæti orðið 700-800 þús. tonn. Reynsla síðari ára sannar að engar vonir eru um stóraukinn afla en aft- ur á móti vitum við nú að heilu árgangamir hafa misfarist í klaki af náttúrulegum ástæðum. Hverjir skyldu hafa trúað því, þegar við stækkuðum landhelgina, að fljótlega þyrfti að skammta fiskinn í sjónum á milli veiðiskipanna? Skyldu þeir sem hvöttu bændur til að rækta sem mest hafa trúað því að nú er skipu- lega unnið að því að fækka í bændastétt með því að kaupa bænd- ur frá búskap? Má vera að við séum að færast niður á nýlendustigið varðandi fiskiðnaðinn? Þessi hætta er yfirvofandi alls staðar þar sem skarast hagsmunir veiða og vinnslu eða þar sem ekki gætir félagslegra yfirráða í sjávarútveginum. Á meðan þjóðarhagsmunir byggj- ast á byggð um landið verður landsbyggðarstefha óhjákvæmilega undirstaða þróaðs samfélags. Um þetta verður að takast þjóðarsátt á milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar ella skiptist þjóðin áfram í tvær fylkingar. Siðan um aldamót hefur þjóðinni fjölgað um 163 þús. íbúa. Á sama tíma hefur íbúum höfuðborgarsvæð- isins fjölgað um 132 þús. Þetta svarar til 81% af þjóðarfjölguninni. íbúum þéttbýlisstaða hefhr fjölgað um 194 þús. sem er aukning fram yfir þjóðar- aukningu um 31 þús. íbúa. Þetta sýnir búsetuþróun þjóðarinnar frá dreifbýli til þéttbýlis. Nú eru tæplega 90% þjóðarinnar í þéttbýli. Hlutur höfúðborgarsvæð- isins í þéttbýlismyndun er 61% af íbúum þéttbýlis með 50 íbúa eða fleiri. íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa verið yfir helmingur þjóðarinn- ar síðan 1960 og eru nú 54,8% allra íbúa landsins. Hlutfall höfuðborgar- svæðisins í þéttbýlismyndun varð mest 1970, 62%, lækkaði 1980 í tæp- lega 60% en er nú, 1985, 61,4% og sækir því í sama farið og var 1970. Hlutur höfuðborgarsvæðisins í heildaríbúafjöldanum hefur aldrei verið hærri en nú, 1985. Hann var nokkum veginn í jafhvægi 1970- 1980, eða um 53%. Með þeim hraða, sem hefur verið í byggðaröskun síð- ustu árín, má reikna með að á höfuðborgarsvæðinu verði um 65% alls þéttbýlis í landinu í lok áratug- arins. Það er ljóst af þróun síðustu ára að þéttbýli landsbyggðarinnar er að fara halloka. Sá ávinningur, sem varð 1970-1980, þegar lands- byggðin bætti stöðu sína um 2% í þéttbýlismyndun, er allur farinn. Mannfjöldaþróun Ef varpað er ljósi á þróunina síðan á stríðsárunum sést að skil hafa ver- ið að myndast á milli höfuðborgar- svæðisins og landsbyggðarinnar. Sé grannt skoðað eru þetta skil á milli þjónustukjamans á höfuðborgar- svæðinu og frumvinnslu- og úr- vinnslusvæðanna á landsbyggðinni. Byggðastefna síðasta áratugar sýnir að uppgangur undirstöðuatvinnu- greinanna er haldbesta ráðið til að efla landsbyggðina. Margfeldisáhrif- in hafa að mestu verið á höfuð- borgarsvæðinu, þar með talin stækkun ríkisgeirans sem hefur átt stóran þátt, vegna staðsetningar sinnar, í að skekkja efnahagsgrund- völlinn. Erlendir fjárstraumar hafa að mestu lent inn á suðvesturhomið. Á nfunda áratugnum hefur verið beitt erlendum lántökum til að halda neyslustiginu uppi. Útflutningsat- vinnuvegimir hafa orðið að sætta sig við verðlagningu erlends gjald- eyris sem ekki tekur mið af þörfum þeirra. Öllum er ljóst að við svo búið getur ekki staðið til lengdar. Áskell Einarsson framkvæmdastjóri Það ætti einnig að vera öllum ljóst að þjóðin getur ekki byggt upp einn þéttbýliskjama fyrir landið ef ekki fara saman undirstöðuhagsmunir i þjóðarbúskapnum. Þjóðinni er að verða ljóst hvert hún sækir lífskjörin. Reynsla