Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Síða 21
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986.
. ‘ ,í,áá; x.
íþróttir íþróttir íþróttir
Maradona
sló knött-
inn í maik
Sigurbjöm Aðalsteinsson, DV, Landan.
,Það voru vonbrigði að tapa á þenn-
an hátt vegna mistaka dómara og
línuvarðar. Ég hef mikla samúð með
leikmönnum mínum vegna hins ólög-
lega marks Maradona. Það er erfiður
biti að kyngja," sagði Bobby Robson,
landsliðseinvaldur Englands, eftir tap-
ið gegn Argentínu á HM í gær.
Gífurleg umfjöllun var í enska sjón-
varpinu í gær, bæði hjá BBC og ITV,
eftir leikinn, um fyrra mark Argentínu
sem Maradona skoraði á 51. mínútu
leiksins. Atvikið var margsýnt í báðum
stöðvunum og þar fer ekki milli mála
að knötturinn fór í uppréttan hand-
legg Maradona og í markið. Allir
sérfræðingar stöðvanna voru á einu
máli um að markið hefði verið koló-
löglegt. Atvikið var sýnt mjög hægt
og greinilegt eins og mest má vera að
Maradona skallaði ekki knöttinn i
markið. Hann fór af handlegg hans í
markið. í fyrstu, þegar Maradona
hafði skorað og markið dæmt gilt,
voru sjónvarpsmennimir að furða sig
á því hvemig hinn smávaxni Mara-
dona gat stokkið hærra en Shilton..I
hægri endursýningu kom svo hið rétta
í ljós.
í viðtölmn eftir leikinn hélt Diego
Maradona því stöðugt fram að hann
hefði skallað knöttinn í mark. Breskir
fréttamenn vom undrandi á því að
Maradona skyldi halda þessu fram
eftir að hafa séð atvikið í sjónvarpi.
Miklu minna er gert úr þvi hjá ensku
sjónvarpsstöðvunum að Maradona
var búinn að vera rangstæður um tíma
áður en knötturinn'kom inn í vítateig-
inn - reyndar frá einum ensku leik-
mannanna, Steve Hodge.
„Ég leit strax til línuvarðarins þegar
knötturinn fór yfir Shilton í markið.
Taldi ömggt að hann væri með flagg
sitt á lofti. Ég var ekki í vafa um að
markið var ólöglegt og varð undrandi
þegar línuvörðurinn gerði enga at-
hugasemd,“ sagði Bobby Robson.
Ensku blöðin taka tapinu ekki illa,
hæla frekar enska liðinu en hitt. Allt
annar tónn en var eftir tvo fyrstu leiki
Englands á HM. Hins vegar mikið
rætt um mistök dómarans - í annað
skipti í keppninni sem dómara verða
á alvarleg mistök hvað mörk snertir
og sjónvarpið afhjúpar mistökin. Hið
fyrra þegar Spánverjar skomðu gott
mark gegn Brasilíu en ekkert dæmt.
Fulltrúi FIFA á leiknum í gær, Thom-
as Wharton, sagði eftir leikinn. „Hvað
FIFA viðkemur verður ekkert gert í
málinu - ekkert hægt að gera. Úr-
skurði dómarans verður ekki breytt."
hsím
• Svanhildur.
Islandsmet
Svanhildar
Svanhildur Kristjónsdóttir, Breiða-
bliki, setti íslandsmet í 200 m hlaupi
á móti í Oxford á Englandi fyrir helgi.
Hljóp á 24,1 sek. Handtímataka.
ÓU/hsím
Staðaní
1. deild
- 8. umferð hefst í kvöld
Úrslit í leikjunum í 7. umferð í 1.
deild urðu þessi:
Valur-Víðir 1-0
Breiðablik-Akranes 1-4
Keflavík-KR 2-1
Fram-Vestmannaeyjar 3-0
Þór-FH 2-1
Staðan er nú þannig:
Akranes
Fram
Valur
KR
Keflavík
Keflavík
Þór
Víðir
FH
Breiðablik
ÍBV
1 14-
1 13-
2 9-
1 11-
0 1
4
4
4
5
8 12
8 12
10-13 10
3- 5 8
8-13 7
5-10 7
4- 17 1
6-
6-
14
14
13
12
Markahæstu leikmenn eru nú:
Guðmundur Torfason, Fram, 7
Valgeir Barðason, Akranes, 5
Ingi Björn Albertsson, FH, 4
Áttunda umferðin hefst í kvöld með
leikjum FH-ÍBV í Kaplakrika og
Víðis-Fram í Garðinum kl. 20. A
þriðjudag leika Akranes-Keflavík á
Akranesi, KR-Valur í Laugardal og
Þór-Breiðablik á Akureyri. Leikirn-
ir hefjast kl. 20. -hsím
r
I
I
Brasilía kærir
ekki til FIFA
21
vegna vrtaspymu Belione
„Við erum nú að leita álits sér-
fræðinga og það fer eftir viðbrögðum
þeirra hvort við sendum FIFA, al-
þjóðaknattspymusambandinu, kæru
vegna málsins," sagði Nabi Abi
Chebid, varaforseti brasilíska knatt-
spjTnusambandsins, í Guadalajara í
Mexíkó í gær.