síðari ára sýnir að umframeyðsla neyslu- samfélagsins geti stefht fiárhagslegu sjálfstæði þjóðarinnar í hættu. Nú er verið að vinna sig út úr vandan- um. Samtímis því að reynt er að styrkja lífskjörin eru hagsmunir framleiðsluatvinnuveganna látnir sitja eftir í von um betri tíð. Þjóðin verður að treysta á sjávarútveginn og útflutningsiðnaðinn sem undir- stöðu lífskjara svo að þeir eigi í fullu tré við þjónustubáknið. Búsetuþróun áranna 1980-1985 er um margt athyglisverð. Árin 1980- 1983 skipta landsbyggðin og höfúð- borgarsvæðið íbúaáukningunni á milli sín. Höfuðborgarsvæðið eykur hlutdeild sína úr 68% í 79% en hlut- ur landsbyggðar lækkar á sama tíma úr 32% í 21%. Milli 1983 og 1984 gerast skilin. Höfuðborgarsvæðið nær allri aukningunni og 20 íbúum frá landsbyggðinni. Milli 1984 og 1985 lendir öll íbúaaukningin á höf- uðborgarsvæðinu, auk þess 290 íbúar frá landsbyggðinni. íbúahlut- fall höfuðborgarsvæðisins hækkar milli 1984 og 1985 um 0,46 prósentu- stig. Haldi þessi þróun áfram ættu íbúar höfuðborgarsvæðisins að verða 61,7% íbúafiöldans árið 2000 og sennilega 66% um 2020. Samkvæmt þessu, miðað við mannaflaþróun, samkvæmt nýjustu mannfiöldaspá, verða íbúar höfuð- borgarsvæðisins um 157-160 þús. um næstu aldamót en íbúafiöldi lands- byggðar á bilinu 90-101 þús. Þetta þýðir fækkun á landsbyggðinni um 8-9 þús. manns. Ibúahlutfall lands- byggðar myndi lækka úr 45% í 38%. Þessi mannfiöldaspá gerir ráð fyrir minnkandi frjósemislíkum og er í því efni miðað við reynslu annarra þjóða. Milli 1984 og 1985 hafa átt sér stað skil í búsetuþróun þjóðarinnar. Nú virðist sem hinir fámennari ár- gangar séu að hafa áhrif á mann- fiöldaþróunina. Efnahagsleg sjálfhelda Ef vinnuaflsþróunin er skoðuð i Reykjavík kemur í ljós að 57,4% hafa framfæri af þjónustugreinum árið 1965 en árið 1984 71,7%. Til- færslan er mest á kostnað úrvinnslu- greinanna, eða 92%. Nú fer saman íbúahlutfall höfuðborgarsvaBðisins og atvinnuhlutfall þjónustugrein- anna í landinu. Það er ekki fyrr en eftir 1980 sem atvinnuþátttaka þjón- ustustéttanna nær íbúahlutfalli höfuðborgarsvæðisins. Þetta er á sama árabili og þegar höfuðborgar- svæðið nær til sín allri þjóðaraukn- ingunni og gott betur. Svo virðist sem þama séu vaxtarbroddar þjóð- félagsins - sterkur þjónustukjami ásamt beinni úrvinnslu sem tengist þjónustustarfseminni. Annarri at- vinnustarfsemi er haldið gangandi vegna brýnnar þjóðamauðsynjar og þá oftast með efriahagslegum til- færslum, undir yfirskini byggða- stefriu eða til að forðast stöðnun atvinnuveganna. Þetta þjóðfélag getur lent fljótlega á ný í efhahagslegri sjálfheldu ef og þegar núverandi uppsveiflu í sjávar- útvegi lýkur. Verður þá gripið til ráðanna upp úr 1980, að fleyta sér á erlendum lántökum, eða verður hemaðarstaða landsins nýtt og sam- ið við vemdara vora um náðar- brauð? Báðir þessir kostir standa nærri hugum margra manna ef á reynir. Við höfum reynslu annarra þjóða að varast í þeim efhum. Sú leið er ekki fær að spoma gegn upp- byggingu þjónustusamfélags. Spum- ingin er um forgangsröð í þjóðfélag- inu. Um sinn er það sjávarútvegur- inn sem er undirstaða lífskjara í þessu landi. Á meðan svo er verður að tryggja þeim atvinnuvegi þau skilyrði að þangað leiti fiármagnið. Meginskekkjan í uppbyggingu þjóð- félagsins er hve við höfúm vanrækt iðnaðaruppbyggingu í landinu og nýtingu orkulinda landsins. Bæði vegna pólitískrar handvammar og bamalegra sjónarmiða hefur vitandi og óafvitandi verið klúðrað öllum möguleikum