í nótt bárust hins vegar þær fréttir
frá Chebid í Guadalajara að Brasilía
mundi ekki kæra atvikið til FIFA
en við skulum samt halda áfram með
viðtalið sem tekið var við Chebid í
Brasilíumenn telja að rúmenski
dómarinn, Ioan Igna, hefði ekki átt
að dæma mark þegar Bruno Bellone
tók þriðja víti Frakklands í víta-
spymukeppninni eftir leikinn.
Knötturinn fór í stöng, þaðan af
brasilíska markverðinum Carlos í
markið. Brasilíumenn segja að um
leið og knötturinn hitti stöngina
hafi hann verið úr leik. Það virðist
þó heldur veigalítil röksemd en
Chebid sagði. „Við höldum því fram
að þegar knötturinn haihar í stöng
þá sé ekki hægt að dæma mark ef
knötturinn fer síðan í markvörðinn
og í markið."
Dómarinn dæmdi mark og það
hlýtur að gilda eins og annað sem
hann dæmir í leiknum.
Hins vegar virtust flestir forsvars-
menn Brasilíu í Guadalajara í gær
vera á þeirri skoðun að það væri til
lítils að kæra í málinu. Kæra yrði
I
• Tele Santana, hættur með tands-
liðs Brasílíu.
aldrei tekin til greina og þeir vildu
hraða heimför sem mest. Flestir
vildu fara strax í gær en ekki varð
þó af því. Sennilega halda Brasilíu-
menn heim í dag.
Leikmenn Brasilíu tóku tapinu
gegn Frakklandi allt öðruvísi en
þegar þeir töpuðu fyrir Italíu, 3-2, í
heimsmeistarakeppninni á Spárú. Þá
var grátur og gristan tanna en í
höfúðstöðvum þeirra í Guadalajara
þremur klukkustundum eftir tapið
gegn Frakklandi voru leikmennimir
I
I
I
flestir mjög rólegir. Sorgin leyndi sér J
þó ekki i andliti þeirra. Þeir ræddu |
talsvert um óheppni - einnig um ■
miklahæfhifrönskuleikmannanna. I
„Ef guð vill það ekki þá skeður |
ekkert. Áform guðs eru ekki alltaf .
hin sömu og okkar,“ sagði hinn tví- |
tugi Silas sem kom inn sem vara- ■
maður. Hann tilheyrir trúflokki I
baptista. Miðheijinn Careca, sem I
skoraði fimm mörk á HM, það ■
fimmta og síðasta gegn Frakklandi, |
var greinilega sorgbitnastur leik-
manna Brasilíu.
„Höfuð mitt beinlínis brennur, I
gerðu það fyrir mig að spyrja mig ■
ekki neins nú. Kannski á morgun.“ I
En hann ætlaði með félaga sínum z
Casagrande á veitingastað. Casa- |
grande sagðist ekki hafa tíma til að .
ræða við fréttamenn en hins vegar |
„tíma til að drekkja sorgunum við ■
víndrykkju". I
„ Ég ætla að hætta sem atvinnuþjálf- I
ari í knattspymu. Það er alltof erfitt ■
starf, tekur of mikið á taugamar," I
sagði Tele Santana, HM-þjálfari *
Brasilíu, þegar hann sagði af sér í I
Guadalajara i gær eftir tapleikinn _
gegn Frökkum. Hann var einnig |
þjálfari HM-liðs Brasilíu á Spárú ■
fyrir fjórum árum en hætti sem þjálf- I
ari Brasilíu eftir þá keppni. Tók hins ■
vegar við brasilíska liðinu fyrir I
nokkrum mánuðum eftir slakan ár- *
angur þess. I
hsim _
Terry Fenwick brotlegur gegn Diego Maradona fyrst i leiknum og var bókaður.
Símamynd Reuter.
..Skorað með hendi Guðs“
- sagði Maradona
„Hönd Guðs hjálpaði knettinum í
markið," sagði Diego Maradona á
fréttamannafundi í Mexíkóborg í
nótt að íslenskum tíma og átti þar
við fyrra mark Argentínu gegn Eng-
landi á Azteca-leikvanginum í gær.
Hann vildi ekki viðurkenna opin-
berlega að hann hefði skorað markið
með handleggum - neitaði því þó
ekki eins og fyrst eftir leikinn.
Fréttamenn vom mjög ágengir við
hann í sambandi við markið og
Maradona sagði þá.
„Markið var skorað með hendi
Guðs að nokkru leyti og að nokkru
leyti með höföi Maradona." Fleira
fékkst hann ekki til að segja.
Hins vegar var félagi hans, Jorge
Valdano, hress í skapi á frétta-
mannafundinum og grínaðist í
sambandi við markið. „Diego var svo
leiður vegna marksins að hann ák-
vað að hann yrði að skora annað,“
sagði miðheijinn. Þar átti hann við
mark Maradona eftir mikinn einleik
frá eigin vallarhelmingi þar til hann
lék á Peter Shilton í lokin inni und-
ir markteig áður en hann renndi
knettinum í markið. Shilton hafði
verið fyrstur til að mótmæla fyrra
marki Maradona. Hann hefði skorað
það með handleggnum. Aðrir leik-
menn Englands vildu meina að
Maradona hefði verið rangstæður
og hlupu á eftir dómaranum og mót-
mæltu. hsím
I
I
I
I
I
I
I
I
I
J