til að fá inn í landið ’ erlent áhættufiármagn í atvinnuvegi landsins, t.d. stóriðju. Landkosta- og byggðastefna Milli 1950 og 1970 gerðu fbúar höfuðborgarsvaBðisins sér ljóst að búseturöskun landsbyggðarinnar var þeim hættuleg atvinnulega og byggðarlega séð. Nú er staðan öllu verri ef svo horfir sem raunin hefur verið síðustu árin. Framundan er að æ færri vinnufærar hendur leiti út á vinnumarkaðinn. Það getur horft til byggðarauðnar á útkjálkum og að landbúnaður þyrpist í nábýli við stærsta þéttbýlið. Sú spuming vakn- ar hvort þessari þjóð takist að sitja land sitt. Vanræki hún undirstöðu- atvinnuvegi þess verður hún að opna landið fyrir útlendingum til að vinna ófínni verkefni í framleiðslustarf- seminni. Þannig hafa aðrar þjóðir farið að og sitja uppi með erlenda minnihlutahópa í landi sínu. Vísir að tveim þjóðum í sama landi er ís- lendingum andstætt. Ef hin íslenska þjóð ætlar að eiga ein sitt land verður nú að taka upp framleiðslustefnu, sem jafnframt er landkostastefna og byggðastefna, fyrir landið í heild. Þetta tekst ekki ef áfram verður stuðlað að myndun borgarríkis stefhulaust, án tillits til hinna raunvemlegu búsetuhags- muna sem þessi þjóð verður að sætta sig við. Það verður að hverfa frá þjónustu- kerfisstefhu til landkosta- og byggðastefnu sem er undirstaða sjálfstæðis og velgengni þessarar þjóðar í bráð og lengd. Höfuðborgar- svæðið á mest undir því að þetta takist og að þjóðarsátt náist, í stað hyldýpis á milli landsbyggðar og höfuðborgar. Nú eru sannarlega tímamót til að fylkja liði í þessu máli, þegar þjóðin er að komast út úr hafvillum eftirstríðsáranna á kaldan sjó raunveruleikans, um að duga ein og óstudd í landi sínu. Það þarf að endurmeta stöðnuð viðhorf. Breyta verður valdakerfi þjóðarinn- ar og beina kröftunum að atvinnulíf- inu. Það verður að dreifa valdinu bæði í stjómarráðinu, fiármálaheim- inum og stofhunum þjóðfélagsins út til byggðanna i stað myndunar borg- arríkis sem þjóðinni er ofviða að standa undir og mun fyrr eða síðar leiða til bvggðaeyðingar í þessu landi. Áskell Einarsson Fátæktartalið og félagsmálastjórar Það bar við skömmu fyrir sveitar- stjórnarkosningamar, að félags- málastjóramir í landinu efridu til ráðstefnu um fátækt. Þeir komust þar að þeirri niðurstöðu, að hún hefði stóraukist á síðustu árum. Fjórðungur landsmanna væri neðan sérstakra fátæktarmarka. Ég var staddur erlendis, þegar þessi ósköp fréttust, en mér er sagt, að sjaldan eða aldrei hafi einni ráðstefnu verið gerð jafngóð skil í ríkisfiölmiðlunum og á Þjóðviljanum. En ég er satt að segja hissa á því, að menn hafa ekki tekið málflutningi félagsmála- stjóranna af meiri tortryggni en raun varð á. Það ætti þó að vera aug- ljóst, að þessir ágætu menn hafa hag af þvi að gera eins mikið úr fátækt og þeir geta, þar sem þeir lifa bein- línis af henni. Um leið og fátæktin hyrfi, hlytu þeir að missa atvinnuna. En hér ætla ég að leyfa mér að leggja örfá orð í belg um þetta mál. Villandi tölur Ég skal nefha þrennt, sem vekur efasemdir um sumar þær tölur, sem farið var með á þessari ráðstefnu. Menn geta í fyrsta lagi auðvitað allt- af skilgreint fátækt með þeim hætti, að einhver tiltekinn hluti þjóðarinn- ar teljist fátækur (til dæmis fiórð- ungur hennar). En það, sem skiptir mestu máli, er hversu mikið fátæk- asti hluti þjóðarinnar getur keypt fyrir tekjur sinar. Það hefur á síð- ustu áratugum aukist, en ekki minnkað. Við getum í öðru lagi aldrei treyst opinberum tölum um tekjur manna fullkomlega. Því hærri skattar sem lagðir eru á landsmenn, því meiri verður tilhneiging þeirra til þess að hörfa niður í neðanjarðarhagkerfið, og tekjur þeirra þar koma eðli máls- ins samkvæmt ekki fram á neinum opinberum skýrslum. Það sýnir, hversu áreiðanlegar þessar tölur voru, að fiöldi sjálfstæðra atvinnu- rekenda var samkvæmt þeim undir fátæktarmörkum! I þriðja lagi nægir ekki fyrir okkur að Ííta aðeins á tölur um beinar pen- ingatekjur fólks, þegar við reynum að meta lífskjör þess. Við verðum líka að taka með í reikninginn, hvað það fær í sinn hlut án þess að þurfa að greiða sjálft fyrir það. Einstæðar mæður njóta til dæmis niðurgreiddr- ar bamagæslu. Hvað sýnir fátæktartalið? Allt gefúr fátæktartalið reyndar tilefni til að spyrja félagsmálastjór- ana einnar óþægilegrar spumingar: Ef þetta tal á við einhver rök að styðjast, hefur þá velferðarríkið alls ekki náð tilgangi sínum? Útgjöld Frjálshyggjan er mannúðarstefna Kjallarinn Dr.Hannes Hólmsteinn Gissurarson ríkis og bæja til velferðarmála hafa hækkað ár frá ári, en samt á fátækt að hafa aukist. Hvert hefur allt þetta fé runnið? Hefur það staðnæmst í félagsmálastofhunum? Svari hver þeirra sem betur getur. Fátæktartalið veitir ennfremur nokkra vísbendingu um, að almenn lífskjör hljóta að hafa batnað og kröfúr fólks til lífsins aukist, þar sem kaupmáttur, sem hefði verið talinn ágætur fyrir tuttugu eða þrjátíu árum, er nú skyndilega talinn allt of lítill. Það er samanburðurinn við betri kjör annarra, sem skiptir sumt fólk mestu máli, og þá gleymist, að það býr sjálft við betri hag en það gerði fyrr á árum, þótt tekjur þess hafi ekki aukist jafnhratt og ann- arra. ísland iáglaunasvæði Ég er sannfærður um, að sú fá- tækt, sem félagsmálastjóramir og fiölmiðlungamir, vinir þeirra, upp- götvuðu á dögunum, sé mjög orðum aukin. Fátækasti hluti þjóðarinnar kemst nú betur af en áður, en það merkir, að raunvemleg fátækt hefúr minnkað, ekki aukist. Hitt er degin- um ljósara, að almenn vinnulaun em hér allt of lág. ísland er því miður orðið hálfgert láglaunasvæði í sam- anburði við mörg önnur lönd Norðurálfunnar. En við bætum ekki úr því með auknum útgjöldum til félagsmála- stjóranna, því að þeir skapa ekki verðmæti, heldur skipta því, sem aðrir hafa skapað. Af sömu ástæðu bætum við ekki heldur úr því með harðri kjarabaráttu, eins og reynsl- an sýnir. Það, sem við þurfum að gera, er að nýta það fé betur, sem við höfum handanna á milli, en það felur í sér, að við megum ekki af- henda stjómmálamönnum eins mikinn hluta þess og nú er. Ef við lækkum skatta og aðrar álögur á fólk og leyfúm ftjálsri samkeppni að knýja fólk áfram, þá geta almenn vinnulaun smám saman hækkað sjálfkrafa. Fólk komist út úr fátækt í umráeðunum um fátækt á íslandi rekast tvær skoðanir á, þótt aðeins hafi heyrst í talsmönnum annarrar í ríkisfiölmiðlunum. Sú, sem þar er kynnt, er, að auðvelda eigi fátæku fólki að sitja föstu í fátækt með beinni aðstoð við það. Félagsmála- stjóramir hafa auðvitað þá skoðun, því að hún veitir stofhunum þeirra tilverurétt. Hin skoðunin er, að auðvelda eigi fátæku fólki að komast út úr fá- tækt með því að fiölga tækifærunum í atvinnulífinu, ekki síst með því að opna allar atvinnugreinar upp á gátt. Þeir, sem fylgja sannri mann- úðarstefhu, trúa því, að flestu fólki sé ekki fyrirmunað að bjarga sér af eigin rammleik. En til þess má ekki loka fyrir því leiðum með höftum, boðum og bönnum. Hannes Hólmsteinn Gissurarson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.